Innlent

Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi

Alexandros Katsanos, grískur karlmaður á fimmtugsaldri, hefur verið ákærður fyrir að flytja 43 kíló af sterku kókaíni til landsins með Norrænu í mars síðastliðnum. Um er að ræða eitt stærsta kókaínsmygl Íslandssögunnar.

Innlent

Leiðtogaskipti hjá Sósíal­ista­flokknum

Jón Ferdínand Estherarson er nýr formaður Sósíalistaflokksins eftir að hann lagði Sæþór Benjamín Randalsson í formannskjöri á aðalfundi flokksins um helgina. Umfangsmiklar breytingar á lögum flokksins voru samþykktar á fundinum sem var ekki auglýstur út á við.

Innlent

Fjöl­skyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grinda­víkur

Járngerður, hagsmunasamtök íbúa um framtíð og endurreisn Grindavíkur, skorar á forsætisráðherra, ríkisstjórn og þingmenn að leysa úr búsetumálum Grindvíkinga fyrir sumarfrí þingsins. Fasteignafélagið Þórkatla tilkynnti íbúum í síðustu viku sem eru með hollvinasamning að frá og með haustinu yrðu gistiheimildir þeirra takmarkaðar og íbúar þyrftu að tilkynna hvenær þeir gista.

Innlent

Eldhúsdagur runninn upp

Þingfundur á Alþingi stóð fram til klukkan hálftíu í gærkvöldi þar sem mestu púðri var eytt í umræður um samgönguáætlun eftir að frumvarp um brottfararstöð svokallaða var samþykkt í gærdag.

Innlent

Stefna á að opna kaffi­stofuna síðar í þessum mánuði

Vinna úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er á lokastigi hvað varðar kærur frá íbúum vegna málsmeðferðar Reykjavíkurborgar á flutningi Kaffistofu Samhjálpar á Grensásveg 46. Nefndin sér fram á að ljúka sinni vinnu fyrir mánaðamót en Samhjálp stefnir á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði.

Innlent

Sósíal­isti fékk boðs­ferð til Kína

Sæþór Benjamín Randalsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands, hefur fengið boð í átta daga ferð til Kína. Sæþór þakkar djúpan áhuga sinn á Kína því að hann hafi verið valinn sem fulltrúi Íslands á ráðstefnu fyrir unga evrópska leiðtoga. Sæþór hlakkar til að upplifa það öryggi sem ríkir í Kína og ferðast með háhraðlest.

Innlent

Olíu­mengun í Kópavogslæk

Olíumengun í Kópavogslæk hefur vakið athygli íbúa í bænum. Einn þeirra segir það ekki í fyrsta skipti sem einhvers konar mengun berst í lækinn.

Innlent

No Borders hvetja til and­spyrnu gegn brottfararstöð

„Við hvetjum almenning til að hafna þessum lögum og beita öllum ráðum við að koma í veg fyrir að þau verði færð í framkvæmd,“ segja samtökin No Borders í yfirlýsingu í tengslum við lög sem samþykkt voru á Alþingi í dag sem heimila stjórnvöldum að setja á fót svokallaða brottfararstöð. Samtökin hafa meðal annars beitt sér fyrir réttindum flóttafólks.

Innlent

Hring­braut eins og rúss­nesk rúlletta

Íbúi við Hringbraut í Reykjavík hefur ekki lengur tölu á alvarlegum slysum sem hún hefur séð við götuna og segir Hringbraut í núverandi mynd vera líkt og rússnesk rúlletta. Hún segir aðeins eitt til ráða við akstri óábyrgra ökumanna.

Innlent

Hand­tekinn á bíl með nagladekkjum

Ökumaður var handtekinn í Árbæ fyrr í dag fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Hann hafði þegar verið sviptur ökuréttindum auk þess sem bíllinn var búinn nagladekkjum og án númera. Hann var vistaður í fangageymslu lögreglu.

Innlent

„Þetta er hreinn upp­spuni“

Þorsteinn Már Baldvinsson, fyrrverandi forstjóri Samherja, ætlar ekki að eyða 25 milljónum króna í úthringiver í ágúst líkt og fullyrt er í fyrirsögn ristjórnarpistilsins Orðið á götunni á DV.

Innlent

Um­deild brottfararstöð leidd í lög

Umdeilt frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð er orðið að lögum. Í brottfararstöð munu útlendingar geta sætt frelsissviptingu vegna ákvörðunar um að þeir skuli yfirgefa landið eða meðan mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar. Fjöldi mannúðarsamtaka hefur gagnrýnt frumvarpið, sér í lagi vegna þess að það heimilar frelsissviptingu barna. Slíkri frelsissviptingu eru þó settar þröngar skorður.

Innlent

Hætta aftur rann­sókn á Múlaborgarmálum

Lögreglan hefur aftur fellt niður rannsókn á málum er tengjast meintum kynferðisbrotum gegn þremur börnum á leikskólanum Múlaborg. Ríkissaksóknari hafði gert lögreglunni að rannsaka málin betur en lögregla segir þá ákvörðun byggða á misskilningi.

Innlent