Skáluðu fyrir kraftinum sem knýr samfélagið Fólk úr atvinnulífinu lagði leið sína í Silfurberg í Hörpu í gær þar sem Ársfundur atvinnulífsins fór fram. Viðskipti innlent 3.10.2025 21:00
Flugfreyja, íþróttakona og ráðherra breyttu leiknum Samheldni og kvenorka einkenndi ráðstefnuna Konur sem breyttu leiknum, sem haldin var á Hótel Edition á dögunum. Markmið ráðstefnunnar var að veita þátttakendum innblástur, efla tengslanet þeirra og gefa þeim aukinn kraft til að láta eigin drauma rætast. Salurinn var fullsetinn og komust færri að en vildu. Lífið 3.10.2025 15:02
„Gætum orðið fyrsta þjóð í heimi til að útrýma leghálskrabbameini“ Kvenorkan var við völd þegar glæsilegur hópur kvenna fjölmenntu í sérstöku Leggönguboði á Hafnartorgi á dögunum. Það var góðgerðarfélagið Lífskraftur og 66°Norður sem sameinuðu krafta sína og stóðu fyrir viðburðinum í tilefni nýs átaks sem miðar að því að útrýma leghálskrabbameini á Íslandi. Lífið 3.10.2025 13:00
Mægðurnar Vanda Sig og Dísa sögðu fokk við ofbeldi Fjölmenni sótti FO-viðburð UN Women á Íslandi sem fram fór í Mannréttindahúsinu á föstudag. Fyrirsætur herferðarinnar voru á meðal gesta, en nokkur þjóðþekkt andlit sátu fyrir í herferðinni í ár. Lífið 15. september 2025 20:32
Salka Sól og Elísabet Jökuls mættu á frumsýningu Það var líf og fjör í Borgarleikhúsinu síðastliðið föstudagskvöld þegar einleikurinn Ífigenía í Ásbrú var frumsýndur á Litla sviði Borgarleikhússins fyrir fullum sal áhorfenda. Sýningin var sýnd í Tjarnarbíói allan síðasta vetur. Lífið 15. september 2025 19:05
Óbeisluð rómantík á örlagaríku stefnumóti Það var fullt út úr dyrum í Ásmundarsal í síðustu viku þegar hópur sviðslistamanna setti upp gamanverkið Rómantísk gamanmynd. Húsfyllir var á öllum sýningum og vegna mikillar eftirspurnar var bætt við miðnætursýningu. Menning 15. september 2025 16:00
Ásdís Rán og Herbert Guðmunds glæsileg á frumsýningu Mætingin var þrusugóð í Háskólabíói í gærkvöldi þegar tveir fyrstu þættirnir af spennu þáttaröðinni Reykjavík Fusion voru frumsýndir. Stemningin í salnum var frábær og óhætt að segja að þættirnir lofi góðu. Lífið 12. september 2025 13:42
Ástin sigrar í nýrri herferð gegn ofbeldi „Útkoman var þessi bolur sem táknar það að jákvæðni og skilningur leiði gott af sér og ef maður einbeitir sér að því að sjá það fallega í fólki mun ástin sigra að lokum,“ segir Helga Lilja Magnúsdóttir, sem er hönnuðurinn á bak við nýjan FO-bol UN Women á Íslandi. Tíska og hönnun 12. september 2025 10:02
Síðasta vígið fallið: „Við erum búnir að ræða þetta í 22 ár“ Ölstofa Kormáks og Skjaldar hefur komið fyrir sjónvarpi þar sem áður var krítartafla með bjórverði. Eigendur létu verða af því eftir að hafa rætt málið í 22 ár. Einhvern veginn verði að halda kúnnum í húsi þegar áfengisgjald hækkar stöðugt. Ölstofan sé þó ekki að breytast í sportbar. Lífið 11. september 2025 15:14
Ragnhildur Steinunn snýr aftur á hvíta tjaldið Það var margt um manninn á forsýningu grínþáttaraðarinnar Brjáns í Sambíóunum Egilshöll í gærkvöldi. Áhorfendur virtust afar hrifnir og ómuðu hlátrarsköll um salinn. Lífið 11. september 2025 13:02
„Pabbi Rúríks“ lét sig ekki vanta Það var líf og fjör í Tjarnarbíói á föstudag þegar dansverkið Flækt, eftir danshöfundinn og flytjandann Juliette Louste, var frumsýnt fyrir fullum sal áhorfenda. Lífið 9. september 2025 17:01
Troðfull Þorlákskirkja minntist Karls Sighvatssonar Minningarhátíðin Karlsvaka var haldin í Þorlákskirkju sunnudaginn 7. september í tilefni af 75 ára fæðingarafmæli tónlistarmannsins Karls Sighvatssonar sem lést langt fyrir aldur fram 1991. Fjölmargir frábærir tónlistarmenn komu fram á hátíðinni og var kirkjan þétt setin. Tónlist 8. september 2025 18:02
