Viðskipti innlent

Bankaskattur hækkaður um 75 prósent

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra kynnti nýtt fjárlagafrumvarp í morgun.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra kynnti nýtt fjárlagafrumvarp í morgun. Vísir/Anton Brink

Áformað er að hækka bankaskatt úr 0,145 prósentum í 0,254 prósent eða því sem nemur rúmlega 75 prósenta hækkun í nýju fjárlagafrumvarpi. Með þessu er áformað að styrkja tekjugrunn ríkissjóðs.

Segir í frumvarpinu að með breytingunni sé áætlað að skila ríkissjóði sex milljörðum króna í viðbótartekjur. Bankaskatturinn var fyrst lagður á árið 2011 og hefur skatthlutfallið tekið nokkrum breytingum síðan. Með fyrirhugaðri hækkun verður það 0,109 prósentustigum lægra en á árunum 2014–2020, þegar það var 0,376 prósent.

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra sagði í samtali við fréttastofu í morgun að ný tilhögun yrði lögð fram á haustþingi. Það liggi fyrir að ákveðinn ábati sé til í fjármálakerfinu vegna verðbólgu og eðlilegt sé að gera kröfu um að honum sé deilt.


Tengdar fréttir

Kílómetragjaldið hækkar

Lagt verður til að kílómetragjald á ökutæki auk bifreiðagjalda verði hækkuð samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi sem kynnt var í morgun. Kílómetragjald var kynnt til sögunnar í upphafi þessa árs og kom í staðinn fyrir skatta á eldsneyti.

Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum

Ríkisstjórnin hyggst kynna nýja gjaldtöku á ferðamannastöðum sem felur í sér að ferðamenn verða rukkaðir um sérstakan aðgöngumiða. Fjármálaráðherra segir um að ræða fyrirkomulag sem þekkist víða annars staðar en með þessu á að afla fimm milljarða króna til ríkissjóðs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×