Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Donald Trump Bandaríkjaforseti lét gamminn geisa á samfélagsmiðli sínum um það leyti sem kosninganiðurstöður og spár fóru að birtast í gær. Ríkisstjórn hans hefur verið sökuð um að reyna að grafa undan trúverðugleika kosninganna en forsetinn segist nú ætla að viðurkenna niðurstöðuna sem hefur verið lýst sem algerum ósigri. Erlent 4.11.2026 07:40
Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Keisha Lance Bottoms verður fyrsta svarta konan til að gegna ríkisstjóraembætti í Bandaríkjunum eftir nýafstaðnar kosningar í Georgíu. Hún verður um leið fyrsti Demókratinn til að sitja í ríkisstjórabústað þessa mikilvæga barátturíkis í yfir 25 ár. Erlent 4.11.2026 06:20
Draumur Demókrata að rætast Demókrataflokkurinn er talinn hafa tryggt sér meirihluta í báðum deildum bandaríska þingsins eftir kosningar sem margir álíta dóm á störf Donalds Trump forseta. Talning atkvæða er í fullum gangi en línurnar eru víða farnar að skýrast. Erlent 4.11.2026 04:48
Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Dómstóll í Abbotsford í Kanada hefur dæmt Íslendinginn Jóhann Sveinsson í eins og hálfs árs fangelsi fyrir dreifingu og vörslu barnaníðsefnis. Jóhann játaði sök í desember fyrir tæpum tveimur árum eftir að hafa flúið réttvísina um nokkurt skeið þar á undan. Erlent 3.11.2026 12:54
Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Að minnsta kosti 73 eru særðir eftir árás Rússa á sjúkrahús í Kharkív í nótt. Flytja þurfti yfir tvö hundruð sjúklinga á önnur sjúkrahús en samkvæmt ríkissaksóknara Úkraínu var árásin gerð á gang sem tengir saman byggingar sjúkrahússins. Erlent 3.11.2026 08:11
Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu í dag í kosningum sem gætu haft mikil áhrif á seinni tvö ár kjörtímabils Donalds Trump. Samkvæmt könnunum hafa kjósendur mestar áhyggjur af auknum kostnaði í samfélaginu en kosningarnar koma á erfiðum tíma fyrir Repúblikanaflokkinn. Erlent 3.11.2026 07:34
Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Bandarískir erindrekar og embættismenn hafa lagt til að Evrópa hefji á nýjan leik að kaupa jarðgas frá Rússlandi. Gasið verði flutt gegnum úkraínskar leiðslur og keypt af bandarískum milliliðum til að komast hjá refsiaðgerðum Evrópuríkja. Ráðamenn í Evrópu hafa tekið illa í þessa hugmynd, sem þeir Steve Witkoff og Jared Kushner hafa verið að stinga upp á á undanförnum vikum. Erlent 2.11.2026 23:02
Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Farþegaflugvél flugfélagsins Wizz Air, sem var á leið sinni frá London til Sófíu í Búlgaríu, neyddist til að nauðlenda í Búdapest vegna sprengjuhótunar sem barst meðan vélin var á lofti. Erlent 2.11.2026 22:07
„Tíminn er á þrotum“ Útlit er fyrir að flugvél sem hrapaði nánast lóðrétt til jarðar í Palm Beach í Bandaríkjunum í gær hafi verið að rifna í sundur á leiðinni niður. Rannsakendur búast við því að brak úr flugvélinni megi finna langt frá því þar sem flugvélin brotlenti í íbúðarhverfi. Níu voru um borð og létu allir lífið. Erlent 2.11.2026 20:45
Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Rússar vörpuðu sprengjum á skóla í sunnanverðri Úkraínu í dag, þar sem íbúar bæjar nærri víglínunni höfðu komið saman til að fá mataraðstoð. Í heildina vörpuðu Rússar tíu stórum sprengjum á skólann í nokkrum bylgjum. Að minnsta kosti 26 eru látnir og minnst tuttugu er saknað. Erlent 2.11.2026 19:43
Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Tölvuþrjótar réðust gegn matvöruverslunum í Svíþjóð í morgun með þeim afleiðingum að hitastig í kælum og frystiskápum rauk upp úr öllu valdi. Árás af svipuðum toga var gerð í Frakklandi á dögunum og brugðust íslensk fyrirtæki við í kjölfarið. Erlent 2.11.2026 08:43
Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Bandarískir kjósendur ganga að kjörborðinu á morgun, þriðjudag, í kosningum sem bera þess merki að geta markað svokallaða bláa flóðbylgju. Demókratar eru með byr undir báðum vængjum fyrir kosningarnar, ef marka má kannanir, og má meðal annars rekja þennan meðbyr til sögulegra óvinsælda Donalds Trump. Erlent 2.11.2026 08:33