Myndaveisla: Líf og fjör á Ljósanótt „Það var líf og fjör í bænum allt frá morgni til kvölds og við finnum hvernig fólk tekur svo sannarlega undir leiðarstefið okkar Saman með ljós í hjarta,“ segir Guðlaug María Lewis, verkefnastjóri Ljósanætur, fjölskyldu- og menningarhátíð Reykjanesbæjar. Lífið 7. september 2025 11:41
Eldgos og elskhugar á frumsýningu Eldanna Rómantíski spennutryllirinn Eldarnir var frumsýndur fyrir fullum sal í Smárabíó 3. september síðastliðinn. Eftirvæntingin var mikil og stemmingin brakandi af myndum að dæma. Lífið 5. september 2025 15:29
Skvísur landsins skáluðu í miðborginni Inga Lind Karlsdóttir, sjónvarpskona, og félagar hennar hjá framleiðslufyrirtækinu Skot Productions fögnuðu tíu ára afmæli fyrirtækisins með glæsilegri veislu á veitingastaðnum Fjallkonan á dögunum. Lífið 4. september 2025 10:12
Pattra og Birgitta Líf með keppnisskapið og lúkkið upp á tíu Það var líf og fjör á árlegu golfmóti FM957 sem haldið var á Hólmsvelli í Leiru síðastliðinn föstudag. Þetta er í tíunda sinn sem mótið fer fram, en keppt var í Texas Scramble fyrirkomulagi þar sem tveggja manna lið spiluðu saman. Lífið 2. september 2025 10:42
Neðanjarðarpartý og menningarveisla fyrir öll vit Það var mikið líf og fjör á menningarviðburðinum RVK X sem haldinn var í Grósku á Menningarnótt og spannaði marga klukkutíma og hina ýmsu listmiðla. Kvöldið endaði á alvöru partýi í bílakjallara þar sem plötusnúðar og rapparar á borð við Aron Can stigu á stokk. Menning 1. september 2025 16:30
Sóley og Kormákur skáluðu í síðsumarsólinni Það ríkti sannkölluð síðsumarstemning í verslun Kormáks & Skjaldar á Laugaveginum á dögunum þegar ný herralína frá Sóley Organics var kynnt til leiks. Fjölmargir lögðu leið sína í miðborgina og skáluðu fyrir samstarfinu í blíðskaparveðri. Lífið 27. ágúst 2025 16:40
Taumlaus gleði og stjörnum prýddir tónleikar Það ríkti sannkölluð hátíðarstemning í Hljómskálagarðinum þegar árlegir Menningarnæturtónleikar Bylgjunnar fóru fram. Gríðarlegur mannskari safnaðist saman og skemmti sér fram eftir kvöldi, þar sem nokkrir af fremstu tónlistarmönnum landsins stigu á svið. Lífið 26. ágúst 2025 17:01
Dansinn dunaði á Menningarnótt Það var líf og fjör á Laugaveginum þegar fatahönnuðurinn Hildur Yeoman bauð í alvöru götudanspartý fyrir utan verslun sína á Menningarnótt um liðna helgi. Plötusnúðurinn Dóra Júlía hélt uppi stuðinu á meðan gestir og gangandi dönsuðu og tóku virkan þátt í gleðinni. Lífið 26. ágúst 2025 10:02
Myndaveisla: Vestri fékk konunglegar móttökur á Ísafirði Bikarmeistarar Vestra fengu konunglegar móttökur á Silfurtorgi á Ísafirði í kvöld þegar þeir komu heim eftir frækinn sigur á Valsmönnum á Laugardalsvelli á föstudaginn. Lífið 24. ágúst 2025 22:50
Veggjadans á Hörpu og snyrtivörur úr sælgæti Lífleg dagskrá var á Menningarnótt Reykjavíkurborgar í dag, þar sem hátt í fjögur hundruð viðburðir voru haldnir víða um alla borg. Sirkuslistakona dansaði veggjadans hátt uppi á Hörpu, á meðan Binniglee og Patrekur Jaime buðu fólki upp á ókeypis snyrtingu. Lífið 23. ágúst 2025 23:59
Miklar tilfinningar og mikil stemning í Reykjavíkurmaraþoninu Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram í fertugasta sinn í dag. Aldrei hafa fleiri hlauparar verið skráðir til leiks né jafn mikill peningur safnast til góðgerðarmála. Viktor Freyr ljósmyndari var á staðnum og myndaði fólk að hlaupa og koma í mark. Lífið 23. ágúst 2025 15:54
Forsetahjónin létu sig ekki vanta Nýjasta kvikmynd Hlyns Pálmasonar var frumsýnd á Íslandi fyrir fullum sal gesta í Bíó Paradís í gærkvöldi. Um er að ræða ljúfsára skilnaðarmynd, með Sögu Garðarsdóttur og Sverri Guðnasyni í aðalhlutverkum, sem fylgir eftir fjölskyldu yfir fjórar árstíðir. Lífið 15. ágúst 2025 21:01