Kanye treður upp í Rússlandi Magnús Jochum Pálsson skrifar 19. ágúst 2026 13:40 Kanye West er á tónleikaferðalagi um heiminn um þessar mundir. EPA Rapparinn Ye, betur þekktur sem Kanye, West heldur tvenna tónleika í Sankti Pétursborg í Rússlandi í október. West er stærsti tónlistarmaðurinn sem treður upp í landinu síðan Rússar réðust inn í Úkraínu í febrúar 2022. Á síðustu árum hafa nöfn á borð við Jason Derulo, DaBaby, Flo Rida, Akon og Timbaland komið þar fram.
Tónleikarnir fara fram 10. og 11. október í Gazprom-höllinni í Sankti Pétursborg og hófst miðasala á þá á mánudaginn. Rússneskir aðdáendur voru fljótir að tryggja sér miða, dýrustu miðarnir sem kostuðu allt að 1.850 Bandaríkjadali (rúmlega 225 þúsund krónur) seldust á nokkrum klukkutímum og í lok dags höfðu allir miðarnir selst upp. Sögusagnir um tónleika Kanye í Rússlandi hafa verið á sveimi síðustu ár. Sérstaklega eftir að hann ferðaðist til Moskvu árið 2024 til að vera viðstaddur afmæli rússneska fatahönnuðarins Gosha Rúbtsjinskí. Kanye hefur verið í töluverðu brasi með sjálfan sig síðustu ár og verið harðlega gagnrýndur fyrir andgyðingleg ummæli sín, notkun á hakakrossi nasista í varningi sínum og útgáfu lagsins „Heil Hitler“. Rapparinn hefur reynt að bæta ímynd sína og gera upp fyrir hegðunina, meðal annars með heilsíðuauglýsingu í Wall Street Journal þar sem hann baðst afsökunar á hegðun sinni. „Ég er ekki nasisti eða gyðingahatari. Ég elska gyðinga,“ sagði í auglýsingunni. Þrátt fyrir það yfirklór hefur rapparinn mætt mikilli andstöðu og mótmælum í þau skipti sem hann hefur reynt að koma fram í bæði Evrópu. Rapparanum var meinað af breskum yfirvöldum að koma til landsins og var tónlistarhátíðinni Wireless, þar sem hann var aðalnúmerið, aflýst í kjölfarið. Þá hefur tónleikum hans í Frakklandi, Ítalíu og Póllandi einnig verið aflýst á síðustu mánuðum. Kanye hefur þó ekki komið alls staðar að lokuðum dyrum, lönd í Austur-Evrópu og við Kákasusfjöll hafa tekið honum sérstaklega fagnandi. Hann kom fram fyrir 118 þúsund manns í Istanbúl í Tyrklandi í maí, 70 þúsund tónleikagesti í Tbilisi í Georgíu og svipað marga í Arnheim í Hollandi í júní. Þá tróð hann upp í Tirana og Madríd í síðasta mánuði og í Algarve og Almaty í Kasakstan fyrr í þessum mánuði. Spurningin er þó hvernig Rússar bregðast við tónleikunum en þar er bæði fjölmennur hópur sem vill skera á tengsl Rússa við vesturlönd og svo er löng fangelsisvist við því að lýsa yfir stuðningi við nasista. Stjórnmálamaðurinn Nikolaí Nóvitskjov hefur þegar kallað eftir rannsókn á hendur rapparanum og sagt að aflýsa ætti tónleikunum nema rapparinn lýsti yfir stuðningi við landið.
Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Mál Kanye West Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Fundu ástina á Domino's Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Fleiri fréttir Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira