Erlent

Fréttamynd

Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug

Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur birt myndband af frumútgáfu ES-30 rafmagnsflugvélar sinnar í reynsluakstri á flugvellinum í Plattsburgh í norðurhluta New York-ríkis. Slíkar prófanir á jörðu niðri eru þýðingarmikill þáttur í undirbúningi fyrir fyrsta flugið.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Bregðast við skammarbréfi Þor­gerðar og fé­laga

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins heitir því að ráðast í aðgerðir eftir að ellefu Schengen-ríki, þar á meðal Ísland, kröfðust þess að Evrópusambandsríki hertu á útgáfu vegabréfsáritana til rússneskra ríkisborgara. Þar gagnrýndu þau óbeint Frakka, Ítali og Spánverja sem enn taka á móti hundruðum þúsunda rússneskra ferðamanna á ári.

Erlent
Fréttamynd

Fær fangelsisfrí til að heim­sækja móður sína

Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit krónprinsessu Noregs, hefur hvorki fengið að heimsækja móður sína né vera viðstaddur mikilvæga læknisfundi er varða heilsufar hennar. Þetta gagnrýna verjendur hans en hann situr nú í gæsluvarðhaldi á meðan beðið er þess að dómur verði kveðinn upp í máli hans. Móðir hans veiktist alvarlega í vikunni en hún þjáist af lungnatrefjun.

Erlent
Fréttamynd

Danska lög­reglan komin með nóg af drukknum börnum

Dönsk lögregluyfirvöld eru komin með nóg af hegðun drukkinna ungmenna í Árósum, þá sérstaklega í tívolíi borgarinnar á föstudagskvöldum. Framkvæmdastjóri tívolísins segist taka undir með áhyggjum lögregluyfirvalda en segir ekki á dagskránni að hækka aldur þeirra sem hleypt er inn í tívolíið.

Erlent
Fréttamynd

Hafði leigu­tekjur af hús­næði krúnunnar

Andrew Mountbatten-Windsor hafði þrjá bústaði í eigu bresku krúnunnar í útleigu þar til í apríl síðastliðnum og hafði af þeim leigutekjur sem runnu til hans en ekki krúnunnar. Þetta leiðir skýrsla bresku ríkisendurskoðunarinnar í ljós, sem ráðist var í vegna hneykslismálsins sem tengist vináttu Andrew við milljarðamæringinn og barnaníðinginn Jeffrey Epstein.

Erlent
Fréttamynd

Breyttu fóstur­vísum af meiri ná­kvæmni en áður

Vísindamönnum við Columbia-háskólann í Bandaríkjunum hefur tekist að breyta erfðamengi fósturvísa af fordæmalausri nákvæmni. Afrekið þykir geta leitt til þess að hægt verði að gefa börnum ákveðin einkenni og getu eftir pöntunum en tilhugsunin um slíkt hefur verið verulega umdeild um árabil.

Erlent
Fréttamynd

Segir Kúbu næsta á eftir Íran

Bandaríkin beittu í gær Miguel Díaz-Canel, forseta Kúbu, refsiaðgerðum. Auk hans voru eiginkona hans og þrír aðrir einnig beittir refsiaðgerðum en Bandaríkjamenn hafa sett verulegan þrýsting á nágranna sína og hefur Donald Trump hótað hernaðaraðgerðum gegn eyríkinu.

Erlent
Fréttamynd

Repúblikanar unnu kjör­dæma­stríðið

Útlit er fyrir að Repúblikanar geti grætt um tíu þingsæti í fulltrúadeildinni vegna breytinga á kjördæmum fyrir þingkosningarnar vestanhafs í nóvember. Það er að segja, ef allt fer eftir væntingum þeirra. Demókratar þurfa einungis nokkur sæti til að ná meirihluta í fulltrúadeildinni og bæði kannanir og sagan gefa Demókrötum byr undir báða vængi.

Erlent
Fréttamynd

Pelley látinn fjúka og ó­vissa uppi um fram­tíð 60 mínútna

Óvíst er um framtíð fréttaskýringaþáttarins 60 mínútur eftir að blaðamanninum Scott Pelley var sagt upp störfum í vikunni. Víst þykir að framleiðslu þáttarins verði haldið áfram en óttast er um veg hans og virðingu nú þegar lykilstarfsmenn eru horfnir á braut. 

Erlent
Fréttamynd

Maður sem tók tíu í gíslingu í Kali­forníu skotinn til bana

Maður sem tók tíu skólastarfsmenn í gíslingu í Kaliforníu í gær var skotinn til bana af lögregluþjónum. Eftir tæplega sextán klukkustunda umsátur um bygginguna þar sem maðurinn hélt fólkinu réðust starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) til atlögu og felldu hann.

Erlent
Fréttamynd

Týndur í sex daga en komst einn niður af Everest

Reynslumikill nepalskur leiðsögumaður sem týndist á Everest í síðustu viku fannst á lífi í morgun. Dawa Sherpa tókst að lifa af eftir að hafa týnst í um 7.500 metra hæð fyrir sex dögum og er hann sagður hafa skriðið aftur til grunnbúðanna við fjallið.

Erlent
Fréttamynd

Taívanar líta til Úkraínu og Íran

Yfirvöld í Taívan ætla að fjölga verulega eldflaugum sem ætlað er að granda skipum. Markmiðið er að styrkja varnir eyríkisins gegn mögulegri innrás Kínverja á komandi árum og stendur til að fjölga eldflaugum og flugskeytum verulega. Ráðamenn í eyríkinu vilja læra af átökunum í bæði Úkraínu og Persaflóa, þar sem ríki hafa varist árásum mun öflugri andstæðinga.

Erlent
Fréttamynd

Sam­þykkja að koma á vopna­hléi

Leiðtogar Ísraels og Líbanon hafa samþykkt að vopnahléi verði komið á landanna á milli. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu Ísraels, Líbanon og Bandaríkjanna sem send var út í nótt. Samkvæmt samkomulaginu þarf Hezbollah að hætta öllum árásum á Ísrael og flytja alla liðsmenn sína frá suðurhluta Líbanon.

Erlent
Fréttamynd

Vilja banna rúss­neska túr­ista

Ísland er sagt vera meðal þeirra ellefu Evrópuríkja sem krefjast þess að Evrópusambandsríki hætti að veita rússneskum ferðamönnum vegabréfsáritanir. Ráðherrar landanna munu hafa sent framkvæmdastjórn ESB bréf þar sem þeir segji það óboðlegt að rússneskir ferðamenn fái að sóla sig á evrópskum ströndum á meðan sprengjur dynja á úkraínskum borgum.

Erlent
Fréttamynd

Á­rásir á Pétursborg á fyrsta degi fjárfestaráðstefnu Pútíns

Úkraínumenn gerðu í morgun árásir með langdrægum drónum á olíuinnviði og hernaðarleg skotmörk í Pétursborg. Miklir eldar kviknuðu við árásirnar en árleg viðskiptaráðstefna hófst í Pétursborg í morgun. Úkraínumenn segjast hafa ráðist á að minnsta kosti tuttugu olíuvinnslur á undanförnum 33 dögum.

Erlent
Fréttamynd

Sami flug­maðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit

Bandaríski flugmaður F-15E herþotunnar sem skotin var niður yfir Íran í vor var einnig skotinn niður yfir Kúveit, nokkrum vikum áður. Hann var því tvisvar sinnum skotinn niður á rétt rúmum mánuði, sem fyrrverandi herforingi líkir við að verða tvisvar sinnum fyrir eldingu.

Erlent