Hvaladráp 14. maí 30. apríl 2007 10:00 the great northern whalekill. Platan með þessari óvenjuleg mynd á framhliðinni kemur út 14. maí.
Fjórða plata rokksveitarinnar Mínus, The Great Northern Whalekill kemur út hinn 14. maí næstkomandi. Hið sérstaka umslag plötunnar var hannað af Gunnari Vilhjálmssyni og tók Börkur Sigþórsson myndina. Platan átti upphaflega að koma út 16. apríl en einhverjar tafir urðu á vinnslunni. Til stendur að halda útgáfutónleika sama dag og platan kemur út. Verða þeir haldnir um hábjartan dag og verður enginn aðgangseyrir. Að sögn Kára Sturlusonar, umboðsmanns Mínus, er óvíst hvenær sveitin fer í tónleikaferð út fyrir landsteinana til að fylgja plötunni eftir. Það yrði þá ekki fyrr en í haust, þegar platan kemur út erlendis. Nokkrum dögum áður en platan kemur út hér heima geta aðdáendur Mínus sent tölvupóst á netfangið minusminusminus@gmail.com og skráð sig þar í Mínusklúbb. Eiga þeir þar með möguleika á að kaupa plötuna, sem beðið hefur verið eftir með mikilli eftirvæntingu, á undan öllum öðrum.
Mest lesið Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Lífið Leikstjórinn James Foley er látinn Lífið Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Lífið Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Lífið Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Lífið Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Lífið Stefán Einar keypti 145 milljón króna þakíbúð Lífið Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Lífið Glæsileg íbúð handboltakempu í Sigvaldahúsi Lífið Typpi í einu gati, tæki í öðru Lífið Fleiri fréttir „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira