Lífið

Arnór Sig kominn á fast

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Thelma birti mynd af parinu á Instagram í síðustu viku.
Thelma birti mynd af parinu á Instagram í síðustu viku.

Knattspyrnumaðurinn Arnór Sigurðsson er kominn á fast með tónlistarkonunni Thelmu Tryggvadóttur. Arnór hætti með hinni sænsku Sögu Palffy fyrir tveimur árum og var um tíma að hitta bresku Love Island-stjörnuna Ellu Buffin.

Parið hefur birt myndir hvort af öðru á samfélagsmiðlum síðustu vikurnar.

Arnór Sigurðsson er knattspyrnumaður af Akranesi sem fór átján ára út í atvinnumennsku, hefur spilað með liðum á borð við IFK Norrköping, CSKA Moskva, Venezia FC, Blackburn Rovers og Malmö FF á ferlinum og er nú á mála hjá Kalamata í Grikklandi.

Thelma Tryggvadóttir er tónlistarkona sem hefur gefið út tónlist síðustu ár undir nafninu Thelma, gaf út stuttskífuna TT árið 2024 og hefur gefið út þó nokkrar smáskífur, þar á meðal lagið „Fyrir mig“ með Háska. Parið er á svipuðu reki því Arnór er 27 ára en Thelma 24 ára.

Parið er greinilega nýlega byrjað saman því Arnór var til viðtals hjá húðflúrararnum Brynjar Björnssyni í þættinum Chat and Tat í ágúst og sagðist þá vera einhleypur. Arnór sagði þar einmitt frá vandræðalegri sögu frá 2024 þegar hann bjó í Englandi með fyrrverandi.

„Við vorum að horfa á Love Island All Stars þarna um sumarið, ég og fyrrverandi. Áður en ég kynntist henni var ég að hitta eina sem hafði verið í Love Island og hún vissi af því,“ sagði Arnór í þættinum en hann var þá í sambandi með Sögu Palffy.

„Síðan er einhver þáttur og þá kemur inn „bombshell“ og ég hafði ekki hugmynd um þetta en þá er það þessi stelpa sem labbar inn. Þetta var svo vandræðalegt, ég horfði aðeins á hana og hún horfði á mig, við kláruðum þáttinn en hættum svo að horfa.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.