Erlent

Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu

Fjórar konur og níu börn þeirra, sem dvalið hafa í búðum fyrir fjölskyldur erlendra meðlima Íslamska ríkisins í um sjö ár, eru á leið til Ástralíu. Til stendur að handtaka einhverjar kvennanna þegar þær koma aftur til landsins en þaðan ferðuðust þær á árum áður til að ganga til liðs við Íslamska ríkið og giftast vígamönnum hryðjuverkasamtakanna.

Erlent

Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Ís­lands

Áhöfn skemmtiferðaskipsins MV Hondius hefur fengið heimild til að sigla til hafnar á Kanaríeyjum, þótt enn sé óákveðið hvar skipið mun leggja að bryggju. Heilbrigðisráðuneyti Spánar segir að þegar þangað verði komið, verði áhöfn og farþegar skoðaðir, meðhöndlaðir og sendir heim í samstarfi við Alþjóðaheilbrigðisstofnunina og Sóttvarnastofnun Evrópu.

Erlent

Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur gert hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að fyrstu sókn Bandaríkjanna og Ísraels í Íran, Operation Epic Fury, sé lokið og að markmiðum hennar hafi verið náð. 

Erlent

Segja vopna­hléið enn í gildi þrátt fyrir á­rásir

Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, og Dan Caine, formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, segja vopnahlé við Íran enn í gildi. Það er þrátt fyrir árásir Írana á bandarísk herskip og Sameinuðu arabísku furstadæmin og að Bandaríkjamenn hafi sökkt að minnsta kosti sex bátum íranska byltingarvarðarins í gær.

Erlent

Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífs­tíðar­fangelsi

Nathan Chasing Horse, sem er hvað þekktastur fyrir að hafa leikið hinn unga Smiles A Lot í kvikmyndinni Dansar við úlfa, frá 1990, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Hann var dæmdur fyrir nauðganir og kynferðisbrot gegn bæði konum og stúlkum yfir margra ára tímabil og í tengslum við sértrúarsöfnuð sem hann myndaði.

Erlent

Hundruð þúsunda krefjast at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði Alberta

Aðskilnaðarsinnar í Alberta-fylki í Kanada, segjast hafa safnað nægilega mörgum undirskriftum til að kveða á um atkvæðagreiðslu um sjálfstæði. Samkvæmt lögum í fylkinu þarf 178 þúsund undirskriftir til að þvinga yfirvöld til að halda atkvæðagreiðslu um tiltekin málefni en aðskilnaðarsinnarnir sögðust í gær hafa safnað nærri því 302 þúsund.

Erlent

Vopna­hléið hangir á blá­þræði

Vopnahléið í Mið-Austurlöndum er talið hanga á bláþræði eftir gærdaginn. Ráðamenn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum segjast hafa orðið fyrir árásum frá Íran og kviknaði eldur í stærstu olíugeymslustöð landsins, vegna þeirra. Þá segjast Bandaríkjamenn hafa grandað sex bátum íranska byltingarvarðarins og að skotið hafi verið á bandarísk herskip.

Erlent

Líkja for­seta Taí­van við rottu vegna Afríkuferðar

Nýr forseti Taívan hóf opinbera heimsókn sína í Esvatíní í Afríku í morgun með því að segja að Taívan hefði rétt á því að eiga í opinberum samskiptum við önnur ríki. Enginn hefði rétt á að koma í veg fyrir það. Ráðamenn í Taívan segja að Kínverjar hafi reynt að koma í veg fyrir ferðina en Kínverjar hafa fordæmt forsetann taívanska sem „rottu“.

Erlent

Segjast hafa skotið á banda­rískt her­skip

Íranir segja tveimur eldflaugum hafa verið skotið að bandarísku herskipi á eða nærri Hormússundi í morgun. Íranskur miðill, tengdur byltingarverði Íran, segir eldflaugarnar hafa hæft skipið en því neita Bandaríkjamenn. Tveimur bandarískum flutningaskipum mun hafa verið siglt gegnum sundið í dag.

Erlent

Giuliani á sjúkra­húsi í al­var­legu á­standi

Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri New York, hefur verið lagður inn á sjúkrahús en hann er sagður vera í alvarlegu en stöðugu ásigkomulagi. Talsmaður hans tilkynnti þetta í gær en sagði ekki hve lengi Giuliani, sem er 81 árs gamall, hefði verið á sjúkrahúsi né hvers vegna.

Erlent

Japanir mót­mæla fyrir­huguðum breytingum á stjórnar­skránni

Efnt var til mótmæla víða um Japan í gær, gegn fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskrá landsins. Forsætisráðherrann Sanae Takaichi, hefur talað fyrir því að þingið taki málið til umræðu, með það að markmiði að efla getu hersins til að mæta ógn af hálfu Kína og Norður-Kóreu.

Erlent

Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið

Donald Trump Bandaríkjaforseti tikynnti á samfélagsmiðlinum Truth Social í nótt að Bandaríkjamenn myndu „leiðbeina“ skipum sem setið hafa föst um Hormuz-sund. Segir hann um að ræða aðgerðir í þágu mannúðar og bendir réttilega á að áhafnir skipanna séu að verða uppiskroppa með mat og aðrar nauðsynjar.

Erlent

Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits

Þrír ferðalangar á skemmtiferðaskipi eru taldir hafa látist vegna smits af hantaveiru á skipinu. Einn liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi en umrætt skemmtiferðaskip mun leggja leið sína til Íslands seinna í mánuðinum. 

Erlent

Hand­tekinn eftir að rottu­eitur fannst í barna­mat

Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í Austurríki eftir að rottueitur fannst í barnamat frá HiPP. Forstjóri fyrirtækisins segir að maðurinn hafi sent kröfu um háa fjárhæð á netfang sem er einungis skoðað á tveggja vikna fresti.

Erlent

Þúsundir her­manna kallaðir heim frá Þýska­landi

Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur tilkynnt um afturköllun fimm þúsunda hermanna sinna frá Þýskalandi. Samkvæmt ónafngreindum embættismönnum stafar þetta af óánægju Bandaríkjaforseta vegna tregðu Þjóðverja við að taka þátt í árásarstríði sínu við Íran.

Erlent

„Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr

Lögmenn hafa farið fram á það fyrir alþjóðadómstólnum í Haag að stríðsglæpamaðurinn Ratko Mladić verði látinn laus á grundvelli þess að hann sé við dauðans dyr. Hann fékk minniháttar slag í síðasta mánuði og heilsu hans hrakar hratt.

Erlent

Á­kærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps eftir stunguárás sem beindist að tveimur mönnum af gyðingaættum í Lundúnum á miðvikudag. Árásin hefur vakið óhug og reiði í gyðingasamfélagi borgarinnar. 

Erlent

Safna í sér­stakt sjóherlið á Norður­slóðum

Bretar, Ísland og átta önnur lönd í Norður-Evrópu hyggjast sameina krafta sína og koma á fót sérstöku samiginlegu sjóherliði til að sporna við aukinni ógn Rússa á norðurslóðum, að sögn bresks herforingja. Verkefnið er á vegum JEF-samstarfsins sem Ísland er aðili að.

Erlent

Ekkert farar­snið á Rússum í Malí

Rússneskir málaliðar, á vegum yfirvalda í Rússlandi, munu ekki yfirgefa Malí. Þar munu þeir áfram aðstoða herforingjastjórn landsins við að berjast gegn uppreisnar- og vígamönnum. Malí og rússneska Afríkudeildin svokallaða bauð afhroð í skyndisókn vígamanna víða um landið um síðustu helgi.

Erlent