Lay Low á Akureyri 15. desember 2006 13:35 Lay Low og Ívar Bjarklind verða saman á Græna Hattinum annað kvöld.
Laugardagskvöldið 16. desember verða haldnir tónleikar á Græna Hattinum á Akureyri, þar sem fram kemur hin margrómaða tónlistarkona Lay Low og heimamaðurinn Ívar Bjarklind ásamt hljómsveit. Lay Low (réttu nafni Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir) hefur fengið lofsamlega dóma fyrir fyrstu breiðskífu sína "Please Don't Hate Me" og hefur meðal annars verið tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna í fjórum flokkum. Hún kemur fram vopnuð gítar og sinni mögnuðu röddu, og flytur sína sérstöku blöndu af blús, rokki og sveitatónlist. Ívar Bjarklind hefur einnig nýverið gefið út sína fyrstu plötu "Blóm eru smá", sem fullyrða má að sé einlægasta poppplata síðari ára. Gagnrýnandi Morgunblaðsins fór fögrum orðum um plötuna, og sagði hana "næstum því fullkomna". Ívar kemur fram með einvala lið hljóðfæraleikara, þar sem Orri Harðar fer fremstur meðal jafningja. Hljómsveitina skipa annars þeir Orri Einarsson trommur, Heimir Freyr Hlöðversson píanó, Ragnar Emilsson gítar og Georg Bjarnason á bassa. Húsið er opnað klukkan 21:00, og aðgangseyrir er 1000 kr. en 800 kr. fyrir háskólanema. Það er hægt að lofa huggulegri stemningu og ljúfum tónum í húsakynnum Græna Hattarins næstkomandi laugardagskvöld, og eru Norðlendingar hvattir til að láta þetta tækifæri ekki fram hjá sér fara.
Lífið Menning Mest lesið Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Lífið Myndaveisla: Samstaða og stolt í algleymingi í Gleðigöngunni Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Lífið Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira