Gæti ráðist á örfáum atkvæðum 11. september 2005 00:01
Úrslit í þingkosningunum í Noregi gætu oltið á örfáum atkvæðum, svo lítill er munurinn á fylgi vinstri flokkanna og bandalagi miðju- og hægriflokkanna samkvæmt skoðanakönnunum, daginn fyrir kosningar. Norðmenn ganga að kjörborðinu á morgun og svo virðist sem kosninganóttin verði æsispennandi. Framanaf var vinstriflokkunum spáð sigri og Jens Stoltenberg, leiðtogi jafnaðarmanna, var í huganum farinn að máta forsætisráðherrastólinn á ný. Síðan sigu Kjell Magne Bondevik, leiðtogi Kristilega þjóðarflokksins, og hans bandalag fram úr aftur og var því spáð að hann gæti jafnvel haldið forsætisráðherraembættinu en því hefur hann gegnt frá árinu 2001. Bondevik hefur lagt áherslu á skattalækkanir og bent á góðan árangur í efnahagsmálum undanfarin ár - rúmlega fjögurra prósenta hagvöxt, mjög lága verðbólgu og vexti og lítið atvinnuleysi. Jafnaðarmenn saka hann hins vegar um að hafa sniðgengið hin klassísku, norrænu gildi og leggja áherslu á frekari uppbyggingu velferðarkerfisins fyrir olíupeningana sem streyma nú inn í ríkiskassann í kjölfar gríðarlegra olíuverðshækkana. Nú, daginn fyrir kjördag, benda skoðanakannanir til þess að munurinn á bandalögunum gæti orðið aðeins eitt til tvö þingsæti og því skiptir hvert atkvæði máli. Flokkarnir keppast því við það þessar síðustu klukkustundir að reyna að ná til þeirra rúmlega tuttugu prósenta kjósenda sem að jafnaði sitja heima á kjördag.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið „Þeir sem búa í glerhúsi ættu að spara grjótkastið“ Innlent Flugmenn tókust óafvitandi á um stjórnina í mikilli ókyrrð yfir Íslandi Innlent Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Erlent Átta ára fangelsi í sögulegu fíkniefnamáli Innlent Skólaþorpið í Laugardal: Syðri innkeyrslunni lokað og 256 bílastæði fjarlægð Innlent „Hún er albesti vinur minn“ Innlent „Þetta er vondur klukkutími hér í þessum þingsal“ Innlent Hvað vitum við um Leó páfa? Erlent Stigmögnunin heldur áfram Erlent Skipulögð brotastarfsemi er komin til að vera Innlent Fleiri fréttir Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Takmörkuð eftirspurn eftir ríkisstjórn með flokki Farage Gera enn árásir með drónum og eldflaugum Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins Einhliða vopnahlé Rússa hafið Vesturlönd þurfa að borga milljarðatjón af árás Rússa á Tsjernobyl Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi Herþota hrapaði til jarðar í Finnlandi Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Misstu aðra herþotu í sjóinn Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Indland gerir árás á Pakistan Trump um kaupin á Kanada: „Aldrei segja aldrei“ Merz náði kjöri í annarri tilraun Niðurlægjandi fyrir Merz og AfD krefst þingkosninga á ný Sakar Rússa um fordæmalaus afskipti af kosningum í Póllandi Kardinálarnir læstir inni á morgun Ríkisstjórn Rúmeníu liðast í sundur eftir sigur öfgahægrimanns Náði ekki kjöri í sögulegri atkvæðagreiðslu Fækkar herforingjum um fimmtung Sjá meira