Viðskipti
1 2 3 4 5 6 7 … 334 ›
Rúmlega þriðjungs samdráttur í olíuvinnslu í Rússlandi Framleiðslugeta Rússa á olíu hefur dregist verulega saman og er það að miklu leyti vegna árása Úkraínumanna á olíuvinnslur og tengda innviði. Langan tíma gæti tekið að leysa vandamálið en fregnir af löngum röðum við bensínstöðvar verða sífellt algengari og bensínverð hefur hækkað mjög. Viðskipti erlent 1.10.2025 16:04
Múlakaffi nýtir farþegamiðstöðina yfir veturinn Faxaflóahafnir hafa gert samning við eigendur Múlakaffis um að nýta samkomu- og veislusali í nýrri farþegamiðstöð sem rís nú á Skarfabakka við Viðeyjarsund á veturna. Það er þegar skemmtiferðaskip eru ekki að koma til landsins í eins miklum mæli og á sumrin. Viðskipti innlent 1.10.2025 14:50
Burger King opnar fyrsta staðinn á Grænlandi Til stendur að opna Burger King-veitingastað á Grænlandi í lok mánaðar. Veitingastaðurinn verður fyrsti Burger King-staðurinn þar í landi en hann verður að finna í Sisimiut. Viðskipti erlent 1.10.2025 13:32
„Við munum gæta réttar kröfuhafa í hvívetna“ Arnar Þór Stefánsson og Unnur Lilja Hermannsdóttir, sem skipuð voru skiptastjórar þrotabús Play í gær segja að skipti búsins séu á algjörum byrjunarreit. Tveimur kröfum hafi þegar verið lýst í búið en eftir eigi að auglýsa eftir kröfum. Kröfulýsingarfrestur verði að öllum líkindum fjórir mánuðir. Þau gera ráð fyrir því að skiptin verði yfir hausamótunum á þeim næstu misseri og benda á að skiptum á þrotabúi Wow air er ekki enn lokið, rúmum sex árum eftir gjaldþrot. Viðskipti innlent 1.10.2025 12:40
Viðkvæm staða í björgunaraðgerðum Play Europe Skuldabréfaeigendur í Play keppast nú við að bjarga dótturfélagi flugfélagsins á Möltu með því að ná samningum á ný við flugvélaleigusala svo starfsemin geti haldið þar áfram. Í upptöku af starfsmannafundi dótturfélagsins á Möltu sem fréttastofu hefur undir höndum kemur fram að leigusalarnir hafi kippt að sér höndum við fall Play á Íslandi og staðan sé flókin. Viðskipti innlent 1.10.2025 12:11
Sýn og Creditinfo í samstarf um Framúrskarandi fyrirtæki Sextánda árið í röð birtir Creditinfo lista yfir þau fyrirtæki í íslensku atvinnulífi sem skara fram úr í rekstri. Til þess að hampa þeim titli þurfa fyrirtækin að standast ströng skilyrði. Creditinfo og Sýn hafa tekið höndum saman um kynningu á verkefninu til þriggja ára. Framúrskarandi fyrirtæki 1.10.2025 12:01
Horfa fram á tugmilljarða samdrátt og bíða í ofvæni eftir loðnufréttum Útlit er fyrir tugmilljarða tekjusamdrátt hjá uppsjávarfyrirtækjum í ljósi nýrrar alþjóðlegrar ráðgjafar um veiði á makríl og kolmunna. Formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir fyrirséð að útgerðir og vinnslur muni þurfa að draga saman seglin, sér í lagi ef loðnan bregst. Viðskipti innlent 1.10.2025 11:48
Hætti korteri eftir peppfund með Möltufólkinu Halldór Guðfinnsson, flugrekstrarstjóri Play og maltneska dótturfélagsins, fékk uppsagnarbréf hvað íslenska félagið varðar afhent fimmtán mínútum eftir starfsmannafund maltneska félagsins og sagði í kjölfarið upp störfum á Möltu. Á fundinum sagði hann að hann væri einn tveggja starfsmanna félagsins á Íslandi sem héldi vinnunni og hann væri viss um að starfsemin á Möltu væri fjármögnuð. Viðskipti innlent 1.10.2025 11:20
Isavia gefur strandaglópum engin grið Strandaglópar sem komast ekki til landsins vegna falls Play og eru með bíla sína á bílastæði Isavia við Keflavíkurflugvöll þurfa að greiða fyrir viðbótardaga í stæðunum. Viðskipti innlent 1.10.2025 10:41
Ásgeir og Darri til Landslaga Þeir Ásgeir Elíasson og Darri Sigþórsson hafa varið ráðnir til lögmannsstofunnar Landslaga. Þar bætast þeir í hóp átján lögmanna og lögfræðinga sem starfa þar. Viðskipti innlent 1.10.2025 10:11
Sahara og Olís tilnefnd til tvennra alþjóðlegra verðlauna Auglýsingastofan Sahara og Olís hafa verið tilnefnd til European Paid Media Awards 2025 fyrir herferðina Sumarleikur Olís 2024. Í tilkynningu segir að herferðin sé tilnefnd í tveimur flokkum: Paid Media Campaign of the Year og Paid Social Campaign of the Year, fyrir það sem kallað er „Engaging Gamification for Brand Loyalty“ á vefsíðu verðlaunanna. Viðskipti innlent 1.10.2025 10:11
Hvetur stjórnvöld til að veita ferðaskrifstofum lán eins og í Covid Sigurður Kolbeinsson, forstjóri Kólumbus ævintýraferða og Ferðaskrifstofu eldri borgara, hvetur stjórnvöld til að fara sömu leið og í Covid og lána ferðaskrifstofum pening svo þau geti greitt fyrir tap vegna gjaldþrots Play. Minni fyrirtæki sérstaklega geti farið illa út úr gjaldþroti Play. Viðskipti innlent 1.10.2025 09:35
Hreinsun þakrenna fyrirbyggir skemmdir Haustið er tími fjúkandi laufa og rigninga og þá fer álagið að aukast á þakrennum landsmanna. Ágúst Ármann, framkvæmdastjóri Skrúbb, segir mikilvægt að sinna reglulegu viðhaldi svo forðast megi kostnaðarsamar skemmdir. Fyrirtækið hefur á undanförnum árum sérhæft sig í hreinsun, viðgerðum og skiptum á rennum fyrir einstaklinga og húsfélög. Samstarf 1.10.2025 09:16
Búið að greiða laun og barnabætur Vegna hægagangs í vinnslum hjá Reiknistofu bankanna, RB, bárast greiðslur frá Tryggingastofnun og Fjársýslu ríkisins seinna í dag en venjulega. Búið er að greiða laun opinberra starfsmanna og barnabætur. Viðskipti innlent 1.10.2025 08:34
Gjörbreyttar kröfur og vinna ekki lengur aðeins til að hafa í sig og á Sigrún Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs, samtaka mannauðsfólks á Íslandi, segir mannauðsmál í heiminum standa á tímamótum. Mikilvægt sé þó að horfa ekki til framtíðar sem fjarlæga ógn, heldur ævintýri sem við mótum saman. Atvinnulíf 1.10.2025 07:00
Stefna á að hefja starfsemi á Möltu innan tíu vikna Unnið er að því að færa átta þotur Play yfir til maltneska dótturfélagsins Fly Play Europe, og stefnt er að því að hefja starfsemi á ný í síðasta lagi eftir tíu vikur. Kröfuhafar sem tóku þátt í skuldabréfaútboði Play í ágúst geta óskað eftir því að fá maltneska félagið leyst til sín. Boðað hefur verið til kröfuhafafundar mánudaginn 6. október. Viðskipti innlent 30.9.2025 21:45
Snaps teygir anga sína út á Hlemm Veitingastaðurinn Snaps teygir nú anga sína á Hlemm Mathöll. Rekstrarstjóri staðarins vonast til að hægt verði að opna staðinn í byrjun nóvember. Viðskipti innlent 30.9.2025 19:56
„Það er svo langt síðan að við höfðum ekki trú á Play“ Forstjóri Úrvals Útsýnar segist hafa hætt viðskiptum við flugfélagið Play fyrir mörgum mánuðum. Hún gagnrýnir stjórnvöld fyrir að vera ekki með betra eftirlit með slíkum rekstri. Fjöldi ferðaskrifstofa sitji uppi með gríðarlegt tjón í kjölfar gjaldþrots Play. Viðskipti innlent 30.9.2025 17:35
Arnar Þór og Unnur Lilja skipta búi Play Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur hefur úrskurðað Fly Play hf. gjaldþrota. Arnar Þór Stefánsson, lögmaður á Lex, og Unnur Lilja Hermannsdóttir, lögmaður á Landslögum, hafa verið skipuð skiptastjórar búsins. Viðskipti innlent 30.9.2025 15:57
Bændaferðir færa sig í skemmtiferðasiglingar Ferðaþjónusta bænda hf. einnig þekkt undir vörumerkjunum Bændaferðir og Hey Iceland, hefur nýverið fest kaup á öllu hlutafé Súlu Travel sem sérhæfir sig í skemmtiferðasiglingum á vegum Norwegian Cruise Line (NCL). Norwegian Cruise Line siglir um allan heim. Viðskipti innlent 30.9.2025 15:20
Fallið frá kröfum um neyðarfjarskipti á hálendinu Ekki verður lengur krafist að neyðarfjarskiptakerfi verði byggt upp á hálendisvegum og uppbygging fjarskiptasenda við stofnvegi verður frestað þar sem fjármagn fékkst ekki frá ríkinu til þess að leysa eldra talstöðvarkerfi af hólmi. Viðskipti innlent 30.9.2025 15:18
Play með sex prósent flugsæta til og frá landinu Miðað við nýlega flugáætlun Play fyrir næsta árið hefði félagið verið með tæplega sex prósent af öllum flugsætum til og frá Keflavíkurflugvelli næsta árið hefði félagið ekki farið í þrot. Þrátt fyrir helmingi minna umfang hefði flugfélagið áfram verið næststærsti viðskiptavinur Isavia á eftir Icelandair sem er með 65 prósent flugsæta. Viðskipti innlent 30.9.2025 15:00
Hrun í makríl og kolmunna Alþjóðahafrannsóknaráðið hefur veitt ráðgjöf um veiðar á norsk-íslenskri síld, makríl og kolmunna fyrir árið 2026. Ráðið leggur til 70 prósent minni veiðar á makríl en á yfirstandandi ári og 41 prósent minni veiði á kolmunna. Aftur á móti er þriðjungshækkun ráðlögð í veiðum á norsk-íslenskri vorgotssíld. Viðskipti innlent 30.9.2025 14:36
Eigandinn hættir sem forstjóri Daniel Ek eigandi sænsku streymisveitunnar Spotify mun stíga til hliðar sem forstjóri og mun þess í stað leiða stjórn félagsins. Ek stofnaði streymisveituna árið 2006. Breytingarnar taka gildi 1. janúar 2026. Viðskipti erlent 30.9.2025 13:11
Fall Play áfall en að einhverju leyti fyrirséð Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir fall Play áfall en að einhverju leyti hafi það verið fyrirséð. Stjórnendur fyrirtækisins hafi verið mjög opnir með rekstrarerfiðleika félagsins. Tilkynnt var um gjaldþrot félagsins í gær. Um 400 manns misstu vinnuna og eru þúsundir strandaglópar á Íslandi og víða um heim vegna þess. Viðskipti innlent 30.9.2025 12:54
Segir ekki honum að kenna að Play hafi farið á hausinn Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna og flugstjóri hjá Icelandair segist ekki finna til ábyrgðar vegna gjaldþrots Play. Play kvartaði til Samkeppniseftirlitsins eftir fullyrðingar hans í fjölmiðlum byrjun mánaðar þar sem hann spáði gjaldþroti Play. Hann segist hafa áhyggjur af orðspori Íslands í flugrekstri. Viðskipti innlent 30.9.2025 12:19
Eðlilegt ef farið verður yfir eftirlit með flugfélögum Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að sér þætti ekki óeðlilegt ef farið verður yfir ákveðna þætti sem snúa að eftirliti með flugfélögum, í kjölfar falls Play. Viðskipti innlent 30.9.2025 12:11
Höggið á íslenska ferðaþjónustu ætti að vera takmarkað Arion banki segir í nýrri efnahagsspá sinni að höggið við brotthvarf Play á íslenska ferðaþjónustu ætti að vera takmarkað. Hlutdeild Play í komum erlendra ferðamanna til landsins hafi verið komin undir tíu prósent við fall félagsins í gær. Hlutdeild Icelandair sé um fjörutíu prósent til samanburðar. Áhrifin verði þó alltaf einhver á flugframboð og atvinnuleysi. Viðskipti innlent 30.9.2025 11:31
Þjóðarskútan sé „vel í stakk búin til að sigla milli skers og báru í úfnum sjó“ Ný efnahagsspá Arion banka gerir ráð fyrir að þjóðarskútan „haldi til hafs á ný eftir samdrátt síðasta árs.“ Þar segir að innlend eftirspurn, með einkaneyslu í broddi fylkingar, hafi verið atkvæðameiri en áður var reiknað með og muni halda sínu hlutverki sem driffjöður hagvaxtar. Viðskipti innlent 30.9.2025 11:05
Gjaldþrotaskiptabeiðni Play tekin fyrir í héraðsdómi Gjaldþrotaskiptabeiðni Fly Play hf. verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 11. Búast má við því að félagið verði úrskurðað gjaldþrota síðar í dag. Viðskipti innlent 30.9.2025 10:52
Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent