Þetta er nóg Sigurjón M. Egilsson skrifar 20. september 2005 00:01 Ósætti er innan Framsóknarflokksins með störf formannsins og forsætisráðherrans, Halldórs Ásgrímssonar. Þetta fullyrða menn úr innsta valdakjarna flokksins, menn sem hafa hingað til verið taldir meðal helstu stuðningsmanna formannsins. Allir þeir sem Fréttablaðið hefur talað við og hafa nafnlaust tjáð sig um óánægju sína verða að koma fram og segja opinberlega, og það undir nafni, hvað þeim þykir vera að og hvers þeir vænta. Framboðið til öryggisráðsins er ekki stóra deilumálið innan Framsóknarflokksins. Síðustu atburðir í því máli eru sennilega hins vegar kornið sem fyllti mælinn. Mælirinn er fullur, segja ráðamenn í Framsóknarflokki. Það er mikið verk fram undan hjá formanninum eigi honum að takast að koma lagi á hlutina tímanlega fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Það er mikil ábyrgð lögð á herðar formanni flokks þar sem sundurþykkja er. Með sama hætti er mikil ábyrgð hjá þeim samstarfsmönnum formannsins sem tala nafnlaust gegn honum og hans vinnubrögðum. Fréttablaðið veit hverjir fara fremstir í óánægjunni í Framsóknarflokknum. Sökum tryggðar við heimildarmenn verða þeir ekki nafngreindir fyrr en þeir sjálfir stíga fram. Það er rangt af þeim að draga það. Allir vissu að Ísland hefur þá stefnu að bjóða sig fram til setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Það vissu hins vegar engir nema Halldór Ásgrímsson og Geir H. Haarde, verðandi utanríkisráðherra, að afdráttarlaus tilkynning um framboðið yrði gefin út í ræðu Halldórs á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna. Það fór illa í samflokksmenn hans og helsta bakland. "Hann talar eins og hann sé flokkurinn," orðaði einn það. Hjálmar Árnason þingflokksformaður er enn og aftur í vandræðum þar sem engum virðist unnt að skilja orð hans. Hann sagðist misskilinn þegar hann talaði skýrt um að til greina hafi komið, að hans mati, að taka Ísland af lista staðfastra þjóða vegna innrásarinnar í Írak og hann segist nú hafa verið oftúlkaður þegar hann sagði skýrar en þarft var að framboð Íslands til öryggisráðsins hefði aldrei verið samþykkt í þingflokki þeirra framsóknarmanna. Nóg um það. Það er stutt til sveitarstjórnarkosninga. Flestir þeir framsóknarmenn sem rætt hefur verið við hafa áhyggjur, óttast að illa fari. Bent er á formanninn og sagt að seta hans í forsætisráðuneytinu hafi átt að hressa flokkinn við og auka fylgið. Það hafi ekki gengið eftir. Trúnaður meðal samstarfsmanna fer þverrandi. Öryggisráðsmálið er ekki aðalatriðið. Það er bent á fleiri mál, svo sem Íraksmálið og fjölmiðlamálið þar sem margir þingmanna Framsóknarflokksins gengu lengra en þeir helst vildu. Studdu sinn formann, en um leið gekk hann á birgðir sáttfýsi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Sigurjón M. Egilsson Mest lesið Opið bréf til Rósu Guðbjartsdóttur Margrét Kristín Blöndal Skoðun Að sækja gullið (okkar) grein 2 Þröstur Friðfinnsson Skoðun Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley Skoðun Vísir að lægri orkureikningi Einar Vilmarsson Skoðun Vönduð vinnubrögð? Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson Skoðun Nokkur orð um Kúbudeiluna og viðskiptabannið Gylfi Páll Hersir Skoðun Verið brjáluð. Ég fer ekki neitt Ian McDonald Skoðun Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð Þórdís Jóna Sigurðardóttir Skoðun Mikil réttarbót fyrir fatlað fólk mætir hindrunum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun
Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley Skoðun
Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson Skoðun
Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð Þórdís Jóna Sigurðardóttir Skoðun
Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley Skoðun
Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson Skoðun
Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð Þórdís Jóna Sigurðardóttir Skoðun