Tónleikar á Íslandi

Fréttamynd

„Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran

„Mín skilaboð eru alltaf: Ekki láta það trufla þig hvað fólki finnst. En það síðasta sem þig langar er að vera rappari sem feilaði í litlu samfélagi eins og Akureyri. Þessar áhyggjur urðu samt rosaleg hvatning fyrir mig,“ segir rapparinn og rísandi stjarnan Pétur Már Guðmundsson, sem flestir þekkja sem heilagan þar sem hann notast við listamannanafnið Saint Pete. 

Tónlist
Fréttamynd

Fresta öðrum tón­leikum sínum hér­lendis vegna ó­vænts frá­falls ást­vinar

Tónleikum þungarokkshljómsveitarinnar Manowar sem áttu að fara fram í Hörpu í nóvember hefur verið frestað þar til í desember. Er það vegna þess að fjölskyldumeðlimur bassaleikara hljómsveitarinnar féll óvænt frá. Hljómsveitin hefur áður þurft að fresta tónleikum sínum á Íslandi en það var í fyrsta sinn sem sveitin lagði leið sína til landsins, þann 1. febrúar í fyrra. Þá var flugið þeirra fellt niður vegna óveðurs.

Tónlist
Fréttamynd

„Ég ætlaði í lög­fræði en tón­listin tók völdin“

„Þegar ég byrjaði í Versló stefndi ég á að verða lögfræðingur. Ég þekki mikið af lögfræðingum, viðskiptafræðingum og fólki sem hefur lagt fyrir sig misgáfulega hluti á æðri stigum menntasviðs. Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin,“ segir Magnús Jóhann Ragnarsson píanóleikari.

Tónlist
Fréttamynd

Dauðkveið fyrir tón­leikunum en þeir komu á ó­vart

Minnismiði til sjálfs mín: „Ekki hlusta á Valdimar í bílahátölurunum á leiðinni í vinnuna. Hrá barítónröddin er einhvern veginn á svipuðu tíðnisviði og hljóðin í vélinni og dekkjunum. Útkoman verður afar bjöguð — og hrikalega leiðinleg.“

Gagnrýni
Fréttamynd

Lifa í draumi og heiðra Eyfa

Hljómsveitin Lón með tónlistarmanninn Valdimar Guðmundsson í fararbroddi hafa sent frá sér ábreiðu af goðsagnakenndu íslensku dægurlagi. Tilgangur útgáfunnar er að heiðra Eyjólf Kristjánsson, sem er betur þekktur sem Eyfi.

Tónlist
Fréttamynd

HAM boða enda­lok alls

Þungarokkshljómsveitin HAM er um þessar mundir að leggja lokahönd á nýja breiðskífu sem vonast er eftir á streymisveitu í október og á tvöföldum vínyl í nóvember. Platan heitir Endalok alls og er sú ellefta sem sveitin sendir frá sér.

Tónlist
Fréttamynd

Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu

Stemmingin var rífandi góð þegar Nova fagnaði útgáfu ábreiðunnar „Einhver elskar mig“ eftir Tatjönu í Bíó Paradís. Dýnamíska dúóið Cyber hitaði upp fyrir Tatjönu sem flutti síðan útgáfu sína af sígildum smelli Páls Óskars auk fleiri laga.

Tónlist
Fréttamynd

Myndaveisla: Lita­gleði og lög­regla á Tóna­flóði á Arnarhóli

Gríðarlegur fjöldi fólks var samankominn í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi þegar Menningarnótt fór fram með tilheyrandi gleði og glaum. Það voru ríflega fjögur hundruð viðburðir á dagskrá en þar má meðal annars nefna bekkpressukeppni, vöfflukaffi, spunamaraþon og blómakransagerð.

Lífið
Fréttamynd

Týndi far­angrinum og klæddist ís­lensku merki frá toppi til táar

Rapparinn Swae Lee hélt tónleika í Austurbæjarbíói um helgina og skemmti sér svo á næturklúbbnum Auto. Farangur hans týndist hins vegar á leið til landsins og því góð ráð dýr. Eftir að hafa leitað sér að nærbuxum í götufatabúðinni Coppermine heillaðist hann af merkinu, verslaði stóran hluta af lagernum og var klæddur í merkið frá toppi til táar á tónleikunum.

Lífið
Fréttamynd

Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð

Írski söngvarinn Hozier var einn þeirra fjölmörgu sem lögðu leið sína til Íslands í síðustu viku þegar almyrkvi gekk fyrir sólu miðvikudaginn 12. ágúst síðastliðinn. Tónlistarmaðurinn nýtti tímann vel og fór meðal annars á tónlistarhátíðina EFTIR sem vinur hans Colm O'Herlihy hélt ásamt samstofnendum Inni music og fleiri vel völdum.

Tónlist
Fréttamynd

Hunter Schafer al­sæl eftir Ís­lands­för

Bandaríska stjarnan Hunter Schafer var stödd hér á landi á dögunum. Miðað við myndir hennar hefur dvöl hennar hérlendis verið ævintýri líkust og leikkonan virðist lítið hafa kippt sér upp við það þótt veðrið hafi ekki alltaf leikið við hana meðan á dvöl hennar stóð.

Lífið
Fréttamynd

Vin­sælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi

Eftir tvær metsölusýningar í Hörpu á síðasta ári snýr vinsælasta ABBA-sýning heims Mania: The ABBA Tribute aftur til Íslands og heldur tónleika í Hörpu föstudaginn 4. september og í Hofi á Akureyri í fyrsta sinn laugardaginn 5. september.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins

Carola Häggkvist, ein ástsælasta söngkona Norðurlanda og sigurvegari Eurovision, kemur til Reykjavíkur í nóvember með glænýja tónleikasýningu þar sem hún flytur lögin sem hafa markað feril hennar og fléttar á milli þeirra sögur úr eigin lífi.

Tónlist
Fréttamynd

Brekkusöngur á jafn­sléttu há­punkturinn

Töluverður fjöldi fólks hefur gert sér ferð á Selfoss þar sem bæjarhátíðin Sumar á Selfossi fer nú fram. Íbúar hafa lagt mikinn metnað í skreytingar í húsagötum en í kvöld fer fram brekkusöngur á jafnsléttu og alvöru sveitaball.

Lífið
Fréttamynd

Veðurvélin á leið á Hellis­sand fyrir almyrkvahátíð

Á Hellissandi rís nú hátíðarsvæði þar sem stefnt er á að taka á móti þúsundum erlendra og innlendra gesta á tónlistar- og viðburðahátíðina Iceland Eclipse. Von er á veðurvél til að tryggja gott veður. Skipuleggjandi segir að búið sé að hugsa fyrir öllu. Fólki verði skutlað í verslun og sund og tiltekt sé þaulskipulögð á meðan og eftir viðburð.

Tónlist
Fréttamynd

„Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“

Hinsegin dagar standa nú yfir og er fjöldi viðburða á dagskrá næstu daga, svo sem glansverkstæði, hýr húslestur, trans kirkja og hinsegin hraðstefnumót. Listrænn stjórnandi opnunarhátíðarinnar segir bakslag í samfélaginu augljóst en að hinsegin fólk sé óhrætt við að ögra. Í ár sé sérstaklega kappkostað að gera ungu hinsegin fólki hátt undir höfði og er lag hátíðarinnar samið og flutt af hinum átján ára gamla Guðjóni Þorgils Kristjánssyni.

Innlent
Fréttamynd

Fyrsta platan í tuttugu ár

Bogomil Font og Greiningardeildin senda frá sér á föstudaginn plötuna Haf þú ekki áhyggjur af því, fyrstu plötu Bogomils í tuttugu ár. Sigtryggur Baldursson, Bragi Valdimar og Kiddi hjálmur standa að baki verkefninu og er að finna tíu ný frumsamin „kulda-kalypsólög“ (sem hafa sum þegar ratað í eyru landsmanna).

Lífið