Alonso aftur til Renault Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. desember 2007 15:26 Fernando Alonso mun aftur klæðast búningi Renualt á næsta tímabili. Nordic Photos / AFP
Fernando Alonso greindi frá því í dag að hann muni ganga til liðs við Renault á nýjan leik. Alonso gekk til liðs við McLaren fyrir síðasta tímabil eftir að hann varð heimsmeistari tvö ár í röð með Renault. Upp úr sauð milli hans og Lewis Hamilton á síðasta tímabili með þeim afleiðingum að Alonso fékk sig lausan undan samningi sínum. Renault vildi ekki staðfesta hversu langur samningur Alonso væri við liðið né heldur hvers virði hann væri. Getgátur eru um að Alonso fái allt að 25,2 milljónir dollara í laun, um einn og hálfan milljarð króna. Heikki Kovalainen fer frá Renault og Brasilíumaðurinn Nelson Piquet yngri mun keppa við hlið Alonso. Talið er líklegt að Kovalainen fari annað hvort til McLaren eða Toyota. „Ég ólst upp í Formúlunni hjá þessu liði. Nú er kominn tími til að rita nýjan kafla saman í sögu þess,“ sagði Alonso. „Renault átti erfitt uppdráttar á síðasta tímabili en ég veit hvað býr í því. Ég er handviss um að það geti teflt fram öflugum bíl á næsta tímabili og barist um titilinn.“
Formúla Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Svona var blaðamannafundur Arnars Fótbolti Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Enski boltinn Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Fótbolti Mál Alberts truflar landsliðið ekki Fótbolti Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Fótbolti Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport Davíð Smári tekur við Njarðvík Íslenski boltinn „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fótbolti Stuðningsmenn Bröndby enn á ný í vandræðum Fótbolti Fleiri fréttir Verstappen telur sig ekki geta barist um titilinn Hlupu inn á Formúlu 1-brautina: „Ég hefði getað drepið þá“ Yfirburðir Norris sem er kominn á toppinn Norris á ráspól og forysta Piastri í hættu Grunur um nauðgun á heimili Schumachers Segir að formúlu 1 vanti nú illmenni Russell fyrstur í mark í Singapúr og McLaren tryggði sigur bílasmiða George Russell á ráspól í Singapúr Hringt í flesta eigendur í Formúlu 1 eftir brottreksturinn frá Red Bull Sjá meira