„Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Hollywood-leikarinn John Goodman segist enn vera að venjast andlitinu á sér eftir að hafa lést um hátt níutíu kíló á síðustu árum. Hann glímdi lengi við áfengissýki og varð edrú árið 2007 en viðhélt óheilbrigðum lífsstíl með því að borða óhóflega. Hann hugsi lítið um almenningsálit sem sé þó ákveðinn partur af bransanum. Bíó og sjónvarp 3.11.2026 12:00
Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Gamanmyndin Iceguys: The Movie var frumsýnd í síðustu viku og fór beint á toppinn á aðsóknarlista íslenskra bíóhúsa. Tæplega 6.600 gestir sáu kvikmyndina um helgina sem var sýnd í tíu bíósölum. Um 35 þúsund manns hafa séð íslenskar kvikmyndir í bíó í ár og fimm íslenskar kvikmyndir farið yfir fjögur þúsund gesta-múrinn. Bíó og sjónvarp 3.11.2026 10:21
Skaut sig óvart í fótinn Hollywood-leikstjórinn Michael Mann lenti í því óhappi að skjóta sig í fótinn á skotsvæði í Los Angeles á laugardag. Leikstjórinn var fluttur á sjúkrahús þar sem hlúð var að sárum hans sem reyndust vera minniháttar. Bíó og sjónvarp 2.11.2026 09:57
Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum „Ég var þekktur sem strákurinn sem elskaði Glee og eldri strákarnir voru oft á göngunum að öskra „Binni Glee“ á mig. Ég veit ekki hvort það hafi átt að vera móðgun en ég tók því ótrúlega vel. Það er þeim að þakka að ég sé Binni Glee,“ segir raunveruleikastjarnan Brynjar Steinn, sem er líklega þekktasti Glee-aðdáandi landsins og er fullur tilhlökkunar fyrir endurkomu þáttanna. Bíó og sjónvarp 26.10.2026 20:01
Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Fjölmenni var á frumsýningu rúmensk-norsku kvikmyndarinnar Fjarðar í Bíó Paradís á fimmtudagskvöldið. Kvikmyndagerðarfólk, blaðamenn og menningarsprautur horfðu þar á þetta æsispennandi fjölskyldudrama sem vann Gullpálmann á Cannes fyrr í ár. Bíó og sjónvarp 23.10.2026 16:57
Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Fámennur hópur leikara mun spreyta sig í prufutökum fyrir hlutverk breska njósnarans 007 á næstu dögum. Reiknað er með því að í það minnsta þrír leikarar taki þátt í tökunum í von um að taka við af hinum breska Daniel Craig sem lék njósnarann James Bond frá árinu 2006 til ársins 2021. Bíó og sjónvarp 22.10.2026 22:16
White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Kanadíski leikarinn Adam DiMarco, sem sló í gegn í annarri seríu gamanþáttanna White Lotus, hefur bæst í leikhóp kvikmyndarinnar Hafið er svart. Hann mun þar leika á móti Baltasar Kormáki og Ólafi Darra í spennumynd um martraðarkennda sjóferð. Bíó og sjónvarp 22.10.2026 14:49
Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Framkvæmdastjóri Smárabíós segist varla hafa undan við að svara fyrirspurnum um það hvenær heimildarmyndin You can See Everything mætir í kvikmyndahúsin. Hann segir allar líkur á því að myndin verði sýnd hér á landi, von sé á svörum í vikunni vegna réttindamála en framkvæmdastjórinn segist ekki muna eftir annarri eins eftirvæntingu fyrir einni mynd. Myndin muni líklega fara í kvikmyndahús í lok nóvember á Íslandi. Bíó og sjónvarp 22.10.2026 14:41
Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Kanadíski leikstjórinn Kari Skogland mun leikstýra spennuþáttaseríunni Stóra bróðir (Vigilant á ensku) sem byggir á samnefndri glæpasögu eftir Skúla Sigurðsson og fjallar um blaðamann sem tekst á við dularfulla tálbeituglæpi. Serían hefur verið í þróun í nokkur ár, Ólafur Darri Ólafsson leiðir handritaskrifin og hefjast tökur hérlendis í lok mánaðar. Bíó og sjónvarp 22.10.2026 14:09
Glee snýr aftur Tónlistardramaþættirnir Glee snúa aftur á skjáinn og verða endurræstir með nýrri seríu á streymisveitunum Disney+ og Hulu. Litlar upplýsingar liggja fyrir um seríuna sem mun þó innihalda bæði ný andlit og einhverja leikara úr upprunalegu seríunni. Bíó og sjónvarp 21.10.2026 15:54
Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Tvenn ný þekkt nöfn bætast nú við langan lista þeirra sem farið hafa með aðalhlutverk í bandarísku spennuþáttunum True Detective en þeir Nicolas Cage og Antonio Banderas eru staðfestir að leika í næstu þáttaröð. Þættirnir hafa notið mikilla vinsælda og var síðasta þáttaröð True Detective: Night Country tekin að mestu leyti upp á Dalvík. Bíó og sjónvarp 17.10.2026 09:45
Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Kvikmyndin The Social Reckoning, sem fjallar um stóra Facebook-lekann árið 2021 sem afhjúpaði varhugaverða stjórnunarhætti fyrirtækisins, hefur fengið dræmar viðtökur hjá bæði gagnrýnendum og áhorfendum. Viðtökurnar hafa verið svo dræmar að hætt var við sýningu á kvikmyndinni á Íslandi, um þremur vikum fyrir frumsýningu. Bíó og sjónvarp 16.10.2026 13:12
Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Leikstjórinn Steven Soderbergh mun klára kvikmyndina The Batman: Part II vegna fjölskyldumála leikstjórans Matt Reeves. Fyrri myndin kom út vorið 2022 og átti framhaldið að koma út þremur árum síðar en útgáfunni hefur verið seinkað í þrígang til ársbyrjunar 2028. Ekki hefur komið fram hvers vegna Reeves steig til hliðar en um alvarlegt mál virðist vera að ræða. Bíó og sjónvarp 16.10.2026 11:24
Stelpurnar snúa aftur Gamanþættirnir Girls eftir Lenu Dunham munu snúa aftur á HBO og hefjast tökur á næsta ári, tíu árum eftir að sjötta serían kom út. Nýja þáttaröðin verður fimm þættir og snúa aðalstelpurnar fjórar allar aftur þó óvíst sé með Hollywood-stjörnuna Adam Driver. Bíó og sjónvarp 14.10.2026 10:21
Horfa fram á sögulegt tap Diggers Stórmyndin Digger stefnir í að skrá sig á spjöld sögunnar vegna dræmrar aðsóknar. Heildartap myndarinnar gæti numið allt að 29 milljörðum króna þegar kostnaður markaðsherferðar og hlutur bíóhúsa af tekjum myndarinnar er tekinn inn í jöfnuna. Fari svo gæti hún skipað sér í flokk með stærstu floppum kvikmyndasögunnar. Bíó og sjónvarp 13.10.2026 15:23
Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Fleiri Pabbahelgar er ný íslensk gamandramaþáttaröð í sex hlutum sem verður frumsýnd á RÚV sunnudaginn 18. október. Þáttaröðin er framhald af Pabbahelgum og fjallar um Karen, einstæða þriggja barna móður og hjónabandsráðgjafa, sem þarf að takast á við unglingsbörn, fyrrverandi eiginmann á sama tíma og íslenskan stefnumótaheim. Bíó og sjónvarp 13.10.2026 12:00
Elma seld til útlanda Íslenska framleiðslufyrirtækið Glassriver hefur samið við alþjóðlega dreifingaraðilann Mediawan Rights um erlenda dreifingu íslensku glæpaþáttaraðarinnar Elmu. Þættirnir byggja á Marrinu í stiganum eftir Evu Björgu Ægisdóttur og verða frumsýndir hérlendis á Sjónvarpi Símans 15. október næstkomandi. Bíó og sjónvarp 9.10.2026 10:55
Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Michael Douglas hefur gengist við enn einu framhjáhaldi í markaðsherferðinni fyrir nýja ævisögu sína. Nýverið greindi leikarinn frá því að hann hefði haldið framhjá fyrri eiginkonu sinni, Diöndru Luker, með leikkonunni Kathleen Turner. Í ævisögunni kemur fram að Douglas hafi líka haldið framhjá Luker með leikkonunni Jean Tripplehorn við tökur á kynferðislega spennutryllinum Basic Instinct. Bíó og sjónvarp 7.10.2026 16:12
Hrútar orðnir að kóreskum kálfum Íslenska kvikmyndin Hrútar eftir Grím Hákonarson hefur verið endurgerð í annað sinn. Ástralir endurgerðu hana fyrst árið 2020 með stórstjörnunni Sam Neill og í vikunni verður suður-kóresku endurgerðina Cattle Run frumsýnd með kálfum í stað hrúta. Bíó og sjónvarp 5.10.2026 14:33
La Gradiva hlaut Gullna lundann La Gradiva eftir Marine Atlan hlaut Gullna lundann, aðalverðlaunin á kvikmyndahátíðinni RIFF, en hann var afhentur í Háskólabíó í kvöld. Alls voru sex verðlaun veitt. Bíó og sjónvarp 3.10.2026 18:47
„Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Mosfellingarnir Steindi Jr. og Dóri DNA snúa aftur með aðra seríu af ferðaþáttunum 1 stjörnu á Sýn+ í nóvember. Þar heimsækja félagarnir sex nýjar borgir og kynnast því hallærislegasta, skrýtnasta og slappasta sem þær hafa upp á að bjóða. Bíó og sjónvarp 2.10.2026 16:34
Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikarinn Michael Douglas hefur loksins gengist við því að hafa átt í leynilegu ástarsambandi með mótleikkonu sinni, Kathleen Turner, þegar þau tóku upp stórmyndina Romancing The Stone í Mexíkó árið 1984. Þau hafa alla tíð neitað fyrir sambandið sem Douglas ljóstrar nú upp um í nýrri ævisögu sinni. Bíó og sjónvarp 2.10.2026 16:04
Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Skoski stórleikarinn Alan Cumming verður meðal leikara í væntanlegri ofurhetjumynd Avengers: Doomsday. Frásagnir hins 61 árs gamla leikara af tökustað hafa hinsvegar vakið athygli þar sem hann sagðist skilja hvorki upp né niður í söguþræði myndarinnar. Þá lék hann með áhættuleikara Florence Pugh en ekki leikkonunni sjálfri. Bíó og sjónvarp 2.10.2026 13:00
Bransafólk í blússandi fíling Kvikmyndahátíðin RIFF opnaði með pomp og prakt um helgina og fjöldi fólks kom saman í Háskólabíói við hátíðlega athöfn. Ráðherrar, bransafólk, leikarar og plötusnúðar skemmtu sér fram eftir kvöldi. Bíó og sjónvarp 30.9.2026 13:11