Viðskipti innlent

Allt upp­selt og skellt í lás hjá Skims

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Óhætt er að segja að Íslendingar hafi tekið vel í opnun Skims. Lagerinn seldist upp á örfáum dögum.
Óhætt er að segja að Íslendingar hafi tekið vel í opnun Skims. Lagerinn seldist upp á örfáum dögum. vísir/aðsend

Verslun Skims í Kringlunni var lokað í gær eftir að lagerinn seldist upp. Stefnt er að því að opna búðina aftur í lok vikunnar þegar ný sending verður komin til landsins.

Biðröð myndaðist fyrir utan svokallaða Pop-up verslun Skims þegar hún var opnuð í Kringlunni í síðustu viku. Óhætt er að segja að vörunum hafi verið vel tekið þar sem allt hafði selst upp á sunnudag.

Verslunin verður líklega opnuð aftur í lok vikunnar.vísir/aðsend

Eigendur tískuverslunarinnar Mathilda standa að baki versluninni sem verður tímabundið í Kringlunni. Markaðsstjórinn Aldís Thea Hákonardóttir segir viðtökurnar fram úr björtustu vonum, ekki hafi verið búist við því að skella þyrfti í lás.

Verslunin var opnuð í gegnum norska umboðsskrifstofuna Infinity Agency sem einnig stendur á bak við aðrar Skims-búðir á Norðurlöndunum. Aldís segir að um sé að ræða metopnun hjá þeim hvað sölu varðar. 

Hún þorir ekki að fullyrða hvenær verslunin verður opnuð á ný. Það verði líklega í lok vikunnar þegar vörur hafa verið tollafgreiddar.

Á örfáum árum hefur Skims orðið eitt vinsælasta merkið í undir-, aðhalds- og lífsstílsfatabransanum, ekki síst vegna frægðar stofnanda merkisins, Kim Kardashian.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×