Lovísa til Orkuveitunnar Lovísa Árnadóttir hefur verið ráðin í starf samskiptastýru Rannsókna og nýsköpunar hjá Orkuveitunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur. Lovísa hefur þegar hafið störf. Viðskipti innlent 4.2.2026 15:38
„Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vilhjálmur Birgisson er ekki ánægður með skilaboð Seðlabanka Íslands til launafólks en seðlabankastjóri og varaseðlabankastjóri sögðu í morgun að bankinn myndi ekki hika við að hækka stýrivexti ef laun hækka. Sérstaklega var minnst á brugðist yrði við ef forsenduákvæði kjarasamninga yrði beitt í september. Það mælir fyrir um að rifta megi samningum ef verðbólga mælist yfir fimm prósentum í ágúst. „Ef forsendur kjarasamninga standast ekki í september þá ber að segja þeim upp,“ segir Vilhjálmur. Viðskipti innlent 4.2.2026 13:55
Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 7,25 prósentum. Seðlabankastjóri segir aukna verðbólgu ekki gefa tilefni til hækkunar. Laun hækki þó of hratt sem hefur mikil áhrif á efnahaginn. Viðskipti innlent 4.2.2026 12:21
Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent 4.2.2026 11:40
Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtunum óbreyttum og verða þeir því áfram 7,25 prósent. Viðskipti innlent 4.2.2026 08:30
„Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Hagfræðingur og greinandi telur langt þangað til stýrivextir verði lækkaðir á nýjan leik. Afnám verðtryggingar sem forsætisráðherra hefur boðað sé engin töfralausn þó að margt sé jákvætt við áformin. Viðskipti innlent 3.2.2026 20:32
Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Lucky records ehf., sem rak um árabil samnefnda plötuverslun við Rauðarárstíg, hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Verslunin er nú rekin af öðru félagi, Plötur og diskar ehf., sem stofnað var síðasta sumar. Viðskipti innlent 3.2.2026 14:15
Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Þórður Gunnarsson hagfræðingur segir verðtrygginguna ekki aðalvandamálið. Þegar fólk pirri sig á verðtryggingu sé það í raun að pirra sig á verðbólgunni. Hann segir miklar launahækkanir stærra vandamál. Hann kallar eftir auknu samráði á vinnumarkaði til að finna raunverulegt svigrúm og segir það líklegra til að hafa áhrif á verðbólgu en afnám verðtryggingar. Viðskipti innlent 3.2.2026 09:57
Vilhjálmur Theodór til Varðar Vilhjálmur Theodór Jónsson hefur verið ráðinn forstöðumaður sölustýringar hjá Verði tryggingum. Viðskipti innlent 3.2.2026 08:37
Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Otti Þór Kristmundsson hefur verið ráðinn rekstrarstjóri Nettó og Steinar Jónas Kristjánsson framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs. Báðir koma þeir frá Bónus þar sem þeir hafa starfað samanlagt í um hálfa öld. Viðskipti innlent 3.2.2026 08:27
Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Gullverð hefur lækkað nokkuð skarp á heimsvísu síðan á fimmtudag, þegar það náði sögulegum hæðum. Samhliða lækkun gullverðs hefur gengi íslenska námafélagsins Amaroq lækkað um rúmlega ellefu prósent. Viðskipti innlent 2.2.2026 10:57
Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist hafa skilning á því að fólki finnist erfitt að greiða hærri gjöld. Það sé fúlt að verðbólga hafi hækkað fyrir helgi en bendir á að undirliggjandi verðbólga sé stöðug. Hún segir fyrsta skref að afnámi verðtryggingar verða stigið um næstu áramót. Viðskipti innlent 2.2.2026 09:50
Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Lögmaður stofnenda Vélfags segir að þeim sé haldið utan við fyrirætlanir stjórnarformanns þess. Þá hafi þeir ekki óskað eftir því að eignir væru fjarlægðar úr starfsstöðum félagsins. Staðhæfingar stjórnarformanns og lögmanns Vélfags í fjölmiðlum séu rangar. Viðskipti innlent 30.1.2026 15:58
