Petr Cech verður frá í hálft ár 16. október 2006 14:46 Petr Cech verður frá að minnsta kosti út þetta ár NordicPhotos/GettyImages
Tékkneski landsliðsmarkvörðurinn Petr Cech hjá Chelsea gæti orðið frá keppni í allt að hálft ár að mati lækna sem framkvæmdu aðgerð á höfuðkúpubroti hans um helgina. Stephen Hunt, leikmaður Reading, hefur sent Cech skriflega afsökunarbeiðni fyrir að valda meiðslunum og stjóri Bolton hefur boðist til að lána Chelsea markvörð. "Ég fullyrði að það var alls ekki ásetningur minn að meiða Cech," sagði í yfirlýsingu frá Stephen Hunt, leikmanni Reading. "Mér þykir afar leitt að hann hafi orðið fyrir þessum meiðslum og óska honum skjótum og fullum bata." Sam Allardyce, stjóri Bolton, hefur boðist til að lána Chelsea einn af varamarkvörðum sínum á meðan staðan er svo slæm hjá Englandsmeisturunum, en Carlo Cudicini meiddist einnig gegn Reading og sýnt þykir að hann muni missa af leiknum mikilvæga gegn Barcelona í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöldið. Það er því útlit fyrir að Chelsea muni tefla fram þriðja markverði sínum, Hilario, gegn Barcelona - en Bolton hefur boðið Chelsea að fá til sín annað hvort fyrrum landsliðsmarkvörðinn Ian Walker eða Ali Al-Habsi, landsliðsmarkvörð Oman. Chelsea þyrfti engu að síður að sækja um undanþágu ef þetta ætti fram að ganga.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Kári Kristján spilar aldrei aftur fyrir ÍBV Handbolti „Algjörlega niðurbrotinn eftir þetta tap“ Fótbolti Gervigreindin spáir í fyrstu umferðina Enski boltinn Ótrúlegt golfhögg í reiðiskasti slær í gegn á netinu Golf Enska augnablikið: Eftirminnilegasta lýsing Íslandssögunnar Enski boltinn Sjáðu upphitunarþátt fyrir enska boltann í heild Enski boltinn Eiginkonan líkir þjálfara Slóvena við Gosa Körfubolti Nýr framherji Man. United treður með miklum tilþrifum í körfuna Enski boltinn Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Enski boltinn „Galið og fáránlegt“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Enska augnablikið: Eftirminnilegasta lýsing Íslandssögunnar Nýr framherji Man. United treður með miklum tilþrifum í körfuna „Gefa áhorfendum innsýn í það sem sérfræðingarnir gera“ Dagskráin: Fyrsti leikur í enska boltanum Gervigreindin spáir í fyrstu umferðina Sjáðu upphitunarþátt fyrir enska boltann í heild Xhaka gerður að fyrirliða tveimur vikum eftir að hann var keyptur Enska augnablikið: Englar og djöflar Leoni færist nær Liverpool Tony Adams vill að Arsenal skipti um fyrirliða Rooney sár út í Tom Brady: „Fannst hann vera mjög ósanngjarn“ Chelsea gefur fjölskyldu Jota hluta af HM-bónusunum Nýja stórstjarna Liverpool fékk ekki að hafa sjónvarp heima hjá sér Enska augnablikið: AGUERO!! Leik U21 liðs Man United hætt vegna meiðsla leikmanns Calvert-Lewin á leið til Leeds Willum lagði upp sigurmark Birmingham Jason Daði og félagar fá Rauðu djöflana í heimsókn Enska augnablikið: Hugsaði til van Persie eftir frægt mark í Eyjum Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Grealish valdi númerið sitt vegna Rooney og Gascoigne „Fáránleg staða sem er komin upp“ Stuðningsmenn Chelsea bjartsýnastir en mjög svartsýnir hjá Newcastle Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Vildi hvergi annarsstaðar spila Dýrasti leikmaður í sögu City lánaður til Everton Enska augnablikið: Forsjáli félaginn sem missti af öllu Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Sjá meira