Kauphöllin

Kauphöllin

Fréttir úr Kauphöllinni á Íslandi og af skráðum félögum á markaði.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Arð­semi Kviku nálgast mark­mið með væntan­legri stórri arð­greiðslu

Afkoma Kviku batnaði nokkuð á fyrsta fjórðungi, einkum drifin áfram af auknum vaxtatekjum samhliða kröftugum lánavexti í Bretlandi og lægri fjármagnskostnaði, og að teknu tilliti til væntanlegrar stórrar arðgreiðslu til hluthafa er bankinn að nálgast markmið sitt um tuttugu prósenta arðsemi. Bankastjóri Kviku segir mikinn samdrátt í veltu á hlutabréfamarkaði vera „áhyggjuefni“ og þá héldu lífeyrissjóðir áfram að taka eignir sína úr stýringu bankans.

Innherji
Fréttamynd

Besta deildin á­fram á Sýn Sport

Sýn og Íslenskur Toppfótbolti (ÍTF) hafa undirritað samning um eins árs framlengingu á sýningarrétti frá leikjum í Bestu deild karla og Bestu deild kvenna til loka ársins 2027. Framlengingin tryggir órofið samstarf aðila á meðan viðræður um nýjan langtímasamning halda áfram á milli aðila.

Sport
Fréttamynd

Loft­leiðir á lúxusþotum á Norður-Atlantshafinu

Loftleiðir Icelandic, dótturfélag Icelandair Group, hefur tekið að sér að fljúga áætlunarflug á lúxusþotum yfir Atlantshafið í sumar. Félagið mun einnig á sömu þotum flytja knattspyrnulandslið nokkurra þjóða á heimsmeistarakeppnina.

Innlent
Fréttamynd

Yfir­lýsing Icelandair kom flatt upp á flug­menn

Yfirlýsing Icelandair þar sem fram kemur að félagið gruni flugstjóra um að hafa ráðist í óformlegar aðgerðir í kjarabaráttu kom flatt upp á Jón Þór Þorvaldsson formann Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Hann segir félagið hvergi bangið og munu mæta til leiks til fundar með forsvarsmönnum félagsins á morgun án gremju.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Icelandair grunar flug­menn um græsku

Icelandair segir að þótt Félag íslenskra atvinnuflugmanna fullyrði að engar aðgerðir sé hafnar sem tengist kjaraviðræðum bendi margt til þess að um óformlegar aðgerðir sé að ræða, eftir nánari skoðun flugfélagsins. Vísbendingar séu um samantekin ráð og kallar forstjóri félagsins eftir því að allir aðilar sýni ábyrgð.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Keypti bíl fyrir peningana og flúði land með Nor­rænu

Rúmenski maðurinn sem er grunaður um að hafa svikið 160 milljónir úr Arion banka hefur verið búsettur hér á landi í þó nokkur ár. Hann keypti sér bíl fyrir illa fengið fé og flúði land með Norrænu eftir svikin en var loks handtekinn í heimalandi sínu.

Innlent
Fréttamynd

Flugi seinkað vegna for­falla í á­höfn

Flugi Icelandair frá Keflavíkurflugvelli til Brussel í Belgíu seinkaði um rúma tvo tíma í morgun vegna forfalla hjá áhöfn. Frá þessu er greint á vef Ríkisútvarpsins en þar er haft eftir Guðna Sigurðssyni, upplýsingafulltrúa Icelandair, að hluti áhafnar hafi forfallast og ekki hafi verið bætt við á bakvakt.

Innlent
Fréttamynd

Hæsti­réttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir

Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarleyfisbeiðni Ásgeirs Helga Reykfjörð Gylfasonar vegna dóms Landsréttar í skattamáli, sem varðar tugi milljóna króna. Reikna má með að fimm aðrir fyrrverandi og núverandi lykistjórnendur hjá Kviku banka fengju ekki heldur leyfi til áfrýjunar, óskuðu þeir eftir slíku.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða

Lýður Guðmundsson, sem oftast er kenndur við Bakkavör, keypti á dögunum 3,3 prósenta hlut í Kviku banka. Þá hefur hann gert framvirka samninga upp á önnur 1,78 prósent í bankanum og samanlögð eign hans í bankanum nemur því 5,08 prósentum. Verðmæti eignarhlutarins nemur um 3,6 milljörðum króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gengi Alvotech tekur kipp

