Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Árni Sæberg skrifar 14. september 2026 09:52 Guðmundur Björgvin Helgason er ríkisendurskoðandi. Vísir/Vilhelm Ríkisendurskoðun hefur samið við tvö erlend systurembætti um að þau taki að sér að gera svokallaða jafningjaúttekt á embættinu. Um er að ræða franska endurskoðunardómstólinn (Cour des comptes) og litáísku ríkisendurskoðunina (Valstybés kontrolé).
Í tilkynningu þess efnis segir að viljayfirlýsing um úttektina hafi nýlega verið undirrituð af æðstu yfirmönnum embættanna, þeim Guðmundi B. Helgasyni ríkisendurskoðanda, Amélie de Montchalin, forseta franska endurskoðunardómstólsins, og Irena Segalovičienė, ríkisendurskoðanda Litáens. Samkvæmt viljayfirlýsingunni muni úttektin lúta að vinnubrögðum og aðferðum Ríkisendurskoðunar, annars vegar á sviði fjárhagsendurskoðunar og hins vegar á sviði stjórnsýsluendurskoðunar. Meginmarkmiðið sé að kanna hvort vinnubrögðin og aðferðirnar séu í samræmi við staðla og leiðbeiningar sem Alþjóðasamtök ríkisendurskoðana (INTOSAI) hafi gefið út. Ljúka störfum árið 2028 Hópur reyndra sérfræðinga frá Frakklandi og Litáen muni framkvæma úttektina samkvæmt aðferðafræði sem almennt sé beitt í úttektum af þessu tagi. Sérfræðingarnir muni meðal annars rýna margvísleg gögn og ræða við starfsfólk embættisins, alþingismenn og stjórnendur ráðuneyta og stofnana. Vinnan hafi hafist nú í september og stefnt sé að því að henni ljúki á fyrri hluta ársins 2028. Niðurstöður verði settar fram í skýrslu, sem send verði Alþingi og birt á vef embættisins Bretar, Hollendingar, Svíar og Norðmenn þegar tekið Ríkisendurskoðun út Loks segir að þess megi geta að tvívegis áður hafi verið gerð jafningjaúttekt á Ríkisendurskoðun. Árið 1997 hafi breska ríkisendurskoðunin (National Audit Office – NAO) gert slíka úttekt og á árunum 2012-2013 hafi hollenska ríkisendurskoðunin (Algemene Rekenkamer), sænska ríkisendurskoðunin (Riksrevisisionen) og norska ríkisendurskoðunin (Riksrevisjonen) gert jafningjaúttekt á embættinu.
Ríkisendurskoðun Alþingi Stjórnsýsla Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira