Viðskipti innlent

Samkaup kaupir Fjarðar­kaup

Bjarki Sigurðsson skrifar
Fjarðarkaup eru fjölskyldufyrirtæki í Hafnarfirði.
Fjarðarkaup eru fjölskyldufyrirtæki í Hafnarfirði. Vísir/Vilhelm

Samkaup hafa fest kaup á Fjarðarkaupum. Viðskiptin eru háð því að Samkeppniseftirlitið samþykki þau. Kaldalón ehf. eignast fasteignina sem verslunin er rekin í. 

Þetta kemur fram í tilkynningu Kaldalóns til Kauphallar. Félagið hefur keypt 1717 ehf. sem á fasteiginina að Hólshrauni 1 þar sem verslun Fjarðarkaupa hefur verið starfrækt um árabil. 

„Fasteignin er 4.271 m² verslunarhúsnæði og hvílir á um 17.300 m2 lóð við Reykjavíkurveg. Á lóð 1717 ehf. eru einnig þjónustustöðvar fyrir orkusölu. Heildarvirði félagsins í viðskiptunum er 2.392 m.kr. Að teknu tilliti til frádráttar vegna tekjuskattsskuldbindingar nemur virði fasteignarinnar um 2.155 m.kr,“ segir í tilkynningu Kaldalóns. 

Samhliða kaupum Kaldalóns á fasteigninni hafi 1717 gert langtímaleigusamning við Samkaup ehf., dótturfélag Dragna hf., um alla fasteignina. Samkaup tekur við rekstri í fasteigninni samhliða kaupum sínum á Fjarðarkaupum. Kaldalón skuldbindur sig til að leggja 350 m.kr. til endurbóta á fasteigninni.

Í tilkynningu frá Dröngum sem send var til fjölmiðla skömmu eftir að þessi frétt birtist segir að rekstur Fjarðarkaupa bætist þannig við starfsemi Samkaupa sem þegar reka Nettó, Spar, Prís, Heimkaup, 10-11, Kjörbúðina og Krambúðina. 

„Kaup Samkaupa falla vel að stefnu Dranga um að byggja upp öfluga samstæðu fyrirtækja og leiða þróun og framfarir á íslenskum neytendamarkaði. Áhersla félagsins er á gott úrval vöru, skýra ásýnd vörumerkja og á góða þjónustu þar sem viðskiptavinurinn er í fyrsta sæti,“ segir í tilkynningunni. 

Frá vinstri: Jón Anton Jóhansson, framkvæmdastjóri fasteigna hjá Dröngum, Sveinn Sigurbergsson, Hjördís Sigurbergsdóttir, Rósa Sigurbergsdóttir, Gísli Sigurbergsson, eigendur Fjarðarkaupa, Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga og Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, framkvæmdastjóri Samkaupa.Silla Pálsdóttir

Fyrirhugað sé að Samkaup fái Fjarðarkaup afhent þegar samþykki Samkeppniseftirlitsins liggur fyrir. Til stendur að opna apótek í húsnæðinu, bakarí og sælkeraverslun og efla þannig úrvalið. 

„Það er okkur sérstakt ánægjuefni að starfsfólkinu okkar, sem í raun er hjartað og sálin í versluninni og hefur margt starfað hjá okkur um áratugaskeið, býðst að halda áfram störfum í Fjarðarkaupum. Þannig teljum við að varðveita megi sérstöðu verslunarinnar þótt breytingar verði á eignarhaldi. Við óskum nýjum eigendum og starfsfólki alls hins besta í framtíðinni og færum viðskiptavinum okkar, starfsfólki og samstarfsaðilum innilegar þakkir fyrir samfylgdina,“ er haft eftir bræðrunum Sveini og Gísla Sigurbergssonum fyrir hönd fjölskyldunnar í Fjarðarkaupum.

Fréttin verður uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×