Innlent

Norðanhríð fyrir vestan og Ís­land í máli gegn Ísrael

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Hádegismynd

Í hádegisfréttum fjöllum við um veðrið sem gengur nú yfir norðvestanvert landið. Snjóflóð hafa fallið yfir veginn um Súðavíkurhlíð og hefur honum nú verið lokað.

Gular viðvaranir eru í gildi á svæðinu og önnur slík tekur gildi í kvöld fyrir Faxaflóann.

Þá fjöllum við um þá ákvörðun stjórnvalda að taka þátt í málssókn gegn Ísraelum ásamt Suður-Afríku og fleiri ríkjum. Formaður utanríkismálanefndar segir mikilvægt að lögfræðilegar spurningar verði leiddar til lykta og óttast ekki afleiðingar vegna málsóknarinnar.

Þá fjöllum við um möguleg kaup Símans á fjölmiðlum Sýnar og heyrum í sérfræðingi hjá VÍS sem segir að erlendir ferðamenn valdi fleiri alvarlegum slysum en ungir eða ölvaðir ökumenn.

Í íþróttapakka dagsins fjöllum við um deildarkeppnirnar í handbotla og körfunni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×