Birgir Leifur á höggi yfir pari 10. maí 2007 16:09 NordicPhotos/GettyImages
Birgir Leifur Hafþórsson lék fyrsta hringinn á Opna Andalúsíumótinu á Spáni í dag á 73 höggum, eða einu höggi yfir pari. Hann lék fyrri níu á 37 höggum og seinni níu á 36 höggum. Hann fékk 3 fugla á hringnum, 12 pör, 2 skolla og einn skramba, sem kom á 7. braut. Hann er sem stendur í 81. - 94. sæti, en margir keppendur eiga eftir að ljúka leik í dag. Eftir hringinn á morgun verður keppendum fækkað niður í kringum 70 þannig að Birgir þarf að gera betur á morgun til að eiga möguleika á að komast í gegnum niðurskurðinn. Þetta er áttunda mótið sem Birgir Leifur tekur þátt í Evrópumótaröðinni á þessu keppnistímabili. Hann náði besta árangri sínum á ferlinum um síðustu helgi er hann hafnaði í 11. sæti á Opna ítalska mótinu. Ástralinn Matthew Zions hefur leikið best þeirra sem hafa lokið leik í dag - á 65 höggum eða 7 höggum undir pari. Svíinn Joakim Haeggman, Englendingurinn Gary Lockerbie og Louis Oosthuizen frá Suður-Kóreu koma næstir á 67 höggum.. Spánverjinn Gonzalo Fdez-Catano, sem sigraði á Opna ítalska mótinu um síðustu helgi, er að leika vel, er á 6 höggum undir pari eftir 15 holur. Daninn Thomas Björn lék á 71 höggi í dag og Spánverjinn Miguel Angel Jiménez var á 72 höggum, eða pari. Sjáðu skorkort Birgis hér Frétt af Kylfingur.is
Golf Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira