Má ekki hafa Playstation2.is 1. mars 2005 00:01
Samkeppnisráð hefur úrskurðað að Haukur Vagnsson, sem búsettur er í Þýskalandi, hafi með skráningu lénsins playstation2.is, brotið gegn ákvæðum samkeppnislaga. Því hefur Hauki verið bönnuð notkun lénsins og verður hann að afskrá það innan tveggja vikna frá birtingu ákvörðunarinnar. Það var Sony Computer Entertainment Europe Limited, einkarétthafi á Playstation-vörumerkinu í Evrópu, sem kvartaði til samkeppnisráðs. Fram kemur að Haukur hafi ekki notað lénið sjálfur, en hafi verið tilbúinn til að selja það til Sony. Ekki hafi verið leitt í ljós að Haukur hafi lögmæta hagsmuni af notkun lénsins. Í gær var að finna á síðunni tengingar við breska síðu sem selja efni tengt Playstation.
Fréttir Innlent Tækni Mest lesið Ætlaði aldrei að enda í herskóla í Bandaríkjunum Lífið „Ég er búin að fæða þrjú börn en þetta er versta sem ég hef upplifað“ Lífið Þakka aðdáendum fyrir að hafa fjármagnað nýja húsið Lífið Með höfuðið rétt skrúfað á og gleyma aldrei hjálminum Lífið Verðmiðinn hækkar á höll Antons Lífið Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Lífið samstarf Kanye lögsækir tannlækni fyrir að gera sig háðan hláturgasi Lífið BAUHAUS býður þér í glæsilega afmælisveislu! Lífið samstarf Fréttatía vikunnar: Rafmagnsleysi, njósnir og SFS Lífið Íslenski Eurovision-hópurinn lagður af stað Lífið Fleiri fréttir Oblivion Remastered: Nostalgían lifir góðu lífi Biðin langa: Rúmt ár í herlegheitin Hryllingskvöld hjá GameTíví Íslendingaslagur í Verdansk hjá GameTíví Skipulögð glæpastarfsemi hjá GameTíví Sjá meira