Vegleg 17. júní hátíð í ár 8. júní 2004 00:01
Hátíðardagskráin sautjánda júní verður með veglegra móti í Reykjavík í ár þar sem Íslendingar fagna sextíu ára afmæli lýðveldisins. Að sögn Benónýs Ægissonar, verkefnisstjóra hátíðarhaldanna í Reykjavík, verður bætt við fleiri sviðum og skemmtiatriðum og verður miðbærinn skreyttur sem aldrei fyrr. Athöfnin á Austurvelli verður þó með hefðbundnu sniði. Ekki stendur til að breyta þeirri hefð sem komin er á hátíðardagskrána á Austurvelli og mun hún hefjast klukkan tuttugu mínútur í ellefu, með ávarpi Önnu Kristinsdóttur, formanns Þjóðhátíðarnefndar. Að því loknu munu forseti lýðveldisins, Ólafur Ragnar Grímsson, og forsætisráðherra, Davíð Oddsson, ganga á völlinn eins og vant er og mun forsetinn leggja blómsveig frá þjóðinni að minnisvarða Jón Sigurðssonar. Að þjóðsöngnum loknum flytur forsætisráðherra ávarp sitt sem verður að öllum líkindum hans síðasta þjóðhátíðarávarp þar sem hann lætur af embætti í haust. Við athöfnina verður nýtt ræðupúlt vígt þar sem hið gamla var farið að láta á sjá eftir sextíu ára notkun. Í tilefni lýðveldisafmælisins mun biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, predika í Dómkirkjunni klukkan tuttugu mínútur yfir ellefu. Skemmtiatriðum verður einnig fjölgað í tilefni afmælisins og verða svið í Hljómskálagarðinum og Hallargarðinum auk þeirra sem vanalega standa á Ingólfstorgi og við Arnarhól. Einnig munu börnin væntanlega setja svip sinn á daginn þar sem fánaveifum hefur verið dreift til allra leikskólabarna í Reykjavík í tilefni af lýðveldisafmælinu.
Innlent Tilveran Mest lesið Urður yfirgefur Kastljós Lífið Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Lífið Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Lífið Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Lífið Ben Jones er látinn Bíó og sjónvarp Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Lífið Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Lífið Aubrey Plaza orðin mamma Lífið Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Menning „Svolítið eins og að vera á annarri plánetu“ Ferðalög Fleiri fréttir Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira