Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Lovísa Arnardóttir skrifar 19. ágúst 2026 14:16 Gestir dönsuðu og sungu með tónlistinni, á meðan aðrir kysstust. Daníel Starrason Tónlistarhátíðin Kveldúlfur fór fram í annað sinn síðustu helgi á Hjalteyri. Sara Bjarnason skipuleggjandi hátíðarinnar segir hátíðina hafa heppnast gríðarlega vel. „
Gestafjöldi var fjórfaldur á við í fyrra og fór allt vel fram. Við vorum alveg fáránlega heppin með veður, sólin skein allan tímann og fjörðurinn skartaði sínu fegursta,“ segir Sara. Hún segir mikla ánægju meðal gesta, skipuleggjenda og tónlistarfólks. „Við erum hreinlega í skýjunum. Fólk sat í sólinni og spjallaði, fór í pottinn og gæddi sér á grískum skyndibita sem sló algjörlega í gegn frá Souvlaki Greek Taste,“ segir hún en matarvagninn er venjulega að finna á Akureyri. Gestir skemmtu sér vel í sólinni. Daníel Starrason „Svo voru veitingastaðirnir Eyri á Hjalteyri og Baccalao á Hauganesi með sameiginlegt útieldhús þar sem boðið var upp á hreindýraborgara, hægeldað pulled pork og kjötsúpu.“ Sara segir gesti auk þess hafa upplifað mikla tónlistarveislu á hátíðinni. Benni Hemm Hemm fékk gesti í fjöldasöng. Daníel Starrason „Benni Hemm Hemm fékk óvart alla með sér í fjöldasöng er hann flutti París Norðursins, í minningu síns besta vinar, Svavars Péturs / Prins Póló. Það var ekki laust við nokkur tár hjá þeim sem þekktu Prinsinn. Stjarna fæddist þegar Pitenz steig á svið og Inspector Spacetime kveikti hressilega í dansgólfinu.“ Hún segir stemninguna svo hafa stigmagnast út kvöldið. „Bent reif sig að sjálfsögðu úr að ofan og Hjálmar slógu botninn í hátíðina með sínum einstaka hætti. Það var alveg magnað að hlusta á þá flytja Leiðina okkar allra og sjá hvað hátíðargestir ljómuðu allir, eins og hver og einn ætti sína eigin tengingu við lagið. Fjörinu lauk um eitt eftir miðnætti, þó að einhverjir hafi verið áfram og skemmt sér,“ segir Sara og að skipuleggjendur finni fyrir miklum stuðningi frá Hjalteyringum við að halda áfram með hátíðina. Hjálmar stigu síðastir á svið. Daníel Starrason Hægt var að líta inn á vinnustofur listamanna á Hjalteyri. Daníel Starrason Daníel Starrason Daníel Starrason Saint Pete í stuði.Daníel Starrason Fjölbreytt dagskrá var á hátíðinni. Daníel Starrason Gestafjöldi var fjórfaldur miðað við í fyrra. Daníel Starrason Daníel Starrason
Tónleikar á Íslandi Hörgársveit Tengdar fréttir Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Tónlistarhátíðin Kveldúlfur verður haldin í annað sinn um helgina. Hátíðin fer fram á Hjalteyri laugardaginn 15. ágúst 2026, þar sem fjölbreyttur hópur íslensks tónlistarfólks kemur fram. 13. ágúst 2026 13:02 Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Næsta laugardag verður í fyrsta sinn haldin tónlistarhátíðin Kveldúlfur á Hjalteyri í Eyjafirði. Hátíðin er lítil í þetta fyrsta sinn og er nefnd eftir síldarverksmiðjunni á staðnum sem var rekin þar um árabil. 10. júlí 2025 20:02 Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Fundu ástina á Domino's Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Fleiri fréttir Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira
Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Tónlistarhátíðin Kveldúlfur verður haldin í annað sinn um helgina. Hátíðin fer fram á Hjalteyri laugardaginn 15. ágúst 2026, þar sem fjölbreyttur hópur íslensks tónlistarfólks kemur fram. 13. ágúst 2026 13:02
Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Næsta laugardag verður í fyrsta sinn haldin tónlistarhátíðin Kveldúlfur á Hjalteyri í Eyjafirði. Hátíðin er lítil í þetta fyrsta sinn og er nefnd eftir síldarverksmiðjunni á staðnum sem var rekin þar um árabil. 10. júlí 2025 20:02