Andri frá Origo til Ofar Tæknifyrirtækið Ofar hefur ráðið Andra Þórhallsson sem verkefnastjóra UT-kerfa. Samkvæmt tilkynningu kemur Andri til Ofar frá Origo þar sem hann hefur starfað síðastliðin tíu ár, nú síðast sem „full-stack“ forritari á sviði hugbúnaðarlausna. Viðskipti innlent 30.1.2026 14:53
Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Aníta Rut Hilmarsdóttir hefur hafið störf hjá Lyf og heilsu á markaðs- og sölusviði. Aníta er einn stofnenda fræðsluvettvangsins Fortuna Invest og starfaði áður í eignastýringu Fossa og Arion. Viðskipti innlent 30.1.2026 14:44
Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Greiningardeildir Íslandsbanka og Landsbanka eru ósammaála í spám sínum um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans. Íslandsbanki spáir óbreyttum stýrivöxtum en Landsbankinn spáir 0,25 prósentustiga hækkun. Viðskipti innlent 30.1.2026 13:58
Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Kolfinna María Níelsdóttir hefur verið ráðin leiðtogi markaðs- og viðburðamála hjá Drift EA. Viðskipti innlent 30.1.2026 12:51
Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Sérfræðingar í fjármálalæsi barna segja lykilatriði að fjármálalæsi verði gert að skyldufagi í öllum grunn- og framhaldsskólum. Þannig fái öll börn sömu tækifæri til að læra um það hvernig á að byggja upp heilbrigðan fjárhag. Viðskipti innlent 30.1.2026 09:38
Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Eftir tvö vonbrigðaár í loðnunni bárust loks gleðitíðindi í dag þegar Hafrannsóknastofnun lagði til fimmföldun loðnukvótans. Það þýðir að loðnuvertíðin næstu tvo mánuði gæti skilað þjóðarbúinu 35 til 40 milljarða króna útflutningstekjum, að mati forstjóra Síldarvinnslunnar. Viðskipti innlent 29.1.2026 21:42
Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Landsbankinn hagnaðist um 38 milljarða króna, eftir skatta, á síðasta ári. Þar varð hálfs milljarðs aukning á milli ára. Til stendur að greiða helming hagnaðarins, eða nítján milljarða, í arð til eigenda. Bankaráð Landsbankans er einnig með til skoðunar að leggja til sérstaka arðgreiðslu fyrir aðalfund. Viðskipti innlent 29.1.2026 19:01
Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi telur að komandi loðnuvertíð geti skilað útflutningstekjum upp á 35 til fjörutíu milljarða króna. Hundruð manna muni fá vinnu í sjávarútvegsplássum víða um land en þó í aðeins um sex vikur. Viðskipti innlent 29.1.2026 14:12
Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Hagar hafa ráðið Sesselíu Birgisdóttur til að leiða nýtt svið innan samstæðunnar, viðskiptavild, upplifun og miðlun. Í tilkynningu segir að með stofnun sviðsins sé stigið mikilvægt skref í áframhaldandi þróun Haga með aukinni áherslu á upplifun viðskiptavina, nýjar tekjuleiðir og markvissa miðlun. Viðskipti innlent 29.1.2026 12:44
Daði Már kennir olíufélögunum um Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir aukningu verðbólgu mikið áhyggjuefni. Hann vísar því á bug að aukningin skýrist af gjaldahækkunum ríkisstjórnarinnar og segir olíufélög og bílaumboð bera ábyrgðina. Viðskipti innlent 29.1.2026 12:10
„Menn voru hér með einhverja sleggju“ Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir fregnir af verulega aukinni verðbólgu hafa slegið hann kylliflatan í morgun og nánast steinrotað. Aukning verðbólgu sé í andstöðu við markmið hinna svokölluðu stöðugleikasamninga, sem hafi átt að byggja á því að allir reru í sömu átt til þess að ná verðbólgu niður. „Það sem er sorglegast í þessu öllu saman er að það eru opinberir aðilar sem bera ábyrgð á þessu,“ segir hann og vísar til hækkunar gjalda sem tóku gildi um áramót. Viðskipti innlent 29.1.2026 11:12
Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Hafrannsóknastofnun leggur til að rúm 197 þúsund tonn af loðnu verði veidd á þessu fiskveiðiári. Upphaflega lagði hún til innan við fimmtíu þúsund tonna hámarksafla. Viðskipti innlent 29.1.2026 09:10