Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Auður Örlygsdóttir var sextán ára þegar hún lendir í því að fullorðinn maður gengur inn á hana nakta í útiklefa kvenna í Sundhöll Reykjavíkur fyrir tveimur árum. Maðurinn hlýddi ekki skipunum Auðar um að yfirgefa klefan og var þar í um fimm mínútur á meðan hann strauk á sér kynfærin. Innlent 18.4.2026 11:50
Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Einstaklingur slasaðist á fæti þegar hann lenti í gjótu við Davíðsgjá í Þingvallavatni í gærkvöld. Björgunarsveitir voru kallaðar út á hæsta forgangi og komu á staðinn um áttaleytið. Þá var hann með talsverðar blæðingar en hann var hluti af hópi sem var við sund í Davíðsgjá. Innlent 18.4.2026 11:46
Skotið hafi verið á olíuflutningaskip á Hormússundi Tvö skip Íranska byltingavarðarins hafa skotið á olíuflutningaskip á Hormússundi, að sögn Sjóviðskiptastofnunar Bretlands (UKMTO). Átti atvikið sér stað tuttugu sjómílur norðaustur af Óman. Olíuflutningaskipið og áhöfnin eru sögð heil á húfi. Erlent 18.4.2026 11:26
Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Olíuverð féll í dag eftir að stjórnvöld í Íran fullyrtu að Hormússundi yrði haldið opnu á meðan vopnahlé er í gildi. Sundið hefur formlega verið opnað fyrir umferð að sögn Bandaríkjaforseta og utanríkisráðherra Írans. Frakkland og Bretland hyggjast leiða alþjóðlega aðgerð sem miðar að því að halda sundinu opnu. Erlent 17.4.2026 21:42
Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Á hverjum degi eru hlutir sem fólk ýmist týnir eða finnur, auglýstir á nýrri vefsíðu. Skartgripir, hjól, dróni og bíllyklar eru á meðal þess sem ratað hefur inn á vefinn. Innlent 17.4.2026 21:00
Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum Fatlaðar konur eru tvisvar til þrisvar sinnum líklegri til þess að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi en aðrar konur. Formaður ÖBÍ réttindasamtaka segir þetta sláandi en í vikunni undirrituðu samtökin og Kvennaathvarfið samstarfssamning sem miðar að því að efla vernd fatlaðra kvenna og stúlkna gegn ofbeldi. Innlent 17.4.2026 20:36
„Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Starfslok eins ástsælasta kennara í Háskólanum í Reykjavík hafa orðið að gríðarlega vinsælu efni á samfélagsmiðlum. Hópur manns tók sig til og stóð heiðursvörð þegar hann lauk sínum síðasta kennsludegi á ferlinum. Hann segir móttökurnar hafa yljað honum um hjartarætur. Innlent 17.4.2026 20:02
Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Meirihlutinn er fallinn í borginni ef marka má nýja könnun Gallups. Vinstrið er með sterka innkomu og bæta Miðflokkurinn og Viðreisn töluvert við sig frá síðustu kosningum. Á sama tíma missa Framsókn, Píratar og Sósíalistaflokkurinn mikinn hluta síns fylgis. Stór hluti svarenda gaf ekki upp afstöðu sína eða kaus að skila auðu. Innlent 17.4.2026 19:21
„Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins segir mörg dæmi um að tillit sé tekið til sérstöðu umsóknarríkja í aðildarviðræðum. ESB geti fært Íslandi stöðugleika á víðsjárverðum tímum í alþjóðamálum og sérþekking Íslands komi til með að nýtast sambandinu. Innlent 17.4.2026 19:01
Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins segir mörg dæmi um að tillit sé tekið til sérstöðu umsóknarríkja í aðildarviðræðum. ESB geti fært Íslandi stöðugleika á víðsjárverðum tímum í alþjóðamálum og sérþekking Íslands komi til með að nýtast sambandinu. Innlent 17.4.2026 18:12
Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Forsvarsfólk Miðflokksins á Hornafirði taldi tilefni til að bregðast við umræðu um stefnu flokksins eftir að varaformaður hans gerði athugasemdir við fjölda regnbogafána og svipaðra tákna í skólum. Innlent 17.4.2026 17:49
Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Biskup Íslands segist sammála Hildi Eir Bolladóttur, sóknarpresti í Akureyrarkirkju, sem biður Miðflokkinn vinsamlegast um að draga Þjóðkirkjuna ekki „inn í ömurlegan málflutning sinn“ um regnbogafána í grunnskólum. Hildur Eir segir regnbogafánana mega blakta sem víðast, líka við kirkjur. Innlent 17.4.2026 15:17
Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Bráða- og viðbragðsteymið Púlsinn hefur tekið til starfa en markmið þess er að bregðast hratt við ofbeldishegðun, veita barni og fjölskyldu stuðning og afstýra hættu á frekara ofbeldi. Innlent 17.4.2026 15:14
Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Lögreglan Suðurnesjum vinnur nú að umfangsmikilli rannsókn sem varðar haldlagningu á rúmum þrjátíu kílóum af amfetamíni. Lögreglan handtók tvennt í tengslum við rannsókn málsins sem nú sæta gæsluvarðhaldi. Innlent 17.4.2026 14:55
Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Alls sóttu átta um tvö laus embætti dómara við Landsrétt, sem auglýst voru laus til umsóknar á dögunum. Einn umsækjandi sækir aðeins um annað embættið, þrátt fyrir að þau séu nákvæmlega eins fyrir utan upphaf skipunartíma. Innlent 17.4.2026 14:05
Hormússundið opið á ný Hormússundið hefur formlega verið opnað fyrir umferð samkvæmt utanríkisráðherra Írana og Bandaríkjaforseta. Erlent 17.4.2026 14:04
Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, og Nicola Sturgeon, fyrrverandi fyrsti ráðherra Skotlands, hlutu Velsældarverðlaunin í dag á Velsældarþinginu sem stendur yfir í vikunni og fer fram í Hörpu. Innlent 17.4.2026 13:52
Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Bjarni Hannesson yfirvallarstjóri Golfklúbbs Mosfellsbæjar hefur í mörg horn að líta. Nú er völlurinn einkar viðkvæmur því undir yfirborðinu sem er að bráðna er frost og þá verður grasið eins og búðingur. Bjarni varar við því að fólk sé að flækjast á vellinum nú um stundir. Innlent 17.4.2026 13:31
Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Íbúar í Garðabæ hafa margir hverjir lýst yfir áhyggjum af niðurníðslu húsa á Vífilsstöðum, sem að margra mati voru virðuleg hér áður fyrr. Börn og ungmenni hafa gert það að vana sínum að brjótast inn í húsin en Garðabær og talsmenn Landspítalans segjast kappkosta að tryggja öryggi á svæðinu. Áform eru um að gera húsin upp í sinni upprunalegu mynd í samráði við Minjastofnun. Innlent 17.4.2026 13:11
Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Reykjavíkurborg hefur gefið út stafrænt Reykjavíkurkort sem meðal annars er hægt að nota í sundlaugum borgarinnar. Kortið er hluti af nýrri stafrænni lausn. Innlent 17.4.2026 13:10
Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Áhugi norska ríkisolíufélagsins Petoro á frekari olíuleit á Drekasvæðinu virðist takmarkaður ef marka má svar þess við fyrirspurn Austurfréttar. Félagið hafi skilað inn rannsóknarleyfi sínu því ekki væri talið að þar leyndist einhver olía að ráði. Innlent 17.4.2026 12:59
Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Costas Kadis sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins segir engar aðildarviðræður að sambandinu vera eins. Mörg dæmi séu um að tekið sé sérstakt tillit til mismunandi umsóknarríkja, líkt og í tilviki Íslands og sjávarútvegsmála. Hann segir samningaviðræður við sambandið raunverulegar samningaviðræður. Innlent 17.4.2026 12:47
„Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Formaður Miðflokksins segir stjórnarliða annað hvort viljandi eða óviljandi hafa sagt þinginu og þjóðinni ósatt varðandi eðli þeirra viðræðna við Evrópusambandið, sem kosið verður um í ágúst. Þingmaður Viðreisnar vísar því á bug og segir ekki hægt að plata þjóðina inn í ESB. Innlent 17.4.2026 12:05
Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi þingmaður Flokks fólksins, hefur tekið sæti sem aðalmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, tveimur dögum eftir að hann tók við sæti í umhverfis- og samgöngunefnd. Innlent 17.4.2026 11:51