Innlent
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 334 ›
Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Verjandi Matthíasar Björns Erlingssonar sem var dæmdur í fjórtán ára fangelsi fyrir manndráp í Gufunesmálinu svokallaða segir dómara í málinu ekki taka mið af þeim augljósu hagsmunum sem Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson hafi af því að fegra eigin hlut og sverta þátt Matthíasar. Innlent 26.9.2025 16:32
Anna ljósa fallin frá Anna Eðvaldsdóttir, betur þekkt sem Anna ljósa, er látin 66 ára að aldri eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Hún var ein þekktasta ljósmóðir landsins, starfaði við fagið í tæpa þrjá áratugi og gaf út bækur með góðum ráðum fyrir verðandi og nýbakaða foreldra. Innlent 26.9.2025 15:23
Ásmundur Einar segir skilið við stjórnmálin Ásmundur Einar Daðason, ritari Framsóknarflokksins og fyrrverandi ráðherra, hefur látið af embætti ritara Framsóknar. Hann segir skilið við stjórnmálin og snýr sér að öðrum verkefnum. Innlent 26.9.2025 15:02
Bætir þrepi við greiðsluþátttökukerfið Heilbrigðisráðherra hyggst gera breytingar á kerfi fyrir greiðsluþátttöku sjúkratryggðra um næstu áramót. Breytingarnar, sem eiga að spara Sjúkratryggingum Íslands fjögur hundruð milljónir króna á ári, felast í að bæta þrepi við greiðsluþátttökukerfið. Innlent 26.9.2025 14:44
„Ég bý ekki einu sinni í Reykjavík“ Katrín Júlíusdóttir fyrrverandi ráðherra Samfylkingarinnar og rithöfundur segir af og frá að hún íhugi framboð í komandi sveitarstjórnarkosningum. Framboðstankur hennar sé tómur og hugur hennar sé við glæpasagnaskrif. Innlent 26.9.2025 14:38
Táningsstúlkur dæmdar fyrir að flytja inn efni sem var ekki bannað Nítján ára og sautján ára táningsstúlkur hafa verið dæmdar í tólf mánaða fangelsi fyrir tilraun til að flytja inn Oxycontin. Þær voru gripnar með tuttugu þúsund töflur, sem merktar voru sem Oxycontin, á Keflavíkurflugvelli en töflurnar innihéldu allt annað efni. Það efni er hættulegt en var ekki að finna á lista yfir efni sem bönnuð eru hér á landi. Því voru þær sýknaðar af innflutningnum en sakfelldar fyrir tilraun til innflutnings. Efninu hefur nú verið bætt á bannlista. Innlent 26.9.2025 14:36
Ekki liðnir níu dagar þegar það var aftur brotist inn Ekki hafa liðið níu dagar frá byrjun skólaársins án þess að brotist hafi verið inn í Gamla Garð, stúdentaíbúðir við Háskóla Íslands. Íbúarnir settu upp skilti þar sem taldir eru dagarnir síðan síðast var brotist inn en það er aftur komið niður í núll. Innbrotsþjófarnir létu til skarar skríða í gærkvöldi. Innlent 26.9.2025 13:19
Þungir dómar í Gufunesmálinu: „Það eru ekki alltaf jólin“ Þeir Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson voru dæmdir í sautján ára fangelsi og Matthías Björn Erlingssyni í fjórtán ára fangelsi fyrir að verða Hjörleifi Hauki Guðmundssyni að bana í Gufunesmálinu svokallaða. „Það eru ekki alltaf jólin,“ sagði Stefán skömmu eftir dómsuppsögu. Innlent 26.9.2025 12:17
Dómsuppkvaðning í Gufunesmálinu og óveður í aðsigi Í hádegisfréttum fjöllum við um dóma sem féllu nú fyrir hádegið í Gufunesmálinu svokallaða. Innlent 26.9.2025 11:42
Meirihluti íbúa ánægður með flutning stórtónleika á sunnudag Meirihluta þeirra sem tóku þátt í könnun um bæjarhátíðina Í túninu heima á vef Mosfellsbæjar töldu það góða breytingu að færa stórtónleika frá laugardagskvöldi yfir á sunnudagseftirmiðdegi. Alls töldu 64 prósent breytinguna mjög eða frekar góða og 27 prósent breytinguna frekar eða mjög slæma. Innlent 26.9.2025 11:37
Annar fulltrúa Framsóknar hættur í bæjarstjórn Kópavogs Bæjarstjórn Kópavogs féllst á beiðni Sigrúnar Huldu Jónsdóttur, bæjarfulltrúa Framsóknar, um varanlega lausn frá störfum út kjörtímabilið á fundi sínum á þriðjudag. Hún hefur starfað sem deildarstjóri leikskóladeildar Kópavogsbæjar undanfarin misseri. Innlent 26.9.2025 11:27
Vímuefnaneysla talin meginorsök banaslyss við Hraunsnef Mikið magn fíkniefnis greindist í blóði ungs ökumanns sem lést í árekstri tveggja fólksbifreiða á hringveginum við Hraunsnef í Borgarfirði í júní í fyrra. Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur fíkniefnaneyslu ökumannsins meginorsök slyssins. Innlent 26.9.2025 11:08
Vaktin: Stefán og Lúkas dæmdir í 17 ára fangelsi Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson voru dæmdir í sautján ára fangelsi og Matthías Björn Erlingssyni í fjórtán ára fangelsi fyrir að verða Hjörleifi Hauki Guðmundssyni að bana í Gufunesmálinu svokallaða. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Suðurlands. Ekkju hins látna voru dæmdar ellefu milljónir króna í bætur og syni hans sex milljónir. Innlent 26.9.2025 11:02
Ekki búin að ákveða hvort þjóðaröryggisráð verði kallað saman Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hún hyggist kalla saman þjóðaröryggisráð. Drónar hafa flogið ítrekað yfir flugvelli Danmerkur undanfarna daga. Innlent 26.9.2025 11:01
„Ég hef aldrei séð svona mikið vatn í Jökulsá“ Gífurlega mikið vatn er í Jökulsá í Lóni, eftir mikla rigningu á svæðinu, og hefur hringvegurinn farið í sundur vestur. Íbúi á svæðinu segist aldrei hafa séð eins mikið vatn í Jökulsá. Innlent 26.9.2025 10:03
Grindavíkurgersemin Birna Óladóttir fallin frá Birna Óladóttir húsmóðir er látinn 84 ára gömul. Birna var mikill Grindvíkingur eftir að hafa flust þangað sautján ára og vakti athygli í fjölmiðlum á miklum umbrotatímum í bæjarfélaginu þegar jarðskjálftar dundu á Grindvíkingum í Reykjaneseldum hinum síðari. Innlent 26.9.2025 09:57
Kristrún í pallborði með Starmer, Carney og Albanese Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er nú stödd á ráðstefnunni Global Progress Action Summit í Lundúnum, þar sem hún tekur þátt í pallborði ásamt Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, og Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu. Innlent 26.9.2025 09:46
Hringvegurinn í sundur vegna vatnavaxta Hringvegurinn við Jökulsá í Lóni rétt austan við Höfn er farinn í sundur vegna vatnavaxta. Um fimmtíu mmetra rof er á veginum og er óljóst er hvenær hægt verður að ljúka viðgerð á skemmdinni. Innlent 26.9.2025 07:23
Hugmyndir kynntar um „miðstöð jaðaríþrótta“ í Toppstöðinni Hugmyndir um framtíð Toppstöðvarinnar voru lagðar fram á fundi menningar- og íþróttaráðs Reykjavíkurborgar fyrr í mánuðinum en þar stendur til að opna „miðstöð útivistar og jaðaríþrótta“. Innlent 26.9.2025 06:51
Telja dagana frá síðasta innbroti Íbúar Gamla Garðs, stúdentaíbúða á vegum Háskóla Íslands, hafa sett upp skilti þar sem taldir eru dagarnir síðan að síðast var brotist inn í húsið. Óprúttnir aðilar höfðu gert sig heimakomna þar, ítrekað stolið mat íbúanna og haft uppi ógnandi hegðun. Innlent 26.9.2025 06:46
Rannsaka líkamsárás og fjárkúgun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mál þar sem líkamsárás og fjárkúgun koma við sögu. Óskað var aðstoðar lögreglu vegna málsins í gærkvöldi eða nótt. Innlent 26.9.2025 06:22
Gat ekki lengur lesið en sagði engum frá því Kona sem hlaut alvarlegt höfuðhögg í matarboði og missti hæfileikann til að geta lesið lýsir mikilli skömm í kjölfarið. Hún segist hafa leynt stöðu mála fyrir vinum og vinnufélögum og lýsir úrræða-og áhugaleysi í heilbrigðiskerfinu, þar sem heimilislæknir sagði henni meðal annars að taka D-vítamín. Innlent 25.9.2025 23:35
„Ég má ekki heita Hrísey en ég má heita Rodriguez“ Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, hefur lagt fram frumvarp á þingi um breytingu á mannanafnalögum sem á að gera fólki kleift að taka upp eftirnafn. Frumvarpið er lagt fram af nokkrum þingmönnum Viðreisnar í annað sinn. Innlent 25.9.2025 23:32
Skvísur séu almennt frekar næringarsnauðar og börnin geti orðið matvönd Birna Þórisdóttir, lektor við matvæla- og næringarfræðideild HÍ, segir skvísur almennt frekar næringarsnauðar og að ekki eigi að gefa börnum of mikið af þeim. Mikilvægt sé að þau læri á mat með því að handleika hann og leika með hann. Birna og Jóhanna E. Torfadóttir, lektor við Miðstöð í lýðheilsuvísindum HÍ og verkefnisstjóri næringar hjá embætti landlæknis fóru yfir næringu barna og ungmenna í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Innlent 25.9.2025 22:55
„Þau eru að herja á börnin okkar“ Þingmaður kallar eftir breytingum á lögum um veðmál á erlendum vefsíðum. Óbreytt ástand verði til þess að fleiri lendi í vandræðum með spilafíkn og að ungir karlmenn séu í mestri hættu. Innlent 25.9.2025 21:33
Skipulagði bæjarferðir að vestan þannig að hann kæmist í Blóðbankann Blóðbankinn í Reykjavík hefur verið fluttur á einn fjölfarnarsta stað borgarinnar. Blóðgjafi til fimmtíu ára segir nýtt húsnæði mikla bragarbót og hvetur unga sem aldna til að sinna þessari samfélagsskyldu sinni. Innlent 25.9.2025 21:00
Lægð sem valdi meiri usla Fyrsta haustlægðin nálgast landið óðfluga og segir veðurfræðingur að lægðin, líkt og fyrstu lægðir hvers hausts, valdi meiri usla en þær sem komi seinna. Ástæðan sé sú að fólk festi ekki lausamuni og biðlar hann til fólks um að undirbúa sig. Innlent 25.9.2025 20:34
Minna fólk á að hafa vistir til þriggja daga á heimilinu Í ljósi stöðunnar í heimsmálum sér Rauði krossinn á Íslandi tilefni til þess að minna á átakið Vertu klár. Þar er fólk hvatt til þess að hafa vistir og búnað til þriggja daga komi til neyðarástands eins og átaka eða alvarlegrar náttúruvár. Berghildur Erla kannaði málið. Innlent 25.9.2025 20:26
Dæmigert hundaflaut að spyrja hvort kynin séu tvö Ástæða er til þess að hafa miklar áhyggjur af bakslagi í allri mannréttindabaráttu að mati kynjafræðings. Það eigi sér helst stað í svokölluðu hundaflauti sem eigi að ná til þeirra sem nærist á ótta og fordómum. Innlent 25.9.2025 19:35
Grafalvarleg staða í Danmörku, trampólínlægð og hundaflaut Fleiri flugvöllum í Danmörku var lokað í gærkvöldi og í nótt vegna drónaumferðar. Dönsk stjórnvöld segja ástandið grafalvarlegt og lýsa atvikunum sem skipulagðri fjölþáttaárás. Í kvöldfréttum verðum við í beinni frá Kaupmannahöfn þar sem ráðamenn funda nú um málið. Innlent 25.9.2025 18:02