Mourinho: Varnarleikurinn veldur áhyggjum 28. desember 2006 10:15 Jose Mourinho hefur réttilega áhyggjur af varnarleik Chelsea. Hér er hann með landa sínum Ricardo Carvalho. MYND/Getty
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að hann hafi áhyggjur af varnarleik Chelsea sem hefur fengið á sig sex mörk í síðustu þremur deildarleikjum. Hann segir að fjarvera Petr Cech markvarðar og fyrirliðans John Terry sé liðinu dýrkeypt. „Við seldum William Gallas og Robert Huth í sumar og getum því ekki bjargað málunum sem skyldi. Þess vegna eigum við í vandræðum. Öllu jöfnu ætti Chelsea að halda hreinu þrjá leiki í röð." Terry hefur misst af síðustu tveimur deildarleikjum sem og leik Chelsea og Newcastle í deildarbikarnum. Hann á við bakmeiðsli að stríða og gæti þurft að gangast undir aðgerð vegna þeirra. Ricardo Carvalho og Paulo Ferreira voru miðverðir Chelsea gegn Reading í fyrradag þar sem sjálfsmark Michael Essien kostaði liðið sigurinn. „Eins og stendur þurfum við að skora þrjú mörk til að vinna leiki. Stundum tekst okkur það, stundum ekki. Það er gífurlega erfitt að missa bæði Petr og John á sama tíma, sérstaklega þar sem liðið er ekki með fleiri miðverði í hópnum." Manchester United er með fjögurra stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-0 sannfærandi sigur á Wigan. William Gallas var í sumar seldur til erkifjendanna í Arsenal eftir að hann gerði forráðamönnum liðsins ljóst að hann væri ekki ánægður með það hlutverk sem hann hefði leikið með liðinu.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Kári Kristján spilar aldrei aftur fyrir ÍBV Handbolti „Algjörlega niðurbrotinn eftir þetta tap“ Fótbolti Gervigreindin spáir í fyrstu umferðina Enski boltinn Ótrúlegt golfhögg í reiðiskasti slær í gegn á netinu Golf Eiginkonan líkir þjálfara Slóvena við Gosa Körfubolti Nýr framherji Man. United treður með miklum tilþrifum í körfuna Enski boltinn Sjáðu upphitunarþátt fyrir enska boltann í heild Enski boltinn Enska augnablikið: Eftirminnilegasta lýsing Íslandssögunnar Enski boltinn „Galið og fáránlegt“ Íslenski boltinn Misstu Martin út en sneru leiknum og unnu Svía Körfubolti Fleiri fréttir Enska augnablikið: Eftirminnilegasta lýsing Íslandssögunnar Nýr framherji Man. United treður með miklum tilþrifum í körfuna „Gefa áhorfendum innsýn í það sem sérfræðingarnir gera“ Dagskráin: Fyrsti leikur í enska boltanum Gervigreindin spáir í fyrstu umferðina Sjáðu upphitunarþátt fyrir enska boltann í heild Xhaka gerður að fyrirliða tveimur vikum eftir að hann var keyptur Enska augnablikið: Englar og djöflar Leoni færist nær Liverpool Tony Adams vill að Arsenal skipti um fyrirliða Rooney sár út í Tom Brady: „Fannst hann vera mjög ósanngjarn“ Chelsea gefur fjölskyldu Jota hluta af HM-bónusunum Nýja stórstjarna Liverpool fékk ekki að hafa sjónvarp heima hjá sér Enska augnablikið: AGUERO!! Leik U21 liðs Man United hætt vegna meiðsla leikmanns Calvert-Lewin á leið til Leeds Willum lagði upp sigurmark Birmingham Jason Daði og félagar fá Rauðu djöflana í heimsókn Enska augnablikið: Hugsaði til van Persie eftir frægt mark í Eyjum Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Grealish valdi númerið sitt vegna Rooney og Gascoigne „Fáránleg staða sem er komin upp“ Stuðningsmenn Chelsea bjartsýnastir en mjög svartsýnir hjá Newcastle Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Vildi hvergi annarsstaðar spila Dýrasti leikmaður í sögu City lánaður til Everton Enska augnablikið: Forsjáli félaginn sem missti af öllu Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Sjá meira