Viðskipti innlent

Gangast í á­byrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni

Árni Sæberg skrifar
Guðbjörg Matthíasdóttir er stærsti hluthafi Ísfélagsins, sem á stóran hlut í fiskeldisfélaginu Kaldvík, sem starfar á Austjförðum.
Guðbjörg Matthíasdóttir er stærsti hluthafi Ísfélagsins, sem á stóran hlut í fiskeldisfélaginu Kaldvík, sem starfar á Austjförðum. Vísir

Austur Holding AS hyggst, með fyrirvara um endanlega samningsgerð, veita ábyrgð að fjárhæð 25 milljónir evra, um það bil 3,4 milljarða króna, vegna lánasamnings Kaldvik AS við lánveitendur sína. Ísfélag hf. er 43,4 prósenta hluthafi í Austur Holding AS. Kaldvík stefnir á stóra hlutafjáraukningu á yfirstandandi ársfjórðungi.

Þetta segir í tilkynningu Ísfélagsins til Kauphallar, með vísan til fyrri tilkynningar Kaldvíkur um niðurstöðu samningsumleitana félagsins við lánardrottna.

Þann 1. október síðastliðinn greindi Kaldvík frá því í tilkynningu til Kauphallar að félagið hefði gert samkomulag við lánardrottna sína um undanþágu frá skilmálum varðandi fjármögnunarsamninga félagsins. Marglyttur hefðu valdið tjóni í eldi félagsins í Reyðarfirði sem hefði haft áhrif á framleiðslu og fjárhagsstöðu fyrirtækisins. Meðal annars hafði félagið ekki uppfyllt skilyrði um lágmarkslausafjárstöðu.

Í tilkynningu Kaldvíkur segir að samkvæmt endurfjármögnunarsamningi við Arion banka, DNB, Landsbankann og Nordea muni heildarfjárhæð skuldbindinga samkvæmt tímabundnu láni og lánalínu nema um 232 milljónum evra, samanborið við um 207 milljónir evra samkvæmt núverandi lánasamningum.

Þá segir að endurfjármögnunin sé meðal annars háð því að félagið ljúki hlutafjáraukningu með að fjárhæð minnst 97 milljónum evra, sem gert sé ráð fyrir að skili félaginu að minnsta kosti 70 milljónum evra í hreinu handbæru fé eftir endurgreiðslu eða uppgjör víkjandi skulda við hluthafa og viðskiptakostnað. Gert sé ráð fyrir að fyrirhugaðri hlutafjáraukningu ljúki á 4. ársfjórðungi 2026.

Hyggist Ísfélagið halda jafnstórum eignarhlut í Kaldvík eftir hlutafjáraukningu þyrfti félagið að taka þátt í henni fyrir minnst 28 milljónir evra, eða sem nemur 3,8 milljörðum króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×