Gengi hlutabréfa í Alvotech hefur tekið vænan kipp í morgun, eftir að tilkynnt var að niðurstaða úttektar Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna, FDA, væri að fyrirtækið uppfylli nú ströngustu kröfur góðra framleiðsluhátta í lyfjaframleiðslu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Rúmeninn náði 160 milljónum króna af Arion banka

Arion banki er íslenska fjármálafyrirtækið sem varð fyrir barðinu á rúmenskum tölvuþrjóti í apríl. Hann nýtti sér villu í kerfi bankans til þess að millifæra á sig um 160 milljónir króna. Arion banki hefur endurheimt fjármunina að mestu leyti.

Innlent
Fréttamynd

Alvotech stóðst út­tekt FDA

Reglubundinni úttekt Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna (FDA) á framleiðsluaðstöðu Alvotech er lokið. Henni lauk á föstudaginn en forsvarsmenn Alvotech segja hana staðfesta að fyrirtækið uppfylli „ströngustu kröfur góðra framleiðsluhátta í lyfjaframleiðslu (cGMP).

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Einars Ólafs­sonar minnst í Lúxem­borg

Helstu fjölmiðlar í Lúxemborg hafa síðustu daga minnst Einars Ólafssonar, fyrsta forstjóra Cargolux og fyrsta starfsmanns, sem brautryðjanda í fraktflugi og lykilmanns í uppbyggingu félagsins. Einar lést á hjúkrunarheimilinu Boðaþingi í Kópavogi þann 2. maí síðastliðinn, níræður að aldri. 

Innlent
Fréttamynd

Flugi af­lýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni

Flugi Icelandair til Seattle var aflýst í gærkvöldi með skömmum fyrirvara vegna þess að ekki tókst að manna áhöfn. Upplýsingafulltrúi Icelandair segist ekki vita af verkfallsaðgerðum en þetta er í annað sinn í vikunni sem flugi er skyndilega aflýst vegna mönnunar.

Innlent
Fréttamynd

Af­koma um­fram á­ætlanir

Afkoma Sýnar á fyrsta ársfjórðungi þessa árs var umfram áætlanir og þykir stjórnendum félagsins það til marks um áframhaldandi viðsnúning í rekstri. Herdís Dröfn Fjelsted, forstjóri, segir þetta staðfestingu á að aðgerðir og umbreyting síðasta árs séu að skila árangri.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hærri vaxta­tekjur skýra veru­lega aukinn hagnað Ís­lands­banka

Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,5 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi og arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli var 13,6 prósent, sem er í báðum tilvikum yfir spám greinenda fyrir fjórðunginn. Aukning í vaxtatekjum, sem var rúmum 11 prósentum yfir spám greinenda, skýrir að stórum hluta aukinn hagnað samanborið við fyrsta ársfjórðung síðasta árs.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Af­koma Al­vot­ech nokkuð undir væntingum og „sjóðs­staða þrengist“

Bæði tekjur og rekstrarhagnaður Alvotech á fyrsta fjórðungi var talsvert undir meðalspá greinenda en þar hefur meðal annars áhrif, að sögn stjórnenda, að hægja þurfti á framleiðslu vegna úrbóta á verksmiðjunni. Gengi bréfa Alvotech hríðlækkaði við opnun markaða en greinendur benda á að lausafjárstaða félagsins „þrengdist hratt“ á fjórðungnum.

Innherji
Fréttamynd

Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta árs­fjórðungi

Heildartekjur Alvotech voru 105,9 milljónir dollara, samanborið við 132,8 milljónir dollara á fyrsta fjórðungi liðins árs. Það samsvarar um þrettán milljörðum íslenskra króna. Félagið gerir ráð fyrir að heildartekjur ársins 2026 verði á bilinu 650 til 700 milljónir dollara.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust

Ráðamenn Icelandair tilkynntu í dag að flugáætlun félagsins yrði skorin niður um fimm prósent í haust vegna stórhækkunar eldsneytisverðs. Samhliða skoða þeir alvarlega að hætta rekstri Boeing 757-véla félagsins eftir sumarið.

Innlent