Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Birgir Olgeirsson skrifar 10. september 2026 16:47 Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra stendur við að Þórður hafi líklega misskilið upplýsingarnar en segist ekki geta skýrt hvers vegna sama tala birtist síðar í fjárlagafrumvarpinu. Ívar Fannar Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra telur líklegt að Þórður Snær Júlíusson hafi misskilið upplýsingar þegar hann sagði í mars að bankaskattur ætti að skila sex milljörðum króna. Ráðherrann segist hins vegar ekki geta skýrt hvers vegna sama fjárhæð varð síðar niðurstaðan í fjárlagafrumvarpinu.
Þórður Snær, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, skrifaði 28. mars að boðaður skattur á banka ætti að skila ríkissjóði um sex milljörðum króna í nýjar tekjur árið 2027. Fjárhæðin kom ekki fram í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Fjármála- og efnahagsráðuneytið sagði Vísi þá að áformin væru á hugmyndastigi og ekkert mat lægi fyrir á því hversu miklu skattheimtan ætti að skila. Þórður Snær Júlíusson sagði í mars að bankaskatturinn ætti að skila sex milljörðum króna. Fjárhæðin kom ekki fram í fjármálaáætluninni en varð síðar niðurstaðan í fjárlagafrumvarpinu.Vísir/Einar Í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2027 er nú lagt til að bankaskatturinn verði hækkaður um 75 prósent. Hækkunin á að skila sex milljörðum króna í viðbótartekjur. Vísir spurði af því tilefni Daða hvers vegna sama fjárhæð og Þórður nefndi væri nú komin í frumvarpið svarar Daði: „Ég hef engar skýringar á því.“ Bendir á aukinn hagnað bankanna Daði stendur engu að síður við þá afstöðu, sem hann tjáði Morgunblaðinu í apríl, að Þórður hafi líklega misskilið upplýsingarnar. Ráðherrann bendir á að eina sex milljarða talan í gögnunum sem þingflokkar stjórnarflokkanna fengu hafi varðað aukinn hagnað stóru bankanna þriggja. „Samanlagður hagnaður þeirra nam 94 milljörðum króna og jókst um 6 milljarða frá árinu áður,“ sagði í gögnunum. Daði segir engar aðrar tölur í gögnunum hafa getað gefið tilefni til þeirrar ályktunar að bankaskatturinn ætti að skila sex milljörðum króna. Hann svarar hins vegar ekki afdráttarlaust hvort sex milljarða skattheimta hafi verið meðal hugmynda sem kynntar voru ríkisstjórninni. Daði segir minnisblöð og útreikninga hafa verið lögð fyrir ríkisstjórnina en ekki sé unnt að upplýsa hvaða hugmyndir hafi verið þar til umræðu. Fjárhæð og útfærsla bankaskattsins hafi ekki verið samþykkt á þeim tíma.
Fjárlagafrumvarp 2027 Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skattar, tollar og gjöld Fjármálafyrirtæki Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira