Þorsteinn Már hættir hjá Samherja Árni Sæberg skrifar 23. maí 2025 11:21 Þorsteinn Már Baldvinsson er fráfarandi forstjóri Samherja. Vísir/Vilhelm Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja hf., ritaði í dag bréf til starfsfólks þar sem hann greindi frá ákvörðun sinni um að láta af störfum sem forstjóri félagsins í júní næstkomandi. Hann er þó ekki sestur í helgan stein enda situr hann í stjórnum fjölda félaga, þar á meðal Samherja.
Þetta segir í tilkynningu á vef Samherja. Þar er bréf Þorsteins Más birt en í því segir meðal annars að stjórn Samherja hefði í vikunni gengið frá ráðningu Baldvins Þorsteinssonar í starf forstjóra. „Eins og þið vitið er Baldvin einn af stærstu hluthöfum Samherja hf. og hefur verið stjórnarformaður félagsins frá 2023.“ Baldvin er jafnframt sonur Þorsteins Más. Stiklaði á stóru í sögu félagsins „Sjávarútvegur hefur verið mitt ævistarf og það hafa verið sönn forréttindi að byggja upp þetta félag með ykkur á undanförnum rúmum fjórum áratugum. Á þessum tímamótum er margs að minnast á löngum ferli. Mér finnst við hæfi í þessu bréfi til ykkar að stikla á stóru í rekstri félagsins,“ segir Þorsteins Már. Saga Samherja í núverandi mynd hafi hafist árið 1983 þegar þeir frændur, hann og bræðurnir Kristján og Þorsteinn Vilhelmssynir, keyptu útgerðarfélagið Samherja hf. í Grindavík. Helsta eign þess félags hafi verið togarinn Guðsteinn GK 140 sem hefði verið smíðaður í Póllandi níu árum áður. Eftir þessa fjárfestingu hafi togarinn verið fluttur til Akureyrar þar sem þeir réðust í miklar breytingar á skipinu. Þær hafi falist í því að umbreyta skipinu í frystitogara, sem hafi verið nefndur Akureyrin EA 10 og farið í sína fyrstu veiðiferð í desember 1983. Þetta hafi markað upphaf rekstrar Samherja í núverandi mynd. Baldvin Þorsteinsson er verðandi forstjóri Samherja. Hann er 41 árs. „Frá þeim tíma hefur Samherji vaxið og dafnað og er í dag eitt stærsta og öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins. Samherji er lóðrétt samþætt alhliða sjávarútvegsfyrirtæki sem stundar veiðar og vinnslu, sölu og landeldi. Félagið hefur ráðist í miklar fjárfestingar í fiskvinnslu á undanförnum árum og rekur eina fullkomnustu landvinnslu í heimi fyrir botnfisk á Dalvík. Samherji hefur alltaf haft höfuðstöðvar sínar á Akureyri og stærstan hluta starfseminnar á Eyjafjarðarsvæðinu.“ Mikið frumkvöðlastarf unnið Frá öndverðu hafi verið lögð [áhersla] á að verja hagnaði félagsins til fjárfestinga í rekstrinum með endurnýjun skipa, byggingu nýrra vinnsluhúsa og innleiðingu á nýrri tækni og búnaði. Miklar fjárfestingar í rekstrinum endurspeglist í háu eiginfjárhlutfalli félagsins. Margar þeirra tæknilausna sem notaðar eru í starfsemi Samherja hafi verið þróaðar í náinni samvinnu félagsins og íslenskra nýsköpunar- og hátæknifyrirtækja, sem hafi síðan selt búnaðinn á alþjóðlegum markaði með góðum árangri. Þannig hafi verið unnið mikið frumkvöðlastarf hjá félaginu alla tíð. „Á árinu 1994 hóf Samherji fjárfestingar í erlendum sjávarútvegsfyrirtækjum og var um tíma með mikil umsvif í veiðum og vinnslu erlendis. Átti félagið sjávarútvegsfyrirtæki víða í Evrópu og Norður-Ameríku áður en samstæðu félagsins var skipt upp á árinu 2018. Fjórum árum síðar, eða í lok árs 2022, var erlendur hluti starfseminnar seldur og hafa hin erlendu sjávarútvegsfyrirtæki verið undir eignarhaldi Alda Seafood í Hollandi frá þeim tíma.“ Ákvað að hætta áður en hann yrði gamall og leiðinlegur Í starfi hans sem forstjóri hafi skipt sköpum náið og gott samstarf sem hann hafi átt við aðra stofnendur og hluthafa félagsins. Þar vilji hann sérstaklega nefna Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóra útgerðarsviðs Samherja, Kolbrúnu Ingólfsdóttur, Helgu Steinunni Guðmundsdóttur og þeirra fjölskyldur. Segja megi að náið samstarf þeirra Kristjáns frænda hans, og það traust sem hafi ríkt á milli þeirra alla tíð, hafi verið ákveðin kjölfesta í rekstrinum. Baldvin Þorsteinsson tekur við af föður sínum í júní.Þórhallur Jónsson/Samherji „Ég ákvað fyrir löngu síðan að ég ætlaði að hætta sem forstjóri á mínum forsendum áður en ég yrði gamall og leiðinlegur. Eftir rúma fjóra áratugi í svona starfi er eðlilegt að líði að starfslokum. Allt hefur sinn tíma og sjálfum finnst mér þessi tímasetning heppileg. Ekki dugar að biða eftir lygnum sjó, í þessari grein kemur sá tími líklega seint. Þegar við frændurnir hófum rekstur þá komst skrifstofan fyrir heima í eldhúsi en í dag starfa rúmlega 800 manns hjá samstæðu Samherja. Ég er mjög stoltur af þeim stóra hópi.“ Framtíðin björt, að því gefnu að stjórnvöld tryggi rekstrarumhverfið Þorsteinn Már segir að sjávarútvegur hafi verið hans ástríða og ævistarf. Hann hafi fengið fyrsta launaseðilinn tólf ára hjá Útgerðarfélagi Akureyringa, sem fagni áttatíu ára afmæli í næstu viku. Íslenskur sjávarútvegur hafi tekið stakkaskiptum á undanförnum áratugum, ekki síst vegna örra tæknibreytinga. Hann hafi verið svo lánsamur að hafa fengið að lifa og hrærast í þeim sem beinn þátttakandi. „Á þessum tímamótum er mér efst í huga þakklæti fyrir samstarf með öllu því öfluga og hæfileikaríka starfsfólki sem við bárum gæfu til að ráða til Samherja. Þetta fólk, þið öll, er hjartað í félaginu og án ykkar framlags hefði farsæl uppbygging þess aldrei orðið að veruleika. Með ykkur öllum er ég sannfærður um að framtíð félagsins sé björt að því gefnu að stjórnvöld tryggi atvinnugreininni stöðugt rekstrarumhverfi.“ Þótt þessi ákvörðun hans marki kaflaskil sé hann ekki alveg sestur í helgan stein, enda sitji hann í stjórnum félaga. Þar megi nefna Samherja fiskeldi ehf. og Síldarvinnsluna hf. í Neskaupstað, þar sem hann hafi verið stjórnarformaður frá 2003. Fréttin hefur verið uppfærð.
Sjávarútvegur Tímamót Vistaskipti Mest lesið Þorsteinn Már hættir hjá Samherja Viðskipti innlent Högnuðust ríkulega en draga samt saman seglin í heimabyggð Viðskipti innlent Sannfærður um að fjárfestingin standi undir sér Viðskipti innlent Íslendingar vongóðir um að finna heitt vatn á Tenerife Viðskipti innlent Hótar Evrópusambandinu og Apple háum tollum Viðskipti erlent Láttu rétta fólkið taka eftir þér í vinnunni Atvinnulíf Landsbankinn og Arion lækka vexti Neytendur Valgerður Hrund hættir hjá Sensa Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Kaupa fasteignirnar sem hýsa starfsemi Samskipa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Högnuðust ríkulega en draga samt saman seglin í heimabyggð Íslendingar vongóðir um að finna heitt vatn á Tenerife Kaupa fasteignirnar sem hýsa starfsemi Samskipa Valgerður Hrund hættir hjá Sensa Sannfærður um að fjárfestingin standi undir sér Stefán endurkjörinn formaður Þorsteinn Már hættir hjá Samherja Samþykktu að selja Perluna fyrir 3,5 milljarða Einar Bárðarson tekur við umdeildu félagi Brynja yfirmaður markaðseftirlits Nasdaq Iceland Gísli Þór og Jón Garðar nýir framkvæmdastjórar hjá Terra Ráðin þjónustustjóri atNorth á Akureyri Gunnar Örn og Haraldur Hilmar nýir forstöðumenn hjá Arion Setja spurningarmerki við umfjöllun um Climeworks Íbúðaverð hækkað um 14,5 prósent á tveimur árum Stjórnarandstaðan í vasa hagsmunaaðila Af og frá að slakað sé á aðhaldi Ráðinn markaðsstjóri Bónuss Aka um Ísland í allt sumar og mynda vegakerfið í þrívídd Of snemmt að segja til um hvort vaxtalækkunarferlinu sé lokið í bili „Ég held að þú þurfir ný gleraugu“ Úthluta eftirstandandi hlutum í Íslandsbanka Bein útsending: Rökstyðja ákvörðun sína um lækkun vaxta Reitir fasteignafélag og HR efna til hugmyndasamkeppni fyrir nemendur Vaxtalækkunarferlið heldur áfram Birta nýja ákvörðun um stýrivexti í dag Ráðuneytið ógilti lóðaúthlutun fyrir milljarða Tólf milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Jakob Valgeir lét Guðbjart bróður sinn fara Niðurstöður álagningar birtar á fimmtudag Sjá meira