Bítlarnir nauðsynlegir mannkyninu 17. desember 2004 00:01
Frelsisandinn sem kom með Bítlunum inn í helfryst kaldastríðsumhverfi var mannkyninu nauðsynlegur. Þetta er mat höfundar Bítlaávarpsins sem segir tónlist sjöunda áratugarins hafa verið afl sem breytt hafi heiminum. Rithöfundarnir Einar Már Guðmundsson og Þorvaldur Þorsteinsson stóðu sig með ágætum á bak við búðarborðið í bókabúð Máls og Menningar á Laugaveginum í dag. Þar munu þeir þurfa að taka á honum stóra sínum í innpökkunum og kreditkortaviðskiptum næstu daga ásamt fleiri rithöfundum. Einar Már var nýlega tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir nýjustu bók sína, Bítlaávarpið. Hún fjallar um einstakan tíðaranda sjöunda áratugarins og þá kynslóð sem þá var að vaxa úr grasi. Höfundurinn segir múrana á milli há- og lágmenningar þá hafa verið að brotna, frelsislöngun hafi verið ríkjandi í landinu og áhrif frá rokki og útlöndum hafi blandast við þá þjóðlegu einangrun sem hafi ríkt. Og sá andi sem Bítlunum og fleirum fylgdi var mannkyninu beinlínis lífsnauðsynlegur í hinu helfrysta kaldastríðsumhverfi að mati Einars Más. Hann segist vera að reyna að miðla þessari sömu lífsgleði. „Þetta er ekki bók sem fjallar um Bítlana sem slíka heldur er þetta bara tónlist sem liggur í loftinu þegar þetta fók sem ég er að skrifa um er að vaxa úr grasi,“ segir Einar.
Bókmenntir Mest lesið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Lífið Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Lífið „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Menning Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira