Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Áróra L Davíðsdóttir skrifar 31. október 2026 15:33 Þættirnir Alle elsker Rasmus er ekki lengur hægt að finna á veitum TV2. EPA/Martin Sylvest Danska sjónvarpsstöðin TV2 hefur dregið þættina Alle elsker Rasmus, eða Allir elska Rasmus, úr birtingu og beðið téðan Rasmus afsökunar. Þættirnir sættu mikilli gagnrýni og voru höfundar sakaðir um einelti og gaslýsingu.
Danska ríkisútvarpið og TV2 sjálft greina frá. Þættirnir fylgja danska grínistanum Rasmus Wallbridge og eru að mestu teknir upp með falinni myndavél. Þá var honum talin trú um að hann tæki þátt í tökum á kvikmynd, sem er hans helsti draumur. Rasmus lendir í ýmsum hremmingum sem hann telur vera raunverulegar en eru í raun eftir handriti. Alls tóku 149 manns þátt í blekkingarleiknum, bæði vinir hans og kunningjar sem og þjóðþekktir einstaklingar. Hefur þáttunum verið líkt við kvikmyndina The Truman Show frá árinu 1998 með Jim Carrey í aðalhlutverki. Þættirnir eru umdeildir og sættu mikilli gagnrýni úr ýmsum áttum. Meðal annars líkti sjónvarpsmaðurinn og hlaðvarparinn Anna Linn þáttunum við einelti og að Rasmus hefði ekki endilega fengið frjálst val um hvort að þættirnir færu í birtingu. „Ég tel þetta vera einelti. Ég trúi því ekki að maður hafi algjörlega frjálst val þegar maður stendur þarna og annaðhvort tekur þátt í gríninu eða fer gegn heilu sjónvarpsteymi,“ hefur DR eftir Önnu. Biðjast afsökunar og taka þættina úr birtingu TV2 hefur nú beðist afsökunar og tekið þættina úr birtingu vegna gagnrýninnar. Ekki er lengur hægt að nálgast þættina á miðlum stöðvarinnar en aðeins eru fimm dagar síðan þættirnir komu út. „Ég vil biðja Rasmus Wallbridge og þátttakendur í þættinum „Alle elsker Rasmus“ auðmjúklega afsökunar,“ er haft eftir Dorthe Tirstrup dagskrárstjóra TV2 í fréttatilkynningu. Hún líti á málið sem dómgreindarbrest af sinni hálfu. „Ég lít í eigin barm og viðurkenni að dómgreind mín brást einfaldlega í þessu máli. Það er sú dómgreind sem allir þátttakendurnir treystu á og mér þykir það afar leitt. Það var röng ákvörðun að gera þáttinn á þann hátt sem við gerðum. Við gættum ekki nógu vel að Rasmusi þrátt fyrir þær vangaveltur sem við höfðum fyrir fram,“ er einnig haft eftir Dorthe. Rasmus sjálfur hefur lítið tjáð sig um þættina en rauf þó þögnina í færslu á Instagram í morgun og sagðist ekki í stöðu til þess að ræða málin að svo stöddu.
Bíó og sjónvarp Fjölmiðlar Danmörk Raunveruleikaþættir Mest lesið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Lífið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Bíó og sjónvarp Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Enn og aftur dæmdur í fangelsi Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Glee snýr aftur Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið