Dómsmál

Dómsmál

Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Fram­kvæmda­stjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endan­lega

Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar, hafði betur gegn íslenska ríkinu fyrir Hæstarétti í dag. Því þarf fjármála- og efnahagsráðherra að útskýra skriflega hvernig launakjör Elfu Ýrar og annarra forstöðumanna eru ákvörðuð. Það gæti útheimt heljarinnar vinnu þar sem forstöðumenn ríkisins eru um 200 talsins.

Innlent
Fréttamynd

Sýknaður af á­kæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik

Karlmaður hefur verið dæmdur til 90 daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir auðgunarbrot, brot gegn útlendingalögum og fíkniefnalagabrot. Hann var aftur á móti sýknaður af ákæru fyrir að hafa ítrekað valdið hneykslan og óspektum á almannafæri vegna ölvunar og ónæði með því að betla þar peninga af almenningi með harmonikkuspili.

Innlent
Fréttamynd

Skálm­öld stígur ölduna í héraðs­dómi

Aðal­með­ferð hófst fyrir Héraðs­dómi Reykja­víkur í dag í máli þunga­rokks­hljómsveitarinnar Skálmaldar gegn Alda Music ehf. en tekist er á um út­gáfurétt á plötunni með upp­tökum frá tón­leikum Skálmaldar og Sin­fóníu­hljómsveitar Ís­lands.

Innlent
Fréttamynd

Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti var­lega í að draga á­lyktanir út frá fram­burði drengsins

Fjölskipaður dómur Héraðsdóms Reykjaness taldi ekki unnt að slá því föstu að Helgi Bjartur Þorvarðarson hefði gerst sekur um háttsemi sem flokka megi sem önnur kynferðismök en samræði, þegar hann braust inn til tíu ára drengs í Hafnarfirði og lagðist upp í rúm til hans. Hann var sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni í stað nauðgunar og var dæmdur til 12 mánaða fangelsisvistar, þar af eru níu mánuðir skilorðsbundnir.

Innlent
Fréttamynd

Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi

Helgi Bjartur Þorvarðarson hefur verið dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir að brot gegn tíu ára dreng í Hafnarfirði. Níu mánuðir dómsins eru bundnir skilorði. Hann var ekki sakfelldur fyrir að nauðga drengnum heldur fyrir kynferðislega áreitni í hans garð.

Innlent
Fréttamynd

Sak­borningar í Gufunesmálinu mættir í Lands­rétt

Aðalmeðferð í Gufunesmálinu svokallaða hófst í Landsrétti í morgun. Þar freista þeir Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson þess að fá sautján ára fangelsisdómum fyrir manndráp hnekkt og Matthías Björn Erlingsson fjórtán ára dómi. Ríkissaksóknari lætur reyna á sýknu ungrar konu sem var ákærð fyrir að lokka fórnarlambið út af heimili sínu. Þá er hlutur ungs karlmanns sem var sakfelldur fyrir peningaþvætti undir en ákvörðun refsingar hans var frestað í héraði.

Innlent
Fréttamynd

Hæsti­réttur hlýðir ekki á Jón Þór

Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarleyfisbeiðni Jóns Þórs Dagbjartssonar, sem var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir grófa líkamsárás og tilraun til manndráps gagnvart fyrrverandi sambýliskonu sinni á Vopnafirði árið 2024.

Innlent
Fréttamynd

Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame

Hæstiréttur hafnaði beiðni stéttarfélagsins Matvís um að áfrýja dómi  um að það væri skaðabótaskylt gagnvart eigendum veitingastaðarins Flame. Ummæli starfsmanna Matvís við eftirlitsferð var talið hafa leitt til þess að hópur starfsfólks gekk út af vinnustaðnum.

Innlent
Fréttamynd

Hafi selt alls konar fíkni­efni í gegnum „Kanna­bis Inc“

Fjórir karlmenn hafa verið ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa selt ótilgreint magn af amfetamíni, hassi, maríhúana, kókaíni, MDMA, metamfetamíni, LSD, Diazepam, sveppum, nammi sem innihélt kannabis og óþekktum töflum. Í fórum þeirra fundust límmiðar merktir „Kannabis Inc“ og þeir áttu í samskiptum í gegnum spjall með sama heiti á Telegram. Einn karlmaður til viðbótar er ákærður fyrir að hafa smyglað allt að tuttugu kílóum af maríhúana til landsins.

Innlent
Fréttamynd

Eim­skip á­kært vegna sölu tveggja skipa

Héraðssaksóknari hefur ákært félögin Eimskipafélag Íslands hf. og Eimskip Ísland ehf. vegna sölu á tveimur skipum sem Umhverfisstofnun kærði til héraðssaksóknara árið 2020. Skipaflutningafélagið var kært vegna meintra brota á lögum um meðhöndlun úrgangs.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Máttu fella úr gildi skráningu Stripa­dvis­or

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði nýlega Hugverkastofuna af kröfum Stripadvisor en fyrirtækið krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður áfrýjunarnefndar hugverkaréttinda á sviði iðnaðar í máli nr. 3/2022, kveðinn upp 20. febrúar 2025, þar sem staðfest var ákvörðun Hugverkastofunnar um að fella úr gildi skráningu merkisins Stripadvisor.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Segir Stefán hafa gert at­lögu að frið­helgi einka­lífs

Lögmaður manns sem kærði tónlistarmanninn Stefán Jakobsson fyrir líkamsárás segir óásættanlegt að nýta vettvang samfélagsmiðla og fjölmiðla til að vega að persónu mannsins. Stefán var í vikunni sýknaður í málinu og er í framhaldinu hættur sem söngvari hljómsveitarinnar Dimmu. 

Innlent
Fréttamynd

„Að mínu mati lýsir þessi dómur ekki rétt­læti“

Aníta Rut Harðardóttir lögreglumaður, sem var á dögunum dæmd fyrir ólögmætar uppflettingar í LÖKE, telur dóminn ekki réttlátan. „Hvaða réttlæti er í því að handrukkarar og fíkniefnasalar geti ógnað lífi og limum einstæðings í viðkvæmri stöðu með ungt barn á framfæri?“ spyr hún.

Innlent
Fréttamynd

Kom fyrir hlerunarbúnaði en var sýknaður: „Úr­skurður græjaður núna hviss bamm búmm“

Lögreglumaður sem var ákærður fyrir að hafa komið hlerunarbúnaði fyrir í bifreið án heimildar var sýknaður á þeim grundvelli að hann hafi mátt telja að heimild lægi fyrir. Ekki var talið skipta máli að lögreglumaðurinn sem bað hann um að koma búnaðinum fyrir hefði sent honum skilaboð um að „tracker úrskurður [verði] græjaður núna hviss bamm búmm.“

Innlent
Fréttamynd

Fletti upp í LÖKE vegna meintrar fíkniefnaskuldar vandamanns

Aníta Rut Harðardóttir lögreglumaður fletti upp nöfnum fólks í skráningarkerfi lögreglunnar, LÖKE, í þeim tilgangi að ná í mann sem stofnað hafði kröfu í heimabanka fjölskyldumeðlims hennar vegna meintrar gamallar fíkniefnaskuldar. Hún var sektuð um hundrað þúsund krónur vegna athæfisins og þarf að borga tæplega 900 þúsund krónur í málskostnað.

Innlent