„Svívirðileg svik“ Þingkona demókrata í Michigan-ríki í Bandaríkjunum hefur lýst yfir stuðningi við frambjóðanda Repúblikana í öldungadeildarkosningunum í ríkinu. Ákvörðunin kemur í kjölfar harðvítugra deilna við frambjóðanda eigin flokks en spennan fyrir þingkosningarnar í Bandaríkjunum á morgun nálgast nú suðupunkt. Erlent 2.11.2026 06:34
Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Netárásir voru gerðar á almannavarnarkerfi bæði Úkraínumanna og Rússa í nótt með þeim afleiðingum að fölsk skilaboð voru send á almenning um yfirvofandi árásir. Í tilefni Rússa virðist sem hluti almennings hafi verið varaður við því að kjarnorkuvopnaárás væri yfirvofandi. Erlent 2.11.2026 06:23
Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Yfirvöld í Florídaríki í Bandaríkjunum rannsaka nú slys eftir að flugvél með níu manns um borð hrapaði í íbúðahverfi í Palm Beach síðdegis á sunnudag. Erlent 1.11.2026 21:32
Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Sautján starfsmenn Disney World og Universal Studios eru meðal þeirra 281 sem grunaðir eru í umfangsmiklu lögreglumáli í Flórída í Bandaríkjunum er varðar mansal og kynferðisbrot gegn börnum. Erlent 1.11.2026 20:40
Yfirhalning hafi verið nauðsynleg Pólski forsætisráðherrann Donald Tusk hefur heitið því að stjórnlagadómstóll landsins muni starfa í samræmi við lög í kjölfar þess að forsetinn Karol Narwoci sakaði Tusk um að taka yfir dómstólinn. Tusk segir að yfirhalningin á dómstólum hafi verið nauðsynleg. Erlent 1.11.2026 20:12
„Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Mjög miklar líkur eru á að Demókratar vinni sigur í báðum þingdeildum í Bandaríkjunum í kosningum á þriðjudag að sögn sérfræðings um bandarísk stjórnmál. Fari svo þá blasi við að stofnaðar verði rannsóknanefndir sem muni skoða embættisaðgerðir Trump Bandaríkjaforseta og ríkisstjórnar hans. Erlent 1.11.2026 14:32
Barist um samband Búlgaríu við Rússland Búlgarar ganga að kjörborðinu í dag í seinni umferð forsetakosninga sem hefur einkennst af umræðu um öryggisógnir og áhyggjur af efnahagsmálum. Erlent 1.11.2026 13:39
Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Efnt var til mótmæla í ríflega þrjátíu borgum Þýskalands um helgina en þau eru skipulögð af ungliðahreyfingu sem mótmælir herskyldu, hækkandi framfærslukostnaði og krefst aukinnar fjárfestingar í menntakerfinu og aðgerða í loftslagsmálum. Mótmælin fóru mestmegnis friðsamlega af stað í gærmorgun en þegar tók að rökkva færðist harka í leikinn. Erlent 1.11.2026 12:49
Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Spænska lögreglan hefur handtekið tvo á eyjunni Tenerife þar sem þeir eru grunaðir um að skipuleggja óeirðir og skemmdarverk sem voru sögð myndu eiga sér stað í Santa Cruz og við amerísku ströndina. Erlent 1.11.2026 00:11
Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Borgaryfirvöld í bandarísku borginni Palm Desert fengu innblástur frá Akureyri þegar hjörtu voru um tíma sett á umferðarljós. Starfsmaður borgarinnar segir uppátækið hafa gefist vel til og segir margt að læra af Íslendingum. Erlent 31.10.2026 21:00
Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Óeirðalögregla er komin að stjórnlagadómstól Póllands vegna harðnandi deilu milli ríkisstjórnarinnar og æðstu dómara dómstólsins. Reynir lögregla að koma í veg fyrir að mótmælendur komist inn í dómshúsið. Erlent 31.10.2026 12:25
Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Sjötíu þúsund lögreglumenn verða við störf víða í Frakklandi í tilraun stjórnvalda til að búa sig undir þriðju helgi mótmæla þar í landi. Lestarstöðvum í París hefur verið lokað og víða hefur verið neglt fyrir glugga verslana. Þá eru þýsk yfirvöld með varann á vegna mótmæla í yfir þrjátíu borgum Þýskalands í dag. Erlent 31.10.2026 09:08