Kvennatónlistarhátíð Rodrigo vekur athygli Poppstjarnan knáa Olivia Rodrigo hefur sett á laggirnar tónlistarhátíð í Kaliforníu þar sem einungis tónlistarkonur koma fram. Rodrigo stígur sjálf á stokk ásamt úrvalsliði einhverra öflugustu tónlistarkvenna í heimi. Tónlist 23.6.2026 10:01
Tónlistargoðsögnin Clive Davis er látinn Clive Davis, tónlistarmógúllinn sem gegndi lykilhlutverki í velgengni listamanna á borð við Whitney Houston, Bruce Springsteen og Arethu Franklin, er látinn, 94 ára að aldri. Hann var um áratugaskeið meðal valdamestu manna í bandarískum tónlistariðnaði. Tónlist 22.6.2026 19:17
Jeremy Strong „reivaði“ við Retro Stefson Stuðsveitin Retro Stefson kom, sá og sigraði á tónleikum í tívolíinu í Kaupmannahöfn á 17. júní. Fjöldi Íslendinga í Danmörku stigu trylltan dans ásamt fjölbreyttum hópi aðdáenda og Succession leikarinn Jeremy Strong lét sig ekki vanta. Tónlist 22.6.2026 17:01
Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Rapparinn og tónlistarmaðurinn Swae Lee, sem er þekktastur fyrir lögin „Unforgettable“ með French Montana og „Sunflower“ með Post Malone og sem annar helmingur rapptvíeykisins Rae Sremmurd, heldur tónleika í Austurbæjarbíói þann 15. ágúst næstkomandi. Tónlist 11.6.2026 10:01
Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng „Ég er virkilega spennt að halda áfram að gefa út tónlist í þessum stíl,“ segir poppstjarnan Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN. Hún frumsýnir hér tónlistarmyndband ásamt rapparanum Birni við splunkunýtt lag sem heitir Vilt fá. Tónlist 10.6.2026 11:31
Madonna með heitustu dansmynd ársins Poppstjarnan Madonna var að senda frá sér framúrstefnulega og sjóðheita tónlistarmynd þar sem margar áhugaverðar dægurmenningarstjörnur koma fyrir. Madonna, sem er 67 ára, slær ekki slöku við í tónlistarbransanum, er að gefa út breiðskífuna „Confessions II“ í júlí og er sannkölluð danssenu-drottning. Tónlist 9.6.2026 10:07
Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Drake hefur verið einn vinsælasti tónlistarmaður heims síðustu fimmtán ár. Lítið hefur þó farið fyrir honum síðan harðvítugar rappdeilur hans við Kendrick Lamar náðu hápunkti fyrir tveimur árum síðan. Þangað til um miðjan síðasta mánuð þegar Drake gaf út þrjár plötur sama daginn. Plöturnar ruku upp á topp vinsældarlista en viðbrögð gagnrýnenda hafa verið misjöfn. Vísir heyrði hljóðið í þremur dyggum rapphlustendum til að ræða plöturnar og stöðu Drake. Tónlist 9.6.2026 07:02
Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum Breski tónlistarmaðurinn og lagahöfundurinn Talay Riley, sem samdi lög fyrir tónlistarmenn á borð við Britney Spears, Usher og Chris Brown, er látinn, 35 ára að aldri, eftir að hafa verið stunginn margsinnis með hnífi í Silvertown í austurhluta Lundúna föstudaginn 5. júní. Tónlist 8.6.2026 16:27
„Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ Mikið fjör var á afmælistónleikum Bubba Morthens í Laugardalshöll í gær. Uppselt var á tónleikana og tók hinn sjötugi Bubbi alla sína helstu slagara. Tónlist 7.6.2026 20:58
„Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Emilíana Torrini segist hafa upplifað ofsafenginn sviðskvíða frá því hún hóf tónlistarferil sinn fyrir þrjátíu árum. Það hafi verið galið að verða fræg sautján ára gömul og ótrúlegt hvað fólk hafi leyft sér markalaus og öfgafull samskipti við hana. Þegar hún byrjaði að svara fyrir sig lenti hún í slagsmálum við mun eldri hjón niðri í bæ. Tónlist 7.6.2026 09:01
Peabo Bryson er látinn Söngvarinn Peabo Bryson er látinn 75 ára að aldri. Hann er þekktastur fyrir að hafa sungið Óskarsverðlaunadúettinn „Beauty and the Beast“ með Celine Dion úr samnefndri kvikmynd og „A Whole New World“ með Reginu Belle úr Aladdin. Tónlist 3.6.2026 10:47
Datt af sviðinu og beint í skurð „Í gegnum tíðina höfum við alltaf sótt innblásturinn í gegnum góða tónlist, næturlífið og svínaríið. Það kemur ekki upp úr þurru að við köllum tónlist sveitarinnar sígarettu tónlist,“ segja strákarnir í hljómsveitinni Skröttum. Þeir voru að gefa út tónlistarmyndband við lagið Stressed sem þeir gerðu með Bang Gang, eða Barða Jóhannssyni. Tónlist 3.6.2026 10:02
„Stundum verður maður að segja fokk it“ „Þetta var bara fjarlægur draumur og ég þorði ekki einu sinni að hugsa um að það gæti gerst. Svo núna bara er þetta að fara að gerast og það er mjög súrrealískt,“ segir tónlistarmaðurinn Nói Klose sem hefur alla tíð elskað tónlist og er að fara að stíga á svið á Þingvöllum í júní. Tónlist 2.6.2026 20:03
„Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“ Tveir vinir sáu glufu á íslenskum viðburðamarkaði þegar kom að bókun listamanna. Þeir ákváðu að fylla upp í hana með bókunarsíðunni Outro þar sem er hægt að bóka listamenn með öruggu móti án milliliða. Nú þegar hafa 160 listamenn skráð sig hjá Outro og vinna þeir félaga í smáforriti. Tónlist 2.6.2026 09:53
Íslenskur tónlistararfur loksins aðgengilegur öllum Nótnaveita Tónlistarmiðstöðvar, stærsta nótnasafn landsins, er nú í fyrsta sinn aðgengileg á íslensku á síðunni notnaveita.is. Síðan sem var áður í umsjón Íslenskrar tónverkamiðstöðvar opnaði í fyrra undir stjórn Tónlistarmiðstöðvar á ensku og er nú loksins opin almenningi á íslensku. Tónlist 1.6.2026 13:55
Mugison þakkar innilega fyrir sig Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, vann til verðlauna í gær en hann hlaut Eddu fyrir tónlistina í þáttunum Felix & Klara. Hann segist ekki hafa verið að búast við verðlaununum en að það hafi verið algjör unun að geta unnið ásamt Ragnari Bragasyni og þakkar einnig fjölda fólks sem kom að verkinu. Tónlist 30.5.2026 21:47
Segir gagnrýnina til marks um normalíseringu barnagirndar Poppstjarnan Olivia Rodrigo er vægast sagt ósátt við gagnrýni um að kjóllinn sem hún klæddist í tónlistarmyndbandi við lagið „Drop Dead“ geri hana barnslega. Tónlistarkonan telur slíka gagnrýni til marks um það hvernig barnagirnd er normalíseruð í menningunni. Tónlist 29.5.2026 11:26
Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Fyrir tuttugu árum ákvað Mugison að hætta sem raftrúbador og byrja með alvöru rokkband. Fyrsta giggið var tekið á Prikinu fyrir sléttum tuttugu árum og af því tilefni heldur Mugiband afmælistónleika á staðnum í kvöld. Þar að auki er nóg framundan hjá Mugison sem heldur náttúrutónleika um allt land í sumar. Tónlist 28.5.2026 13:06
Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum „Lagið dregur fram þá togstreitu sem getur myndast þegar leitast er eftir samþykki, jafnvel á kostnað eigin velferðar,“ segir tónlistarkonan Diljá Pétursdóttir sem var að gefa út lagið Ó Rómeó ásamt tónlistarmyndbandi. Tónlist 28.5.2026 11:30
Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Birgitta Haukdal og Herra hnetusmjör eru höfundar og flytjendur lagsins „Flugeldar“ sem er Þjóðhátíðarlagið í ár. Þau frumfluttu lagið í Brennslunni á FM957 í morgun en það fangar eftirvæntinguna eftir því að mæta í Herjólfsdalinn. Tónlist 22.5.2026 10:11
Blóð, sviti og tár skemmtilegra en að prumpa út lögum „Við reynum að segja já við öllu sem býðst og afla okkur reynslu, sama hvert giggið er og stundum hafa þau verið ansi fyndin,“ segja þær Bára Katrín og Guðrún Ýr sem tilheyra stelpusveitinni Dóra & döðlurnar. Hljómsveitin, sem er skipuð sex dömum, hefur komið fram víða um land og eru stelpurnar þekktar fyrir líflega sviðsframkomu. Tónlist 22.5.2026 07:01
Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Stefán Hilmarsson heldur sextugsafmælistónleika í lok júní og sendir frá sér sólóplötuna Ár & dagar á næstu vikum. Hann frumflutti lagið „Hringd'í mömmu“ af plötunni á Bylgjunni í gær en upphaflega átti Björgvin Halldórsson að syngja það með honum. Örlögin gripu í taumana þegar Björgvin féll sviplega frá í síðasta mánuði. Tónlist 21.5.2026 16:51
Stendur með Bríeti í deilunni við Pálma Sara Pétursdóttir, sem áður gekk undir nafninu Glowie, segist standa með tónlistarkonunni Bríeti í deilum hennar við Pálma Ragnar Ásgeirsson, pródúsent og lagahöfundi. Glowie og Pálmi unnu saman áður en hún gerði útgáfusamning við Columbia Records árið 2017. Við tók áralangt samstarf Pálma með Bríeti en hún hefur nú krafið þrotabú félags, sem var í eigu Pálma, um greiðslu átta milljóna króna. Tónlist 19.5.2026 15:45
Þá var kátt í höllinni Það var gríðarleg stemning í Laugardalshöllinni á föstudagskvöldið þegar rapparinn Árni Páll, jafnan þekktur sem Herra Hnetusmjör, steig á svið fyrir framan þúsundir manna. Tónlist 18.5.2026 11:33