„Þetta var ekki gert til að flækja, alls ekki“ Það var alls ekki markmiðið að flækja veitingu starfsleyfa þegar ný reglugerð var sett á síðasta kjörtímabili, að sögn fyrrverandi umhverfisráðherra, heldur þvert á móti að „einfalda, einfada, einfalda.“ Hann segir að sú staða sem nú er komin upp sé annað hvort vegna mistúlkunar á regluverkinu eða mistaka við innleiðingu þess. Viðskipti innlent 17.6.2025 15:01
Gunnþór verður formaður SFS í stað Guðmundar Gunnþór Ingvason, varaformaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og forstjóri Síldarvinnslunnar hf., mun taka við formennsku í samtökunum fram að næsta aðalfundi. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims sagði af sér sem formaður í gær. Viðskipti innlent 17.6.2025 12:33
Heilbrigðiseftirlitið varaði við breytingunum Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur varaði á sínum tíma við nýju regluverki sem kveður á um fjögurra vikna auglýsingaskyldu fyrir starfsleyfi. Regluverkið hefur lagt stein í götu veitingamanna en ný reglugerð tekur að óbreyttu gildi í vikunni, að sögn umhverfisráðherra, og því heyrir svokallaða fjögurra vikna reglan sögunni til. Viðskipti innlent 17.6.2025 12:31
Kvika segir hvorugt tilboð nægilega gott Kvika banki hefur afþakkað boð bæði Arion banka og Íslandsbanka upp í samrunadans. Stjórn bankans telur tilboðin hvorugt endurspegla virði Kviku. Viðskipti innlent 13.6.2025 15:58
Keyptu Björgólf strax út úr Heimum Kaup Heima á Grósku ehf. af þeim Andra Sveinssyni, Björgólfi Thor Björgólfssyni, og Birgi Má Ragnarssyni eru nú frágengin. Kaupverðið var greitt með hlutum í Heimum og þeir urðu stærstu hluthafar félagsins. Samhliða uppgjörinu keyptu þeir Andri og Birgir Már Björgólf Thor út úr Heimum, en þeir hafa verið kallaðir hægri og vinstri hönd hans. Viðskipti innlent 13.6.2025 15:50
Stólaleikur í Svörtuloftum Breytingar hafa verið gerðar á framkvæmdastjórn Seðlabanka Íslands. Breytingar eru þó þess eðlis að enginn hættir og enginn nýr kemur til starfa, heldur skipta þrír stjórnendur aðeins um stóla. Viðskipti innlent 13.6.2025 15:08
Jón stýrir markaðsmálunum hjá N1 Jón Cleon hefur verið ráðinn forstöðumaður markaðsmála hjá N1 og hefur þegar hafið störf. Viðskipti innlent 13.6.2025 14:48
Stefán nýr útvarpsstjóri Sýnar Stefán Valmundarson hefur verið ráðinn útvarpsstjóri Sýnar. Hann mun stýra starfsemi útvarpsstöðvanna Bylgjunnar, FM957, X977, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar og hlaðvarpsveitunnar TAL. Viðskipti innlent 13.6.2025 13:57
Kastrup opnar á ný eftir karp við heilbrigðiseftirlitið Veitingastaðurinn Kastrup við Hverfisgötu hefur opnað dyr sína á ný en nýir rekstraraðilar ráku sig á vegg í regluverki heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur sem tafði fyrir opnuninni. Búið er að afnema reglugerðina. Viðskipti innlent 13.6.2025 11:31
Kjarasamningar undirritaðir fyrir nær allt launafólk Kjarasamningar til ársins 2028 hafa verið undirritaðir fyrir nær allt launafólk bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði í yfirstandandi samningalotu sem hófst í febrúar 2024. Í heild er áætlað að gerðir hafi verið um 250 kjarasamningar í núverandi lotu. Á kjörskrám stéttarfélaganna voru um 189 þúsund manns. Viðskipti innlent 13.6.2025 10:40
Enn færri komast að í HR en vilja Heildarfjöldi umsókna í Háskólann í Reykjavík, að meðtöldum óyfirförnum umsóknum erlendis frá, er tæplega 4.400 og því á pari við aðsóknina fyrir haustönn 2024. Yfirfarnar umsóknir í ár eru þó eilítið færri, tæplega 2.800 en voru á sama tíma í fyrra tæplega 2.900. Viðskipti innlent 13.6.2025 10:00
Sigríður Theódóra til Aton Sigríður Theódóra Pétursdóttir hefur verið ráðin til starfa sem ráðgjafi hjá samskipta- og hönnunarstofunni Aton. Viðskipti innlent 13.6.2025 09:55
Dæmdur skattsvikari beri enga ábyrgð á fjármálum fyrirtækisins Forstjóri Úrvals Útsýnar segir að Viktor Heiðdal Sveinsson, sem sakfelldur var árið 2021 fyrir skattalagabrot í tengslum við ferðaskrifstofur sínar en starfar nú sem ráðgjafi hjá Úrval Útsýn, hafi ekkert með fjármál fyrirtækisins að gera. Hann sjái aðeins um skipulagningu ferða. Viðskipti innlent 12.6.2025 21:52
