Þrýstingur á Berlusconi eykst 23. september 2005 00:01
Enn eykst þrýstingurinn á Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, að reka seðlabankastjórann Antonio Fazio eða segja sjálfur af sér ella. Í gær sagði fjármálaráðherrann Domenico Sinisalco af sér í mótmælaskyni við það að seðlabankastjórinn Fazio sæti sem fastast án þess að nokkur gerði neitt. Berlusconi setti Giulio Tremonti í embætti fjármálaráðherra í stað Sinisalcos, en Tremonti var sjálfur rekinn úr ríkisstjórninni fyrir rúmu ári. Fazio er gefið að sök að hafa kastað öllu hlutleysi fyrir róða þegar Banca Antonveneta var seldur í júlí. Þá aðstoðaði hann ítalska bankann Banca Popolare Italiana í baráttu við hollenska bankann ABN AMRO, sem er tvímælalaust lögbrot. Fazio hefur hins vegar neitað að víkja og reyndar neitað því að hafa gert nokkuð rangt og situr nú fund Alþjóða gjaldeyrissjóðsins í Washington. Nýendurskipaði fjármálaráðherrann Tremonti hefur skömm á Fazio og hyggst ekki yrða á hann á fundinum, þar sem þeir munu sitja hlið við hlið. Berlusconi sjálfur segir að Evrópski seðlabankinn verði að reka Fazio en því hafnar bankinn alfarið og segir ítalska seðlabankann verða að sjá um það sjálfur. Málið þykir orðið svo vandræðalegt fyrir ítölsku ríkisstjórnina að bæði innlendir og erlendir fjölmiðlar eru farnir að ræða mögulega afsögn Berlusconis. Ólíklegt er að af því verði en þingkosningar verða á Ítalíu ekki síðar en næsta vor. Berlusconi hefur þó gengið svo langt í kjölfar allra þessara vandræða að orða þann möguleika að einhver annar en hann sjálfur leiði bandalag mið- og hægriflokkanna fyrir kosningarnar.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi Erlent Lá alblóðugur á gangstétt eftir að hafa komist undan árás æskuvinarins Innlent Þungt hugsi og í áfalli Innlent Hafi verið rangkynjuð oftar en hún geti talið og segir transfóbíu bitna á öllum Innlent Samþykktu Trump-samninginn einróma Erlent Vantraust á framkvæmdastjóra Félagsbústaða talið alvarlegt Innlent Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök Erlent „Rotnir starfshættir og ríkisrekið ofbeldi gegn borgurunum“ Innlent Hvað vitum við um Leó páfa? Erlent Hafdís hafi bara umlað „hann reyndi að drepa mig“ Innlent Fleiri fréttir Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Takmörkuð eftirspurn eftir ríkisstjórn með flokki Farage Gera enn árásir með drónum og eldflaugum Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins Einhliða vopnahlé Rússa hafið Vesturlönd þurfa að borga milljarðatjón af árás Rússa á Tsjernobyl Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi Herþota hrapaði til jarðar í Finnlandi Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Misstu aðra herþotu í sjóinn Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Indland gerir árás á Pakistan Trump um kaupin á Kanada: „Aldrei segja aldrei“ Merz náði kjöri í annarri tilraun Niðurlægjandi fyrir Merz og AfD krefst þingkosninga á ný Sakar Rússa um fordæmalaus afskipti af kosningum í Póllandi Kardinálarnir læstir inni á morgun Ríkisstjórn Rúmeníu liðast í sundur eftir sigur öfgahægrimanns Náði ekki kjöri í sögulegri atkvæðagreiðslu Fækkar herforingjum um fimmtung Lokuðu flugvöllum í Moskvu vegna dróna „Ástandið er að versna“ Íbúar Gasa verði fluttir á brott „í þágu eigin öryggis“ Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Sjá meira