Íslenskum nútímaverkum fjölgi 5. október 2004 00:01
Framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands segir athugandi að fjölga íslenskum nútímaverkum á dagskrá sveitarinnar. Tónskáld gagnrýna sveitina fyrir að flytja of fá verk af því tagi en tónleikagestir virðast ekki sjá ástæðu til að fjölga þeim. Um 150 hljómsveitarverk sem aldrei hafa heyrst eru í safni Íslensku tónverkamiðstöðvarinnar. Framkvæmdastjóri stöðvarinnar, Sigfríður Björnsdóttir, segir að Sinfóníuhljómsveit Íslands fái um tíu ný íslensk hljómsveitarverk til skoðunar árlega en einungis örfá þeirra fáist leikin. Í annarri grein laga um Sinfóníuhljómsveit Íslands segir að sérstaka áherslu beri að leggja á flutning og kynningu íslenskrar tónlistar. Framkvæmdastjóri sveitarinnar, Þröstur Ólafsson, segir þau sinna þessu hlutverki vel, enda leiki sveitin allt að 20 íslensk verk á ári. Þó megi taka til skoðunar hvort nútímaverkin ættu að vera fleiri. Þær raddir heyrast að letjandi sé fyrir ung tónskáld að leggja tíma og vinnu í verk fyrir sveitina, sem enn er að frumflytja verk eftir Jón heitinn Leifs. En svo er það spurningin um eftirspurn. Framkvæmdastjóri sveitarinnar segir kannanir meðal tónlistargesta sýna að þeim þyki fjöldi íslenskra og erlendra nútímaverka hjá sveitinni passlegur. Hann segir til sögur úr fortíðinni um að áheyrendur hafi, a.m.k. um tíma, sniðgengið íslensk verk.
Tónlist Mest lesið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Tónlist Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Fleiri fréttir Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira