Lífið

Útúrkókaður lög­reglu­maður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt

Stefán Árni Pálsson skrifar
Aron Már fer á kostum í þættinum.
Aron Már fer á kostum í þættinum.

Í síðasta þætti af Dagbók lögreglu var fylgst með lögreglumanni sem lenti í því að reyna að yfirbuga mann og í kjölfarið fékk hann heilan poka af kókaíni í andlitið. Seinna í þættinum var umræddur lögreglumaður orðinn vel víraður og átti í vandræðum með sjálfan sig.

Um nóttina barst símtal um mann sem var að slá garðinn um miðja nótt. Þetta fór fyrir brjóstið á lögreglumanninum, sem Aron Már Ólafsson leikur, og hann stökk á fjölskylduföðurinn með miklum tilþrifum eins og sjá má hér að neðan.

Klippa: Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt

Þættirnir Dagbók lögreglu byggja á raunverulegum útköllum sem hafa komið fyrir í dagbók lögreglunnar. Á meðal leikara eru Aron Már Ólafsson, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Kjartan Darri Kristjánsson, Oddur Júlíusson, Saga Garðarsdóttir, Vigdís Halla Birgisdóttir, Jörundur Ragnarsson og Ilmur Kristjánsdóttir. Leikstjórn er í höndum Ólafs Ásgeirssonar og framleiðendur eru Fannar Scheving Edwardsson og Þórunn Elva Þorgeirsdóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.