Fylkir missir sína sterkustu menn 2. maí 2007 21:47 Heimir Örn er hér í leik með Fylki í vetur. fréttablaðið/e. ól.
Nú er ljóst að Fylkir mun missa sína sterkustu leikmenn en liðið féll nú á vikunum úr DHL-deildinni. Ekki hefur enn verið ákveðið hvort Fylkir ætli að tefla fram liði í 1. deild karla á næsta ári. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að Heimir Örn Árnason, Guðlaugur Arnarsson og Hlynur Morthens gætu vel verið á leið til Stjörnunnar ásamt ÍR-ingnum Ragnari Má Helgasyni. Heimir sagði við Fréttablaðið í gær að það væri ljóst að hann yrði ekki áfram með Fylki. „Ég hef átt í viðræðum við nokkur félög, þeirra á meðal Stjörnuna," sagði hann. Karl Sigurðsson er formaður handknattleiksdeildar Fylkis og hann segir að forráðamenn deildarinnar velti nú fyrir sér sínum kostum. „Við höfum rætt þann möguleika í okkar hópi að tefla fram liði á næsta tímabili og erum að skoða þann möguleika. Ætli það séu ekki helmingslíkur á því en til þess þyrftum við auðvitað að finna fjárhagslegan flöt á því," sagði Karl. Hann segir að flestir leikmannasamningar liðsins séu hvort eð er útrunnir. „Það er þó hópur stráka sem er tilbúinn að spila með liðinu á næsta ári. Við gerum þó fastlega ráð fyrir því að sterkustu leikmenn liðsins fari annað og skilst mér að þeir séu að skoða hvað þeim standi til boða." Fylkir lenti í sjöunda og næstneðsta sæti DHL-deildarinnar.- esá
Olís-deild karla Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira