Spennan vex 31. júlí 2005 00:01
Spennan vex fyrir botni Miðjarðarhafs þar sem ríkisstjórn Ariels Sharons býr sig undir átök og mótmæli vegna fyrirhugaðs brotthvarfs Ísraelsmanna frá Gasaströndinni. Ísraelsk stjórnvöld hafa af því áhyggjur að um helmingur landtökufólks á svæðum Palestínumanna á Gasaströndinni muni þrjóskast við og neita að yfirgefa heimili sín þegar brotthvarf Ísraelsmanna þaðan hefst í ágúst. Gangi það eftir félli það hersveitum í skaut að þvinga fólkið í burtu og koma því fyrir annars staðar. Sumar fjölskyldurnar eru hins vegar þegar farnar og nokkrar fengu í dag lykla að nýju bráðabirgðahúsnæði. Fólkið virðist ekki sérlega ánægt með breytinguna. Ein fimm manna fjölskylda sagðist t.d. aðeins fá 60 fermetra íbúð. Þjóðernissinnar eru stjórnvöldum æfareiðir vegna þessa og hóta öllu illu, meðal annars öflugum mótmælum í þessari viku. Ríkisstjórn Ariels Sharons hittist í dag til að ræða hvernig taka ætti á vandræðaseggjum. Ehud Olmert, aðstoðarforsætisráðhera Ísraels, sagði að loknum fundinum að ef þjóðernissinarnir haldi að við þessar aðstæður geti þetta endað miklum óróa, á svæði sem sé mjög viðkvæmt, þar sem sprengjur falli á degi hverjum og mikið mannfall geti orðið og alger ringulreið ríkt sem geti ógnað framkvæmd brottflutningsins, þá sé það þeirra ákvörðun. Það verði að virða og ríkisstjórnin eigi ekki að skipta sér af þessu.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið „Þeir sem búa í glerhúsi ættu að spara grjótkastið“ Innlent Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Erlent Átta ára fangelsi í sögulegu fíkniefnamáli Innlent Skólaþorpið í Laugardal: Syðri innkeyrslunni lokað og 256 bílastæði fjarlægð Innlent „Hún er albesti vinur minn“ Innlent Stigmögnunin heldur áfram Erlent Hvað vitum við um Leó páfa? Erlent Einn rólegur, annar afar ósáttur Innlent Gular viðvaranir og hryssingslegt sunnan- og vestantil Veður „Svik við lögreglumannastéttina“ og slái hann „mjög illa“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Takmörkuð eftirspurn eftir ríkisstjórn með flokki Farage Gera enn árásir með drónum og eldflaugum Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins Einhliða vopnahlé Rússa hafið Vesturlönd þurfa að borga milljarðatjón af árás Rússa á Tsjernobyl Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi Herþota hrapaði til jarðar í Finnlandi Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Misstu aðra herþotu í sjóinn Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Indland gerir árás á Pakistan Trump um kaupin á Kanada: „Aldrei segja aldrei“ Merz náði kjöri í annarri tilraun Niðurlægjandi fyrir Merz og AfD krefst þingkosninga á ný Sakar Rússa um fordæmalaus afskipti af kosningum í Póllandi Kardinálarnir læstir inni á morgun Ríkisstjórn Rúmeníu liðast í sundur eftir sigur öfgahægrimanns Náði ekki kjöri í sögulegri atkvæðagreiðslu Fækkar herforingjum um fimmtung Lokuðu flugvöllum í Moskvu vegna dróna Sjá meira