Stórfyrirtæki flýi borgina vegna skatta Sjálfstæðismenn í Reykjavík munu leggja til að borgarstjórn samþykki að lækka álagningarhlutfall fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði og íbúðarhúsnæði við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026, þannig að tekjur borgarsjóðs af álögðum fasteignagjöldum hækki ekki milli áranna 2025 og 2026. Oddviti þeirra segir að mörg stærstu fyrirtæki landsins hafi flúið borgina undanfarin ár vegna hæstu fasteignaskatta á höfuðborgarsvæðinu. Viðskipti innlent 12.6.2025 17:06
Skúli og félagar aftur sýknaðir af milljarðakröfum Skúli Mogensen og aðrir stjórnarmenn Wow air hafa verið sýknaðir af öllum kröfum þátttakenda í skuldafjárútboði Wow air rétt fyrir fall félagsins. Þátttakendurnir kröfust ríflega 2,6 milljarða króna í skaðabætur. Viðskipti innlent 12.6.2025 16:05
Magnús Þór leggur Samtökum iðnaðarins ráð Magnús Þór Gylfason hefur verið ráðinn til Samtaka iðnaðarins sem ráðgjafi og hefur þegar hafið störf. Viðskipti innlent 12.6.2025 13:22
Búinn að afnema regluverkið sem tafði fyrir opnun Kastrup Regluverk sem hefur gert veitingamönnum í Reykjavík lífið leitt að undanförnu hefur að hluta verið afnumið. Regluverkið olli því meðal annars að Kastrup þurfti að fresta opnun sinni á ný. Þá hyggst ráðherrann einnig aflétta regluverki sem hefur tafið fyrir opnun kaffirisans Starbucks á Íslandi. Viðskipti innlent 12.6.2025 13:19
Segir ljóst að SVEIT hafi eitthvað að fela Formaður Eflingar segir tregðu Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði eða SVEIT til að afhenda samkeppniseftirlitinu gögn er varða kjarasamninga við stéttarfélagið Virðingu vera skýrt merki um að samtökin hafi eitthvað að fela. Framkvæmdarstjóri SVEIT segir ekki koma til greina að afhenda gögnin ef þeim verður deilt með Eflingu. Viðskipti innlent 12.6.2025 12:21
Íris nýr sviðsstjóri hjá VSB verkfræðistofu Íris Þórarinsdóttir hefur tekið við stöðu sviðsstjóra samgangna og skipulags hjá VSB verkfræðistofu. Viðskipti innlent 12.6.2025 10:27
SVEIT kærir dagsektir Samkeppniseftirlitsins Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) mun kæra ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um álagningu dagsekta. Engar sektir verða lagðar á SVEIT þar til niðurstaða áfrýjunarnefndar liggur fyrir um skyldu SVEIT til afhendingar gagna. Viðskipti innlent 12.6.2025 09:17
Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+ og Stöð 2 Sport sameinast undir merki Sýnar Í dag sameinast vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Stöð2+ og Stöð 2 Sport undir merki Sýnar. Viðskipti innlent 12.6.2025 08:30
Starbucks frestar opnun fram í lok sumars Opnun kaffihúsa Starbucks á Íslandi hefur verið frestað fram í ágúst. Framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi segir ástæðu tafanna vera seinagangur við leyfisveitingar. Ný reglugerð borgarinnar um hollustuhætti hafi tafið ferlið enn frekar. Viðskipti innlent 12.6.2025 07:07
SVEIT þarf að greiða milljón á dag þar til gögn eru afhent Samkeppniseftirlitið hefur lagt dagsektir á Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) vegna brota samtakanna á lagaskyldu til þess að afhenda eftirlitinu gögn. Dagsektirnar eru lagðar á til þess að knýja á um að SVEIT fari að samkeppnislögum og afhendi umkrafin gögn. SVEIT hefur kært álagninguna. Viðskipti innlent 12.6.2025 06:56
Embla Medical hlaut útflutningsverðlaun forsetans og Ragnar Kjartans heiðraður Fyrirtækið Embla Medical hlaut í dag Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2025. Sveinn Sölvason, forstjóri fyrirtækisins veitti verðlaununum viðtöku við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Samhliða var Ragnar Kjartansson heiðraður fyrir störf sín á alþjóðavettvangi. Vegna fjarveru Ragnars tók Börkur Arnarson, eigandi i8 gallerí, við verðlaununum fyrir hans hönd. Viðskipti innlent 11.6.2025 16:02