Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Urðu vitni að því þegar maður var háls­höggvinn

Starfsmenn íslenskra flugfélaga, sem sinntu pílagrímaflugi í Sádí-Arabíu á árum áður, urðu sumir fyrir þeirri óhugnanlegu lífsreynslu að verða vitni að opinberri aftöku. Þetta kemur fram í þætti Sýnar um pílagrímaflugið í nýrri þáttaröð um Flugþjóðina.

Innlent
Fréttamynd

Páll Edwald vill sæti á lista Mið­flokksins

Páll Edwald hefur ákveðið að gefa kost á sér á lista Miðflokksins í Reykjavík í vor. Hann er lögfræðingur og athafnamaður og líkt og nafnið gefur til kynna sonur Ara Edwald fyrrverandi forstjóra Mjólkursamsölunnar.

Innlent
Fréttamynd

Ó­heppi­leg tíma­setning

Seðlabankastjóri segir tímasetningu skattahækkana um áramótin hafa verið óheppilega. Stýrivöxtum var í dag haldið óbreyttum í ljósi verðbólguskots. Þingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Dagur B. Eggertsson, sem eiga sæti í fjárlaganefnd Alþingis, mæta í myndver og fara yfir málið í beinni í kvöldfréttum.

Innlent
Fréttamynd

Þriggja bíla á­rekstur við Sprengi­sand

Þriggja bíla árekstur varð á Bústaðavegi nærri Reykjanesbraut og Sprengisandi nú síðdegis og var minnst einn fluttur á slysadeild. Betur fór en á horfðist, að sögn slökkviliðs en búast má við truflunum á umferð þangað til frágangi lýkur á vettvangi.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er sárara en tárum taki“

„Ég er bara gjörsamlega harmi slegin og maður getur varla tjáð sig öðruvísi en að fara að gráta. Þetta er að gerast alveg til 2002. Þarna er þetta að eiga sér stað í 27 ár. Hvar var þetta kerfi? Hvar hefur þetta kerfi verið eiginlega?“ 

Innlent
Fréttamynd

Reyndi að sækja gras en fékk gervigras

Þrítugur serbneskur karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til fíkniefnalagabrots með því að sækja tvo pakka á pósthús, sem hann hélt að innhéldu samtals 2,5 kíló af maríhúana.

Innlent
Fréttamynd

Snúist ekki um að í­búar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið

Íbúar í hverfi 108 í Reykjavík eru uggandi yfir flutningi kaffistofu Samhjálpar í hverfið. Þeir segjast óttast að börn verði fyrir aðkasti eða vitni að ofbeldi eða vímuefnaneyslu sem þau gætu tekið inn á sig. Þeir óttast einnig að innbrotum muni fjölga samhliða flutningi kaffistofunnar. Þeir, ásamt fleirum, standa fyrir opnum íbúafundi um flutninginn í kvöld. 

Innlent
Fréttamynd

Yfir 60 leikskóla­stjórar komnir með nóg

Leikskólastjórar á öllum borgarreknum leikskólunum lýsa yfir verulegum áhyggjum af stöðu skólanna og gagnrýna borgaryfirvöld. Þeir krefjast aðgerða og lýsa yfir vonbrigðum með að ákveðið hafi verið að fresta gildistöku svokallaðar Reykjavíkurleiðar. Þolinmæðin sé á þrotum og skólastjórnendur treysti sér að óbreyttu ekki til að bera ábyrgð á þeirri stöðu sem uppi er innan skólanna.

Innlent
Fréttamynd

Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla

Yfirlæknir á sóttvarnasviði Landlæknis segir flesta þá sem smitist af berklum aldrei veikjast af berklasjúkdómi. Áhyggjur séu fyrir hendi að fleiri gætu veikst í viðkvæmum hópum sem séu líklegri til að veikjast en aðrir. Enginn hefur látist á Landspítala á þessu eða síðasta ári af völdum berkla.

Innlent
Fréttamynd

Án rennandi vatns í á annan sólar­hring

Þórshafnarbúar hafa búið við vatnsleysi í á annan sólarhring vegna bilunar í aðalæð á Brekknaheiði til Þórshafnar sem varð í gær. Í gærkvöldi tókst að gera við bilunina en skömmu seinna fór æðin í sundur á öðrum stað. Viðgerð stendur yfir en erfitt er um vik vegna vatnselgs sem safnast hefur fyrir þar sem bilunin varð.

Innlent
Fréttamynd

Skapi ó­öryggi þegar lög­regla sé allt í einu mætt á svæðið

Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands kallar eftir því að sett verði á stofn sérstök nefnd, sem samsvari rannsóknarnefnd samgönguslysa, til að rannsaka andlát og alvarleg atvik í heilbrigðiskerfinu. Það valdi heilbrigðisstarfsfólki óöryggi þegar lögregla sé farin að skoða mál án þess að það hafi verið metið af sérfræðingum innan heilbrigðiskerfisins.

Innlent
Fréttamynd

Lög­regla að fá skýrari mynd af and­láti konunnar

Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á Suðurlandi, segir enn skýrslutökur vegna andláts konu á tíræðisaldri á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Landsréttur hefur ekki úrskurðað um gæsluvarðhaldskröfu lögreglunnar en farið var fram á gæsluvarðhald tveggja starfsmanna en því hafnað í héraðsdómi.

Innlent
Fréttamynd

Breytingar hjá Við­reisn eftir af­sögn Guð­brands

Sigurjón Njarðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar. Í hans stað hefur Emilía Björt Írisardóttir Bachmann verið ráðin sem lögfræðingur þingflokksins. Ráðist var í breytingarnar í kjölfar afsagnar Guðbrandar Einarssonar sem þingmaður.

Innlent
Fréttamynd

Símafrí í grunn­skólum Kópa­vogs

Sáttmáli um símafrí í skóla- og frístundastarfi í Kópavogi hefur verið samþykktur að undangengnu samráði við nemendur, foreldra og fagfólk í grunnskólum í Kópavogi. Í sáttmálanum felst meðal annars að símar eru ekki sýnilegir í skóla- og frístundastarfi og frímínútur verða skjálausar.

Innlent
Fréttamynd

Eins og að kasta kjarn­orku­sprengju inn í fjöl­skyldur

Benedikta Eik Eiríksdóttir stofnaði á dögunum félagið Mitt DNA sem er félag rangfeðraðra. Hún segist vilja veita þeim stuðning sem eru í þessari stöðu og segir fólk alltaf verða að taka ábyrgð á mistökum sínum. Ekki eiga að leyna fólki upplýsingum um uppruna sinn.

Innlent
Fréttamynd

Þjóðin klofin gagn­vart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu

Stuðningur þjóðarinnar við veru Íslands í Atlantshafsbandalaginu hefur aukist frá því í fyrra en ríflega 78% segjast hlynnt aðild Íslands að bandalaginu. Nokkur hreyfing er einnig á afstöðu þjóðarinnar til Evrópusambandsaðildar, en þjóðin skiptist nokkurn vegin í tvennt í afstöðu sinni til málsins, þar sem 42% segjast hlynnt því að Ísland gangi í ESB og sama hlutfall er andvígt.

Innlent
Fréttamynd

Breið sam­staða á Al­þingi og Mið­flokkurinn aftur kominn um borð

Alþingi samþykkti í gær fyrstu formlegu varnar- og öryggisstefnu Íslands með stuðningi þingmanna allra flokka á Alþingi sem viðstaddir voru atkvæðagreiðsluna. Í umræðu um atkvæðagreiðsluna kepptust þingmenn við að koma upp í pontu og fagna þessum áfanga og hrósa hver öðrum fyrir samstarfið og þá vinnu sem lögð var í að ná breiðri sátt um málið.

Innlent
Fréttamynd

Berkla­smitaður maður lést á Land­spítalanum

Íslenskur karlmaður sem greindist með berkla í ágúst í fyrra eftir að hafa leitað á bráðamóttöku Landspítalans lést á spítalanum í janúarmánuði á þessu ári eftir að meðferð hafði ekki borið árangur.

Innlent