Slæmur endasprettur hjá Heiðari 26. apríl 2007 14:26
Heiðar Davíð Bragason úr Kili í Mosfellsbæ lék lokahringinn á Welness mótinu í Danmörku í dag á 77 höggum, eða 5 höggum yfir pari. Hann byrjaði vel og eftir 13 holur var hann á 2 höggum undir pari, en lék síðustu fimm holurnar á 7 höggum yfir pari. Hann lék hringina þrjá á samtals 222 höggum, eða 6 höggum yfir pari. Heiðar Davíð hafnaði í 31.-34. sæti í mótinu. Þegar hann kom á 14. teig var hann í fínum málum og í 10. sæti. Hann varð hins vegar að sætta sig við 7 högg á 14. holuna, sem er par-4. Við þetta missti hann taktinn, fékk reyndar par á 15. holu, en skolla á 16. og 17. holu og skramba á 18. holu. Hann hitti 9 brautir og 13 flatir í tilætluðum höggafjölda, og notaði 33 pútt á hringnum. Heiðar lék fyrsta hringinn í mótinu á 72 höggum, eða pari og síðan var hann á 73 höggum í gær. Mótið er hluti af dönsku Scanplan mótaröðinni. Næsta mót hans verður eftir hálfan mánuð og verður það einnig á Scanplan mótaröðinni. Frétt af Kylfingur.is
Golf Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira