Alþingi

Alþingi

Fréttir af löggjafarþingi Íslendinga, þingmönnum og fleiri tengdum málum.

Fréttamynd

Breytingar hjá Við­reisn eftir af­sögn Guð­brands

Sigurjón Njarðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar. Í hans stað hefur Emilía Björt Írisardóttir Bachmann verið ráðin sem lögfræðingur þingflokksins. Ráðist var í breytingarnar í kjölfar afsagnar Guðbrandar Einarssonar sem þingmaður.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Breið sam­staða á Al­þingi og Mið­flokkurinn aftur kominn um borð

Alþingi samþykkti í gær fyrstu formlegu varnar- og öryggisstefnu Íslands með stuðningi þingmanna allra flokka á Alþingi sem viðstaddir voru atkvæðagreiðsluna. Í umræðu um atkvæðagreiðsluna kepptust þingmenn við að koma upp í pontu og fagna þessum áfanga og hrósa hver öðrum fyrir samstarfið og þá vinnu sem lögð var í að ná breiðri sátt um málið.

Innlent
Fréttamynd

Tók Indriða í pontu og upp­skar hláturs­kast í þing­sal

Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, gerði verulegar athugasemdir við tæknibúnað Alþingis í umræðu um störf þingsins á Alþingi í dag. Jón kvartaði meðal annars yfir gömlum tæknibúnaði, atkvæðagreiðslutökkum sem eigi það til að klikka og lélegri hljóðvist sem komi sér afar illa fyrir fólk eins og hann sem heyrir illa. Tónninn í ræðunni minnti allnokkuð á persónuna Indriða, sem Jón Gnarr lék sjálfur í Fóstbræðrum á sínum tíma, en undir lok ræðunnar tók Jón líkindin alla leið og rifjaði upp þekktar línur Indriða um bank í ofnum. Ræða Jóns uppskar mikil hlátrasköll í þingsal og forseti þingsins kvaðst taka undir athugasemdirnar.

Lífið
Fréttamynd

„Við eigum ekki að vera hrædd við að taka um­ræðuna“

Ummæli Jens Garðars Helgasonar, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, þess efnis hvort ekki sé tímabært að huga að því að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima og taki þátt í uppbyggingarstarfinu, féllu í grýttan jarðveg – heldur betur. Jens Garðar var ekki mjög skekinn þegar ofsafengin viðbrögðin voru borin undir hann.

Innlent
Fréttamynd

Daði Már kennir olíu­fé­lögunum um

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir aukningu verðbólgu mikið áhyggjuefni. Hann vísar því á bug að aukningin skýrist af gjaldahækkunum ríkisstjórnarinnar og segir olíufélög og bílaumboð bera ábyrgðina.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Leigu­bílar verði á lituðum nú­meraplötum

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra leggur til að leigubílar verði auðkenndir með lituðum númeraplötum og að þeir sem ætli að þreyta próf til að aka leigubíl geri það án utanaðkomandi aðstoðar. Þetta leggur ráðherra til í tillögu í samráðsgátt um ýmsar breytingar á reglugerð um leigubifreiðaþjónustu.

Innlent
Fréttamynd

Er­lendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Ís­lendingum

Stór hluti þeirra umsagna sem bárust um frumvarp um lagareldi barst erlendis frá og virðist hægt að rekja þær til alþjóðlega fyrirtækisins Patagonia. Atvinnuvegaráðherra og þingmenn hafa lýst yfir áhyggjum vegna þessa og segja erlent fyrirtæki reyna að hafa áhrif á íslenska löggjöf.

Innlent
Fréttamynd

Óttast að út­lendinga­frum­varpið þjóni ekki til­gangi sínum

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að með breytingartillögu sinni myndi frumvarp dómsmálaráðherra um afturköllun alþjóðlegrar verndar síbrotamanna þjóna tilgangi sínum betur. Þingflokksformaður Samfylkingar segir frumvarpið bæta öryggi innanlands og koma í veg fyrir að örfá skemmd epli geti skemmt fyrir kerfinu.

Innlent
Fréttamynd

„Tel nægja að menn séu að fremja í­trekuð af­brot“

Frumvarp um afturköllun verndar brotamanna er á dagskrá Alþingis í dag og líklegt má telja að frumvarpið fljúgi í gegnum þingið. Þingmaður Miðflokksins vill þó að gengið verði lengra þannig að hægt verði að svipta þá vernd sem framið hafa ítrekuð brot, þrátt fyrir að þau teljist ekki alvarleg.

Innlent
Fréttamynd

Hagur okkar allra

Það er forgangsmál hjá ríkisstjórninni að endar nái saman í útgjöldum og tekjum ríkissjóðs og stefnt hallalausum fjárlögum á næsta ári.

Skoðun
Fréttamynd

Verka­lýðs­hreyfingin úti á túni með sitt tal?

Brynjar Níelsson lögmaður kom inn sem varaþingmaður á Alþingi í dag, þá fyrir Guðlaug Þór Þórðarson, og lét ekki bjóða sér það tvisvar; hann henti sér umsvifalaust í óundirbúnar fyrirspurnir. Brynjar átti erindi við Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra og þá með vísan til fortíðar hans hjá verkalýðshreyfingunni en Ragnar var formaður VR.

Innlent
Fréttamynd

Þing­fundi ekki frestað vegna handboltans

Reikna má með því að framlegð á vinnustöðum landsins muni lækka verulega á þriðja tímanum í dag þegar flautað verður til leiks í viðureign Íslands og Sviss í milliriðli 2 á Evrópumótinu í handbolta.

Innlent
Fréttamynd

Að­eins tíu prósent sem leita til Stíga­móta kæra of­beldið

Meirihluti kærðra heimilisofbeldismála og tæpur helmingur kynferðisbrotamála fellur niður í meðferð lögreglu. Talskona Stígamóta segir tölfræðina staðfesta brotalamir í kerfinu og telur þörf á nýju úrræði sem myndi fela í sér einhvers konar sáttaferli þannig að brotaþoli upplifi að gerandi axli ábyrgð.

Innlent
Fréttamynd

Gæti vaknað einn daginn og ætlað á þing

Stefán Einar Stefánsson fjölmiðlamaður útilokar ekki að hann muni einn daginn skella sér í stjórnmálin og fara í framboð. Myndi hann skipta um starfsvettvang eða færa sig um set gæti valið þó einnig verið allt annað en pólitíkin. Hann myndi til að mynda hafa áhuga á að gerast rithöfundur í franskri sveit.

Lífið
Fréttamynd

„Þetta er svo­lítið ó­venju­legt, ég er ekki á þingi“

Lilja Alfreðsdóttir, sem býður sig fram til formanns Framsóknarflokksins, telur að það gæti verið styrkur fyrir flokkinn að hafa formanninn utan þings. Hún segist vera fullveldissinni, er á móti aðild að Evrópusambandinu og vill herða flóttamannalöggjöfina á Íslandi. Þá vill hún einnig ná betri tökum á efnahagsmálum. Fyrst og fremst langar hana að byggja flokkinn upp.

Innlent
Fréttamynd

„Ég á þetta og má þetta“

Heldur hitnaði í kolum, og kannski eins og við mátti búast, þegar Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins beindi fyrirspurn til Ingu Sæland formanns Flokks fólksins á Alþingi í dag. Hún vildi vita hvernig stæði á þessu hringli með málaflokka; að barnamálaráðherra væri kominn með uppbyggingu dvalarheimila á sínar herðar.

Innlent