Enn er slúðrað um Kaka 26. október 2007 13:19 Kaka NordicPhotos/GettyImages
Brasilíski miðjumaðurinn Kaka hjá AC Milan segist alls ekki útiloka að spila með Real Madrid í framtíðinnni, en bendir á að það sé forseta félaganna að taka slíkar ákvarðanir. Hinn 25 ára gamli Kaka hefur ítrekað verið orðaður við Real Madrid á síðustu misserum og spænskir og ítalskir fjölmiðlar fullyrða að Florentino Perez forseti Real muni gera aðra atlögu að leikmanninum í janúar. Þá hermdu fregnir í sumar að faðir Kaka hefði átt fund með forráðamönnum Real til að ræða hugsanleg félagaskipti þar. Kaka sjálfur er ósköp rólegur yfir öllu saman, en lét sig ekki muna um að kynda undir annan klassískan orðróm þegar hann var spurður út í málið í gær. "Ég er samningsbundinn Milan til ársins 2011 og hvorki mér né félaginu liggur nokkuð á að endurnýja hann. Forsetar liðanna verða að ræða saman svo hægt sé að ákveða eitthvað svona. Ef þeir komast að niðurstöðu - fínt - ef ekki, þá verð ég barra áfram hjá Milan," sagði Kaka og bætti við að landi hans Ronaldinho hjá Barcelona væri alltaf inni í myndinni hjá Milan. "Í hvert skipti sem ég hitti Ronaldinho á landsliðsæfingum, spyr hann mig um Milan - um liðið og félagið í heild. Ég veit ekki hvort við getum fengið hann hingað en hann virðist sannarlega leiða hugann að okkur," sagði Kaka.
Ítalski boltinn Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Enski boltinn Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Fleiri fréttir Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Sjá meira