Samkaup kaupir Fjarðarkaup Bjarki Sigurðsson skrifar 2. nóvember 2026 08:38 Fjarðarkaup eru fjölskyldufyrirtæki í Hafnarfirði. Vísir/Vilhelm Samkaup hafa fest kaup á Fjarðarkaupum. Viðskiptin eru háð því að Samkeppniseftirlitið samþykki þau. Kaldalón ehf. eignast fasteignina sem verslunin er rekin í.
Þetta kemur fram í tilkynningu Kaldalóns til Kauphallar. Félagið hefur keypt 1717 ehf. sem á fasteiginina að Hólshrauni 1 þar sem verslun Fjarðarkaupa hefur verið starfrækt um árabil. „Fasteignin er 4.271 m² verslunarhúsnæði og hvílir á um 17.300 m2 lóð við Reykjavíkurveg. Á lóð 1717 ehf. eru einnig þjónustustöðvar fyrir orkusölu. Heildarvirði félagsins í viðskiptunum er 2.392 m.kr. Að teknu tilliti til frádráttar vegna tekjuskattsskuldbindingar nemur virði fasteignarinnar um 2.155 m.kr,“ segir í tilkynningu Kaldalóns. Samhliða kaupum Kaldalóns á fasteigninni hafi 1717 gert langtímaleigusamning við Samkaup ehf., dótturfélag Dragna hf., um alla fasteignina. Samkaup tekur við rekstri í fasteigninni samhliða kaupum sínum á Fjarðarkaupum. Kaldalón skuldbindur sig til að leggja 350 m.kr. til endurbóta á fasteigninni. Í tilkynningu frá Dröngum sem send var til fjölmiðla skömmu eftir að þessi frétt birtist segir að rekstur Fjarðarkaupa bætist þannig við starfsemi Samkaupa sem þegar reka Nettó, Spar, Prís, Heimkaup, 10-11, Kjörbúðina og Krambúðina. „Kaup Samkaupa falla vel að stefnu Dranga um að byggja upp öfluga samstæðu fyrirtækja og leiða þróun og framfarir á íslenskum neytendamarkaði. Áhersla félagsins er á gott úrval vöru, skýra ásýnd vörumerkja og á góða þjónustu þar sem viðskiptavinurinn er í fyrsta sæti,“ segir í tilkynningunni. Frá vinstri: Jón Anton Jóhansson, framkvæmdastjóri fasteigna hjá Dröngum, Sveinn Sigurbergsson, Hjördís Sigurbergsdóttir, Rósa Sigurbergsdóttir, Gísli Sigurbergsson, eigendur Fjarðarkaupa, Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga og Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, framkvæmdastjóri Samkaupa.Silla Pálsdóttir Fyrirhugað sé að Samkaup fái Fjarðarkaup afhent þegar samþykki Samkeppniseftirlitsins liggur fyrir. Til stendur að opna apótek í húsnæðinu, bakarí og sælkeraverslun og efla þannig úrvalið. „Það er okkur sérstakt ánægjuefni að starfsfólkinu okkar, sem í raun er hjartað og sálin í versluninni og hefur margt starfað hjá okkur um áratugaskeið, býðst að halda áfram störfum í Fjarðarkaupum. Þannig teljum við að varðveita megi sérstöðu verslunarinnar þótt breytingar verði á eignarhaldi. Við óskum nýjum eigendum og starfsfólki alls hins besta í framtíðinni og færum viðskiptavinum okkar, starfsfólki og samstarfsaðilum innilegar þakkir fyrir samfylgdina,“ er haft eftir bræðrunum Sveini og Gísla Sigurbergssonum fyrir hönd fjölskyldunnar í Fjarðarkaupum. Fréttin verður uppfærð.
Kauphöllin Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Sjá meira