Ísraelar og Palestínumenn sammála 19. júní 2005 00:01
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Condoleezza Rice, segir að Ísraelar og Palestínumenn séu sammála um hvernig skuli staðið að brottflutningi gyðinga frá Gaza-svæðinu. Rice, sem nú er í heimsókn í Miðausturlöndum, hefur fundað bæði með leiðtogum Palestínumanna og gyðinga og segist nokkuð bjartsýn um framtíðina. Hún segir að unnið hafi verið að aðferðum til að flýta fyrir brottflutningnum og styðja leiðtogafund þeirra Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, og Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, á komandi dögum. Nokkrar meginreglur um brottflutninginn hafi verið þróaðar sem leiðtogarnir hafi samþykkt að fara eftir. „Allir eru sammála um að áætlun Ísraelsmanna um að flytjast á brott frá Gaza og svæðum á norðurhluta Vesturbakkans geti verið mikilvægt skref í friðarferlinu í áttina að því að sú sýn rætist að til verði tvö lýðræðisleg ríki, Ísrael og Palestína, sem búi hlið við hlið við friðsemd og öryggi,“ sagði Rice á blaðamannfundi í dag. „Samkvæmt því skulbinda yfirvöld í Ísrael og Palestínu sig til að tryggja að brottflutningur fari hnökralaust fram og án ofbeldis, og á þann hátt sem kemur best út fyrir efnahag Palestínumanna.“ Brottflutningur gyðinga frá Gaza og landnemabyggðum á Vesturbakkanum á að hefjast eftir tvo mánuði. Bæði Palestínumönnum og gyðingum er mjög í mun að það gangi friðsamlega fyrir sig.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Innlent Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Erlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Innlent Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Erlent Starfsmaður verslunar sleginn Innlent Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar Innlent Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Innlent Veittu eftirför í Árbæ Innlent Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Yfirvöld Mexíkó kæra Google Gamlar nektarmyndir felldu glænýjan þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Takmörkuð eftirspurn eftir ríkisstjórn með flokki Farage Gera enn árásir með drónum og eldflaugum Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins Einhliða vopnahlé Rússa hafið Vesturlönd þurfa að borga milljarðatjón af árás Rússa á Tsjernobyl Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi Sjá meira