List til að taka með 4. nóvember 2006 08:00 Alice Clarke myndlistarkona Sýnir mósaíkverk á Café Oliver. MYND/Valli
Myndlistarkonan Alice Olivia Clarke sýnir mósaíkverk sín á efri hæð skemmtistaðarins Café Oliver á Laugavegi. Myndirnar eru unnar í tengslum við innsetningu hennar sem þegar prýðir staðinn en listamaðurinn kennir sýninguna við „Take away“ því líkt og gestir geta tekið með sér mat af veitingahúsum geta þeir einnig notið andrúmsloftsins á staðnum og síðan tekið listina með sér heim. Uppistaðan í verkum Alice eru steinflísar með mismunandi áferð sem hún sker eða brýtur en þeim blandar hún oft saman við steinvölur héðan og þaðan. Alice Clarke hefur verið búsett hér á landi frá 1993 og haldið fjölda sýninga, verk hennar má til dæmis sjá í Bókasafni Hafnarfjarðar og á veitingahúsinu Vegamótum við Vegamótastíg. Sýningin er opin á þjónustutíma skemmtistaðarins en í dag verður formleg opnun milli kl. 13 og 16. Listakonan verður á staðnum og spjallar við gesti. Sýningin stendur til 1. desember.
Menning Mest lesið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Fleiri fréttir Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira